Bændablaðið - 19.09.2013, Síða 10

Bændablaðið - 19.09.2013, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 201310 Fréttir Hin árlega landskeppni Smala- hundafélags Íslands (SFÍ) var haldin að Fjalli á Skeiðum dagana 24. og 25. ágúst 2013. Mótið var haldið á vegum Smalahundadeildar Árnessýslu og var þátttaka öllum opin. Keppt var í þremur flokkum; flokki unghunda sem er fyrir hunda yngri en þriggja ára, B-flokki sem er fyrir eldri hunda sem hafa enga eða litla reynslu af keppnum og A-flokki þar sem hundarnir fara lengri og erfiðari braut en í hinum flokkunum. Keppnin samanstóð af tveimur rennslum, einu hvorn dag, og giltu samanlögð stig beggja daga til úrslita. Mögulegur stigafjöldi fyrir hvert rennsli í unghundaflokki var 90, en í A- og B-flokkum var mögulegur stigafjöldi fyrir hvert rennsli 100. Í ár voru 25 hundar skráðir til leiks, þar af flestir af efnilegustu og bestu smalahundum landsins. Keppendum fjölgar ár frá ári og gæði keppnishundanna, heilt yfir, verður sífellt meiri sem endurspeglar aukinn áhuga á smalahundum á landsvísu. Úrslit A – flokkur: 1. Elísabet Gunnarsdóttir og Skotta frá Daðastöðum, með 85 + 85 stig = 170 2. Gunnar Guðmundsson og Karven Taff frá Wales, með 86 + 75 stig = 161 3. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Kría frá Daðastöðum, með 79 + 77 stig = 156 Úrslit B – flokkur: 1. Svanur Guðmundsson og Korka frá Miðhrauni, með 82 + 94 stig = 176 2. Arnfríður S. Jóhannesdóttir og Lína frá Úthlíð, með 44 + 84 stig = 128 3. Bjarki Benediktsson og Trúska frá Breiðavaði, með 57 + 66 stig = 123 Unghundaflokkur 1. Svanur Guðmundsson og Smali frá Miðhrauni, með 74 + 74 stig = 148 2. Agnar Ólafsson og Kátur frá Eyrarlandi, með 66 + 73 = 139 3. Jón Geir Ólafsson og Röskva frá Hæl, með 65 +29 = 94 Auk verðlauna fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki, voru eftirfarandi verðlaun afhent: Stigahæsti keppandi í B-flokki: Korka frá Miðhrauni (Svanur Guðmundsson) Tígulsbikar fyrir flest stig í A-flokki: Skotta frá Daðastöðum (Elísabet Gunnarsdóttir) Besti hundur í A-flokki: Karven Taff frá Wales (Gunnar Guðmundsson) Besta tík í A-flokki: Skotta frá Daðastöðum (Elísabet Gunnarsdóttir) Tíunda alþjóðlega kvikmynda- hátíðin í Reykjavík - RIFF hefst þann 26. september nk. og stendur til 6. október. Fjölmargar kvikmyndir af öllum stærðum og gerðum verða þá sýndar í Háskólabíói, Tjarnarbíói og í Norræna húsinu. Að minnsta kosti tvær myndir ættu að höfða sterklega til bænda og þeirra sem hafa áhuga á búskap og fæðuframleiðslu. Muu-maðurinn (The Moo Man) er heimildarmynd eftir leikstjórana Andy Heathcote og Heike Bachelier. Hún segir ótrúlega sögu um utangarðsbónda og óþægu kýrnar hans. Í tilraun til þess að bjarga fjölskyldubýlinu ákveður Stephen Hook að snúa baki við lággjalda mjólkurframleiðslu og stórmörkuðum, og í staðinn halda búskapnum litlum og viðhalda nánum tengslum við hjörðina. Áætlanir Hooks til þess að bjarga býlinu leggjast hins vegar ekki alltaf vel í þessar 55 hýru kýr. Afraksturinn er sprenghlægilegur tilfinningarússíbani. GMO OMG er heimildarmynd eftir bandaríska leikstjórann Jeremy Seifert. Myndin segir leynda sögu þess að risavaxin efnafyrirtæki hafa tekið yfir fæðuframboð okkar (eða að minnsta kosti Bandaríkjamanna); landbúnaðarlegu hættuástandi sem er orðið að menningarlegu hættuástandi. Myndin fylgist með baráttu leikstjórans og fjölskyldu hans fyrir því að lifa og borða án þess að taka þátt í óheilbrigðu, ósanngjörnu og eyðileggjandi fæðukerfi. Er yfirtaka fæðukerfis heimsins óafturkræf? Eða er enn tími til að endurheimta hreinleikann, bjarga líffræðilegri fjölbreytni og okkur sjálfum. Kvikmyndir fyrir bændur á RIFF Síðasti áfangi að lagningu hitaveitu til Skagastrandar er nú hafinn með því að Rarik hefur hafist handa við borun vinnsluholu að Reykjum. Þar er nóg vatn í jörðu fyrir stækkun hitaveitunnar að því er fram kemur á vefnum huni.is, en bora þarf nýja holu vegna þess að meiri vatns- taka úr svæðinu hefur í för með sér að vatnsborð í borholunum mun lækka niður fyrir fóðringar þar sem vatnsdælurnar eru. Fóðringar í holum er ekki hægt að síkka og þess vegna verða boraðar nýjar holur á næstu árum, en þessi hola sem vinna er nú hafin við er sú fyrsta. Jarðboranir bora holuna sunnan þjóðvegarins við Húnavelli. Vonir standa til að fyrstu húsin á Skagaströnd fái heitt vatn um miðjan október. /MÞÞ Hitaveita til Skagastrandar Landskeppni Smalahundafélags Íslands haldin að Fjalli á Skeiðum: Gæði keppnishunda aukast ár frá ári Úr heimildarmyndinni GMO OMG eftir bandaríska leikstjórann Jeremy Seifert. Muu-maðurinn (The Moo Man) er heimildarmynd eftir leikstjórana Andy Heathcote og Heike Bachelier. Laxveiðin í húnvetnskum ám hefur verið mjög góð í sumar og í sumum ám er hún margföld miðað við veiðina síðasta sumar. Laxá á Ásum og Vatnsdalsá eru báðar komnar yfir þúsund laxa og Miðfjarðará er komin í 3.379 laxa. Veiðin í Blöndu er komin í 2.580 laxa og Svartá hefur gefið 327 laxa það sem af er sumri. Samkvæmt nýjustu tölum frá Landssambandi veiðifélaga sem birtar eru á vefnum www.angling.is hafa veiðst 1.019 laxar í Laxá á Ásum og 1.013 laxar í Vatnsdalsá. Veiðst hafa 781 laxar í Víðidalsá og 603 laxar í Hrútafjarðará og Síká. Alls hafa veiðst 9.702 laxar í þeim ám sem nefndar eru hér að ofan en h e i l d a r - veiðin síð- asta sumar nam 3.630 l ö x u m . Aukningin það sem af er sumri nemur 167%. /MÞÞ Laxveiði í húnvetnskum ám hefur margfaldast Úrslit í A-flokki, (frá vinstri) Gunnar Guðmundsson og Karven Taff frá Wales, Elísabet Gunnarsdóttir og Skottta frá Daðastöðum, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Kría frá Daðastöðum. Þyngdarmet slegið í slátrun hjá Norðlenska: Holdanaut frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd vóg 553,1 kg – Kjötið dugar í um þrjú þúsund hamborgara Þyngdarmet var slegið hjá Norðlenska á dögunum þegar holdanaut frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd kom til slátrunar á Akureyri. Reyndist dýrið 553,1 kg. Þyngsti grípur sem slátrað hafði verið fram að þessu hjá fyrirtækinu var 526 kg boli frá Hleiðargarði í Eyjafjarðarsveit á síðasta ári. Gripurinn frá Breiðabóli flokkaðist í gæðaflokk UN1A að því er fram kemur á vefsíðu Norðlenska. Gylfi Halldórsson bóndi á Breiðabóli er ekki óvanur því að koma með þunga gripi til slátrunar. Hann lagði inn sex naut nú í haust og var meðalþungi þeirra 391 kg, en sá sem næstur kom „stóra bola“ var 468,7 kg. Gylfi segist eiginlega ekki geta svarað því hvers vegna gripirnir frá honum eru jafn þungir og raun ber vitni. „Það hjálpar reyndar örugglega til að ég rækta korn og gef þeim. Uppistaðan í fæðunni er hey en ég gef þeim korn einu sinni á dag þar til þremur mánuðum fyrir slátrun, en tvisvar á dag eftir það,“ segir Gylfi. Hann segir kálfum yfirleitt slátrað 27-28 mánaða gömlum en „metbolinn“, sem hafi verið mjög stór allt frá fæðingu, hafi verið orðinn 29 mánaða og tveggja vikna. Til gamans má geta þess að hakkefnið úr gripnum myndi sennilega duga í um 3.000 hamborgara. Sannarlega engin smá skepna.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.