Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 14

Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 14
14 Á Akranesi er starfandi fyrir- tækið Kaja organic, sem er hið eina á landinu sem sérhæfir sig í innflutningi og heildsölu lífrænt vottaðra vara í stórpakkningum sem ætlaðar eru fyrir mötuneyti, stóreldhús og framleiðendur. „Ég fór að skoða þennan mögu- leika, að stofna mitt eigið fyrirtæki, af alvöru í lok mars sl. og fyrirtækið varð orðið að veruleika í apríl. Ég var innkaupa- og sölustjóri hjá Yggdrasil og það má segja að ég hafi í gegnum það starf vitað að það voru tækifæri á þessum markaði,“ segir Karen Jónsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Það var hvatning frá leikskólum hér á Akranesi sem varð til þess að ég steig skrefið til fulls, en þeir keyptu tilteknar vörur fyrir börn með ofnæmi af ýmsum toga. Einn helsti markhópur minn er enda leik- og grunnskólar og ég er komin með nokkuð breitt vöruúrval til að þjóna þeim; hýðishrísgrjón, hveiti, heilhveiti, olíur, fræ o.fl. Og þó að þetta sé þungamiðjan í innflutningnum í dag þá byrjaði ég á því að flytja inn vandað súkkulaði og sem ég sel m.a. í blóma- og gjafavöruverslun hér á Akranesi auk annara sérverslana.“ Áhugi á skólaeldhúsunum „Ég hef mikinn áhuga á því að koma þessum vörum í meiri mæli til skólaeldhúsa því mér finnst nauðsynlegt að börnum sé boðið upp á almennilega næringu. Þess vegna býð ég skólunum líka upp á fræðslu. Ábyrgð skólanna er mikil og til marks um það má nefna að leik- skólabarn fær um 65 prósent af nær- ingu sinni á aldrinum tveggja til sex ára frá mötuneyti leikskólans. Ég hef sérstaklega rekið áróður fyrir því að skólamötuneyti hætti að nota hvítan sykur, hvítt hveiti, hvít hrísgrjón og trefjalausa fæðu. Að auki tel ég að erfðabreytt matvæli eigi ekki heima á þessum stöðum,“ segir Karen. Betri lifnaðarhættir og bættur þjóðarhagur „Engin yfirbygging er á fyrirtæk- inu, en ég rek fyrirtækið frá heimili mínu og er eini starfsmaður þess. Þess vegna get ég í ýmsum tilvikum boðið vörurnar á sambærilegu verði við hefðbundna vöru og jafnvæl á lægra verði. Kaup á lífrænum vörum frá mér ættu því ekki að auka rekstrarútgjöld skólamötuneyta svo nokkru nemi. Það er svo auðvitað fyrir utan hvað sparast muni með betri lifnaðarháttum og bættum þjóðarhag.“ Nokkrir skólar og innlendir fram- leiðendur eru þegar farnir að kaupa vörur af Karen sem erfitt er annars að fá. Í Bændablaðinu á dögunum var til að mynda rætt við einn af þeim, Svavar bulsugerðarmeistara, sem framleiðir grænmetispylsur við góðan orðstír. Hún hyggur á frekari landvinninga með tíð og tíma – og breyttum tíðaranda. „Ég á ekki von á því að selja beint til verslana því minnstu pakkningar sem ég er með eru fimm kíló, en hver veit. Að lokum langar mig að biðla til stjórnenda sveitafélaga um að þau láti sig málin varða og skapi sér heildarstefnu varðandi hvað sé gott fæði fyrir barn. Í dag hefur ekkert sveitarfélag að mér vitandi sett fram stefnu varðandi þessi mál- efni. Ég spyr, er eðlilegt að barn fái erfðabreyttan mat frá skólum, mikið unna fæðu eða aðra óhollustu?“ /smh Kaja organic er nýleg heildsala með lífrænt vottaðar matvörur: Nauðsynlegt að börnum sé boðin almennileg næring Ég var á fjöllum um síðustu helgi, að smala fé eins og ég geri jafnan á haustin. Það hafði snjóað töluvert dagana á undan og það var leiðinda göngufæri þótt veður væri með besta móti til smalamennsku. Ég hef verið í betra formi en ég er núna en reynslan kennir manni marga lexíuna sem nýtist á fjöllum og í smalamennsku. Þetta gekk því ágætlega fyrir sig, jafnvel þótt færra væri í hverju plássi þar sem veðurútlitið var leiðinlegt fyrir seinni dag í göngum og því ákveðið að smala stærra svæði þennan dag en vant var. Á sunnudag var svo rekið til réttar í slagveðursrigningu. Réttað var í hífandi roki og kalsaveðri og þakkaði fólk sínum sæla að kvenfélagskonur stóðu eins og vant er vaktina í réttakofanum með heitt kaffi og kakó til að koma yl í kroppinn áður en farið var að draga fé á nýjan leik. Takk kvenfélagskonur! Flestir voru því fegnastir þegar búið var að draga fé og ýmist búið að keyra eða reka það heim, enda gerði slydduhríð þegar á leið. Þegar leið á sunnudag fóru að berast fréttir af andstyggðarveðri víða um land. Björgunarsveitir voru ræstar út til að aðstoða fólk og meira að segja þurftu þær að leita að ungri erlendri konu sem hafði álpast á fjöll án þess að hafa fyrir því að spá í veðurhorfur. Sú fannst og má þakka björgunarsveitum enn einn ganginn fyrir ómetanlega aðstoð þeirra. Við þetta rifjuðust upp fyrir mér raddir sem alltaf heyrast öðru hverju, um markaðssetningu smalamennsku. Raddir sem eru einhvern veginn á þann veg að það sé nú rétt að fá ferðamenn bara til að koma í smalamennsku á svæðum þar sem bændur vantar aðstoð. Selja þeim upplifunina og náttúruna, nálægðina við skepnurnar og fólkið í landinu. Bændur fái þarna aðstoð sem þá vanti og allir græði. Hugmyndir sem í mín eyru hljóma eins og argasta bull og lykta af græðgisvæðingu í ferðamennsku eða óraunhæfum hugmyndum út á hvað smalamennska gengur. Sauðfjárbændur eiga lífs- afkomu sína undir því að heimta fé af fjalli. Það er staðreynd. Þeir kosta talsverðu til og oft eru haustin þung. Það er beinlínis óvirðing við þá að gaspra um að hægt sé að selja einhverjar hópferðir í smalamennsku. Að hægt sé að smala heiðar og dali með óvönu fólki að uppistöðu, fólki sem kannski hefur aldrei á fjöll komið. Hræddur er ég um að þá færi meiri tími í að smala fólkinu saman heldur en fénu. Í það minnsta ef veður gerðust válynd. Meira að segja við bestu aðstæður er erfitt að smala fé. Það ríður mikið á að fólk sem tekur þátt í smalamennsku leggi sig fram, beiti skynseminni og hlusti á tilsögn. Björgunarsveitirnar hafa víst nóg annað að gera heldur en að þurfa að leggja í leit að erlendu ferðafólki sem væri seldur einhver túristapakki í göngur. Ég hef lent í villum á fjöllum. Ég hef lent í svo þykkri Austfjarðarþoku að auðvelt var að villast á henni og hafragrautnum sem borðaður var í morgunmat. Í þeim aðstæðum hafði ég mun meiri áhyggjur af samferðmönnum mínum í smalamennskunni heldur en því hvort við kæmum heim með fé. Og ég veit að þeir bændur sem ég smalaði fyrir þann daginn höfðu sömu áhyggjur. Ég hefði ekki viljað bera ábyrgð á hópi af ferðamönnum þann daginn. Ekki frekar en aðra daga í smalamennsku á fjöllum. /fr STEKKUR Græðgisvæðing smalamennskunnar Endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir Langanesbyggð fyrir árið 2013 gefur til kynna að staða sveitarfélagsins sé mun verri en talið var. Þetta kom fram á fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar í liðinni viku þegar lögð voru fram til kynningar endurskoðuð rekstraráætlanagöng. Áhyggjur af stöðunni Fram kom á fundinum að næstu daga yrði farið yfir þau drög sem fyrir lægju með endurskoðenda og lykilstarfsmönnum sveitarfélagsins til að sannreyna veruleika þeirra gagna sem fyrir lægju. Í framhaldi af því myndi sveitarstjóri boða sveitarstjórn á sérstakan fund þar sem farið yrði yfir málin. Fundarmenn lýstu yfir áhyggjum yfir stöðu sveitarfélagsins. Á sama fundi var farið yfir stöðu viðhaldsverkefna á vegum sveitarfélagsins, yfirlit yfir stöðu framkvæmda og kostnaðartölum. Yfirlitið gefur til kynna að sveitarfélagið hafi þegar eytt þeim fjármunum sem til ráðstöfunar voru en fyrir liggur að ljúka þurfi við ýmsar framkvæmdir, m.a. að klára þakframkvæmdir á félagsheimilinu, og þá sé æskilegt að klára einnig framkvæmdir við glugga að Hálsvegi 9. Sorp mögulega urðað á Bakkafirði Staða sorpmála í Langanesbyggð var einnig til umræðu á fundinum en unnið er að samkomulagi við íbúasamtök Bakkafjarðar sem felur í sér mögulega urðun á Bakkafirði til skemmri tíma á meðan framtíðarlausna er leitað. Fram kom að sveitarstórnarmenn teldu vel hægt að gera betur í sorpflokkun í sveitarfélaginu, en þannig minnkar það sorp sem fer til urðunar. Hafnarframkvæmdir í Finnafirði kynntar Fram kom á sveitarstjórnarfundi í Langanesbyggð að fulltrúar frá Bremenports, þýska sendiráðinu og fleiri hefðu heimsótt Þórshöfn í lok sumars og skoðað aðstæður í Finnafirði. Gestirnir hittu að máli sveitarstjórnarfólk í Langanesbyggð og Vopnafirði en fulltrúar Bremenports kynntu stuttlega hugmyndir sínar um hafnarframkvæmdir í Finnafirði. Fyrirhugaður er fundur með landeigendum í Finnafirði og að honum loknum stefnt að almennum íbúafundi um málið í október. /MÞÞ Staða Langanesbyggðar verri en talið var Karen Jónsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Kaja organic. Mynd / smh Frístundahúsavefurinn www. nordic lodges.com var nýlega tekinn í notkun, en tilgangur hans er að bjóða upp á leigu á frístundahúsum til ferðamanna. Nordic Lodges- kerfið grundvallast á neti af frístundahúsum um allt land, sem gist er í þrjár eða fjórar nætur en að svo búnu er skipt um hús, á fimmtudögum og sunnudögum. Þannig flytjast gestirnir úr einu húsi í annað og ferðalag um landið verður til um leið. Það eina sem ferðamaðurinn þarf að gera, fyrir utan að panta flugið, er að útvega sér bíl og það mun hann líka geta gert í gegnum vefinn. Jón Baldur Þorbjörnsson er annar tveggja eigenda fyrirtækis- ins, en hinn er Þjóðverjinn Helmut Dussileck. Jón Baldur segir að með hugmyndinni um Nordic Lodges sé í raun verið að mæta þeim róttæku breytingum sem orðið hafa í komu ferðamanna til Íslands. „Fyrir um 25-30 árum voru 80 prósent þeirra í hópferðum til í Íslands og 20 prósent á eigin vegum. Nú er svo komið að þetta hefur alveg snúist við; 80 prósent ferðamanna eru á eigin vegum. Þegar ferðafólk er ekki lengur bundið við tiltekin hótel en er samt í smáum hópum eins og t.d. fjölskyldur henta þessir gistimögu- leikar vel sem við bjóðum upp á,“ segir Jón Baldur, sem hefur rekið fyrirtæki sitt Ísafold Travel í 16 ár og verið viðloðandi ferðaþjónustuna samtals í 30 ár, lengst af sem leið- sögumaður. Vefurinn er gagnvirkur og gerir beinlínubókanir mögulegar, þ.e. við- skiptavinurinn gengur frá bókuninni líkt og á flugleitarvél, án þess að hafa samband við seljendur þjón- ustunnar. Frístundahúsin sem falla undir Nordic Lodges eru hlýleg, rúmgóð, vel búin, vel staðsett og í útleigu allt árið. Fyrirtækið á sjálft nokkur húsanna en flest eru þau leigð af eigendum þeirra, sem þó geta notað þau sjálfir að vissu marki. Uppbúin rúm bíða gestanna og ein- staklingar í nágrenni við húsin, sem flest hver eru fjarri þéttri byggð, sjá um umhirðu húsanna á milli þess sem gestir fara og koma. Áhersla á hlýleika og vellíðan Að sögn Jóns Baldurs verður áhersla lögð á að byggja Nordic Lodges- vefinn út frá Reykjavík vegna nándar við Keflavíkurflugvöll og einnig út frá Egilsstöðum vegna nándar við Seyðisfjörð – og að smám saman verði hringnum lokað. „Kappkostað verður að gera bústaðina mjög vel úr garði og leggja áherslu á hlýleika og vellíðan, með netsambandi, sjónvarpsskjá og DVD-spilara. Áhersla verður lögð á staðsetningu með fallegt útsýni, þannig að bústaðirnir geti flokkast undir „exclusive“ eða „exceptional“. Einnig verður lögð áhersla á tengingu við hitaveitu þar sem hægt er. Staðsetning mun taka mið af vegalengd í næstu verslun, og jafnvel veitingahús, og áhersla lögð á afþreyingu í nálægð eins og gönguleiðir, golf, veiði, menningarstaði og annað þess háttar. Enn fremur verða í hverjum bústað leiðarlýsingar með áhugaverðum slóðum sem fólkið gæti kannað miðað við að það hafi tekið jeppa á leigu og vilji aka þessa slóða á þeim tveimur eða þremur heilum dögum sem það hefur til ráðstöfunar í slíkt á hverjum stað. Gert er ráð fyrir sjálfskostun en markmiðið er þó að þeir verði þannig staðsettir að hægt verði að komast á matsölustað í nágrenninu. Uppskriftir fyrir dæmigerðan staðbundinn mat verða til staðar og miðað er við að hafa alla bústaðina með sambærilegum innbúnaði þannig að notkunarviðmót þeirra verði svipað frá húsi til húss. Það á m.a. við um rafmagnstæki í eldhúsi og þvottahúsi, og umgengni við heita potta eða mögulegan arin, og gufubað þar sem ekki er heitur pottur á köldum svæðum. Þegar fyrirtækið kemst almenni- lega á legg verður áhersla lögð á umhverfisvitund og sjálfbærni við rekstur þess og bústaðanna.“ /smh Frístundahúsavefurinn Nordic Lodges: Gestirnir ferðast um landið úr einu húsi í annað Brekka, í landi Kalastaða á Hvalfjarðarströnd.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.