Bændablaðið - 19.09.2013, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013
Veruleg fækkun hefur á liðnum
árum orðið á þeim stöðum þar sem
konum hefur verið boðin aðstaða
til að fæða börn. Það hefur í för
með sér að konur á barneignar-
aldri á landsbyggðinni þurfa
margar hverjar að leggja á sig
löng ferðalög til að komast á fæð-
ingarstað, oft um hávetur þegar
allra veðra er von. Mörg dæmi eru
þess að konur eignist börn ýmist í
sjúkrabílum eða einkabifreiðum á
leið á staðinn. Þá er vitað til þess
að bæði sjúkra- og einkabílar aki
langt yfir leyfilegum hámarks-
hraða með konur sem komnar eru
að barnsburði.
Sigfríður Inga Karlsdóttir, dósent
á heilbrigðisvísindasviði Háskólans
á Akureyri, fjallaði um málið í erindi
sem hún flutti í HA, en þar kom fram
að þeim stöðum þar sem konur geta
fætt börn hér á landi hefur fækkað
mikið undanfarin ár. Árið 1972
voru þeir alls 25 og dreifðust um
land allt, nú eru þeir einungis níu.
Sem dæmi má nefna að hvergi er
boðið upp á fæðingar á svæði frá
Akranesi til Ísafjarðar, á svæðinu frá
Ísafirði til Akureyrar er heldur eng-
inn fæðingardeild og sama er uppi á
teningnum á svæði frá Akureyri og
að Neskaupstað. Þannig eru á öllu
Norður- og Austurlandi einungis
í boði tveir fæðingarstaðir, einn í
hvorum landshluta, og þangað er
öllum barnshafandi konum beint.
Verið að flytja fé úr einum
vasa í annan
„Ég hef gagnrýnt það að litlum
fæðingardeildum sem voru á árum
áður víða um land hefur verið
lokað og öllum konum stefnt inn á
þéttbýlisstaðina.
Þegar farið var að skera niður í
heilbrigðiskerfinu og minna fé varið
til þjónustu á því sviði lentu þessar
litlu fæðingardeildir fljótt undir
niðurskurðarhnífnum, þær virtust
liggja vel við höggi. Þetta þykir mér
vera mikil skammsýni.
Vissulega má segja að viðkomandi
heilbrigðisstofnanir hafi sparað
útgjöld í kjölfar þess að deildunum
var lokað en á móti kemur að
kostnaður annarra stofnana eykst auk
þess sem meira fé hefur verið varið
til sjúkraflutninga. Það er því með
þessari ráðstöfun einungis verið að
flytja fé úr einum vasa yfir í annan,“
segir Sigfríður Inga.
Mörg dæmi um ofsahraða
Hún bendir einnig á aukna áhættu
sem konur á barneignaraldri búsettar
í strjálbýli eru lagðar í með löngum
akstri úr heimabyggð sinni og á
næstu fæðingardeild.
Yfir vetrartímann séu veður
oft válynd með tilheyrandi ófærð
á vegum. Veðurfar á Vestfjörðum,
Norður- og Austurlandi sé með
öðrum hætti en á sunnan- og vestan-
verðu landinu. Þar sé yfir fjallvegi að
fara sem iðulega teppist þegar snjóar,
en úrkoman sé oftar en ekki í formi
rigningar eða slyddu sunnan- og
vestanlands.
„Það er stundum talað um að
flestar konur búi í um það bil
klukkustundarfjarlægð frá hverjum
og einum fæðingarstað, en þá er
verið að miða við bestu aðstæður,
ekki tekið með í reikninginn að veður
er fljótt að breytast á Íslandi og færð
að spillast,“ segir Sigfríður Inga. Hún
bendir einnig á að eins til tveggja
tíma akstur fyrir konu sem er um það
bil að fæða barn og ef til vill þegar
komin með verki sé sársaukafullur og
vart á nokkra konu leggjandi.
„Margar konur þurfa að leggja
mikið á sig en það virðist einhvern
veginn aldrei vera horft til þess þegar
ráðamenn taka ákvarðanir, eins og til
dæmis að leggja niður litlu fæðingar-
deildinar sem eitt sinn voru víða um
land,“ segir hún.
Þá bendir hún á að mörg dæmi
séu þess að bílum, bæði sjúkrabílum
og einkabílum sem flytja konur á
fæðingardeildir í skyndi þegar alveg
er að koma að fæðingu barns, sé ekið
langt yfir hámarkshraða.
„Í mörgum tilvikum er um
ofsaakstur að ræða, við höfum heyrt
um bíla sem ekið er á 120 til 160
kílómetra hraða og það segir sig sjálft
að öryggi móður og ófædds barns er
stefnt í voða,“ segir Sigfríður Inga.
Spurning um hvenær eitthvað
fer úrskeiðis
Hún nefnir að fram til þessa hafi
skráningar á fæðingum í einka- og
sjúkrabílum ekki verið færðar sér-
staklega, en dæmi um slíkt séu
mýmörg. Þannig viti hún um átta
konur sem ýmist fæddu í sjúkra- og
einkabílum eða nokkrum mínútum
eftir að þær náðu inn á fæðingardeild,
á leið sinni úr Skagafirði á fæðingar-
deild á Akureyri. Fæðingardeild á
Sauðárkróki var lokað fyrir fáum
árum og fæðandi konur hafa eftir
það verið sendar til Akureyrar.
„Skagafjörður er um 3.000 manna
byggðarlag og um klukkustundar
akstur að fara á milli yfir til Akureyrar,
en það að við vitum um átta slík
dæmi á einu ári er töluvert mikið
í ekki stærra byggðarlagi. Þetta er
bara einn staður á landinu og dæmin
svona mörg. Ég hef ekki heildartölu
um hversu margar fæðingar verða
við þessar aðstæður á landinu öllu
en þær eru þó nokkuð margar,“ segir
Sigfríður Inga.
„Það má því sannarlega segja að
það sé mikil mildi að fram til þessa
hefur allt farið vel, en í þessu kerfi
okkar er innbyggð áhætta. Það er
spurning um hvenær eitthvað fer
úrskeiðis. Tilhugsunin um það er
skelfileg.“
Skilgreina þarf betur hvaða
þjónustu eigi að veita á hverri
heilbrigðisstofnun
Sigfríður Inga bendir á að nauðsynlegt
sé að skilgreina betur hvaða þjónustu
eigi að veita á hverri heilbrigðisstofn-
un fyrir sig. Landlæknisembættið
hefur gefið út leiðbeiningar um val
á fæðingarstað þar sem þeir eru
flokkaðir miðað við aðstöðu og við-
búnaðarstig og leiðbeiningar eru
gefnar um æskilegan flokk fæðingar-
staðar miðað við áhættuþætti kvenna.
Skilgreind eru fjögur mismunandi
þjónustustig, frá A til D, þar sem A er
hæsta þjónustustig og á aðeins við um
Landspítala-háskólasjúkrahús og D
er fæðingarstaður sem hentar konum
þegar meðganga og fyrri fæðingar
hafa verið eðlilegar að mati ljós-
mæðra og lækna.
Víða segir hún að hægt sé með
litlum tilkostnaði að veita þjónustu í
nærsamfélaginu í stað þess að senda
fólkið burtu um langan veg. „Svo
þarf að taka inn í þennan reikning það
aukna álag sem verður á starfsfólki
á stærri heilbrigðisstofnunum þegar
æ fleiri leita eftir þjónustu þar. Það
hefur t.d. margoft komið fram að
starfsfólk á Landspítala er að bugast
af álagi, en þegar þjónusta er skert á
minni stöðum sækir fólk í auknum
mæli þangað. Það hefur líka í för með
sér aukinn kostnað þar, þannig að
sparnaður í heild verður ef til vill ekki
svo ýkja mikill,“ segir hún.
Hægt að nýta litlu staðina betur
„Að mínu mati er í mörgum tilvikum
hægt að nýta litlu heilbrigðis-
stofnanirnar á landsbyggðinni betur
og létta þar með álagi af þeim stærri.
Hvað fæðingarþjónustu varðar er
stundum bent á að öryggið sé meira
á stóru heilbrigðisstofnununum.
Hraustar konur sem gengið hafa með
í 37-42 vikur, þar sem ekkert amar
að móður eða barni og ekki annað
fyrirsjáanlegt en fæðing verði eðlileg,
þurfa ekki inn á hátæknisjúkrahús
til að fæða barn sitt,“ segir Sigfríður
Inga. Hún segir að grunnurinn að
öryggi í barnsfæðingur sé því lagður
með góðri mæðravernd þar sem
konum í áhættumeðgöngu eða konum
sem eru á einhvern hátt metnar í
áhættuhóp hvað varðar fæðinguna
er beint á stærri fæðingarstofnanir
þar sem þjónustustig er hátt.
„Við skulum ekki gleyma því að
þegar búið er að taka þessar konur
út úr hópnum fæða hinar eðlilega
í flestum tilfellum. En stundum
hefur mér virst umræðan vera eins
og engar konur fæddu eðlilega á
Íslandi. En staðreyndir er sú að með
góðri mæðravernd getum við séð í
langflestum tilfellum hvaða konur
þurfa á hátæknisjúkrahúsi að halda
og hverjar ekki. Í því felst öryggið,“
segir hún.
„Ég held því fram að konum sé oft
meiri hætta búin í löngum og erfiðum
akstri sárþjáðar af verkjum með
stressaðan eiginmann undir stýri sem
oft ekur allt of greitt. Við þurfum að
skoða þessi mál vandlega, því eins og
staðan er núna þegar búið er að loka
litlu fæðingardeildunum um landið
vegna fjárskorts fer mun meira fé í
sjúkraflutninga og kostnaður og álag
á stærri stöðunum vex. Peningarnir
sem enginn dregur í efa að eru af
skornum skammti eru bara færðir
til,“ segir hún.
Ráðamenn hafa ekki skilning á
aðstæðum íbúa dreifbýlisins
Stundum hefur verið á það bent
að til að forðast akstur á síðustu
stundu geti konur verið komnar
tímanlega á þann stað þar sem fæða
eigi barnið. Sigfríður Inga segir að
slíkt henti fráleitt öllum konum og í
raun fæstum. Flestar konur fæði í 37.
viku til 41. viku meðgöngu og alls
ekki sé hægt að bjóða konum upp á
að bíða fjarri heimili sínu í nokkrar
vikur á meðan barnsins er beðið. Hún
nefnir sem dæmi bóndakonur sem
ekki eigi auðvelt með að hlaupa frá
búinu í tvær til þrjár vikur, einkum á
álagstímum í sveitinni.
„Fólk hefur ekki aðstöðu til þess,
flestir hafa nægum verkefnum að
sinna og þá hefur ráðstöfun af þessu
tagi mikinn kostnað í för með sér
sem fáir hafa ráð á. Mér finnst skorta
töluvert á að ráðamenn þessarar
þjóðar, sem mig grunar að í meirihluta
séu fjársterkir karlar í þéttbýli, hafi
skilning á þeim aðstæðum sem íbúar
á hinum strjálbýlli svæðum búa við,“
segir Sigfríður Inga.
„Gagnrýnisraddir hafa ekki verið
háværar um þessi málefni og kannski
er það af því að gagnrýni er ekki allt
of vel tekið innan heilbrigðiskerfisins.
Sem er undarlegt því orðið gagnrýni
þýðir jú rýni til gagns.“ /MÞÞ
Fæðingardeildum á Íslandi hefur fækkað um 16 á liðnum árum:
Innbyggð áhætta í kerfi sem býður upp á langan akstur
– segir Sigfríður Inga Karlsdóttir, ljósmóðir og dósent við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri
Sjúkraflutningar - kostnaður á landinu öllu
Ár Sjúkrabill Sjúkraflug Samtals
1.122.754,000
1.208.885,000
1.354.159,000
1.446.654,000
1.588.059,000
1.649.195,000
Myndir / MÞÞ