Bændablaðið - 19.09.2013, Side 21

Bændablaðið - 19.09.2013, Side 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Nú líður að vetri með válynd veður og rafmagnsleysi LEDperur ehf. er með til sölu hleðslu kastara sem hægt er að no- ta í 6 klst. á hleðslu. Þá bjóðum við ORKUbanka sem er lítið tæki sem notar 4AA rafhlöður til áfyllingar farsíma 4-5 sinnum. 10W kastari sem gefur frá sér 900lm. og dugar í 6 klst. á hleðslu kr. 14.900.- 20W kastari sem gefur frá sér 1800lm og dugar í 6 klst. á hleðslu kr 33.900.- 30W kastari sem gefur frá sér 3000lm. og dugar í 6 klst á hleðslu kr. 54.600.- 50W kastari sem gefur frá sér 5000lm. og dugar í 5 klst. á hleðslu kr. 63.000.- Þá er hægt að fá 20W kastarann í tösku og kostar það saman kr. 54.500 ORKUbankinn með 4AA rafhlöðum kr. 2.500 LEDperur ehf. – Lýsandi sparnaður UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 445-2600 og 663-8172 asgeir@ledperur.is Pantanir sem berast fyrir 1. október fá 10% afslátt. Hér á landi er í gildi reglugerð (nr. 189/1990) um innflutning og útflutning á plöntum og plöntu- afurðum þar sem finna má kröfur og reglur sem í gildi eru vegna innflutnings á plöntum og plöntuafurðum. Þar kemur m.a. fram að innflutningur er háður skilyrðum og eingöngu er heimilt að flytja inn plöntur og plöntuafurðir ef þeim fylgir opinbert heilbrigðisvottorð. Á það við um allar innfluttar plöntur eða plöntuhluta sem rækta á áfram eins og græðlinga, blómlauka, stöngul- og rótarhnýði, og kartöflur, afskorin blóm og greinar, rótarlaus barrtré og barrtrjá greinar, trjávið með berki og mold. Slíkt vottorð staðfestir að þær séu lausar við ákveðna skaðvalda sem ekki má flytja til landsins. Lista yfir þá er hægt að finna í viðauka I í reglugerðinni. Auk þess þarf leyfi frá Matvælastofnun fyrir hvern innflutning á sendingum sem innihalda plöntur eða plöntuafurðir. Reglugerðin nær ekki yfir innflutning á fræjum né plöntur ætlaðar í fiskabúr. Má flytja inn allar tegundir plantna? Nei – það ber að athuga að ekki er frjálst að flytja inn allar tegundir plantna og er í gildi bann við innflutningi á ýmsum ættkvíslum trjátegunda og ýmsum grænmetisplöntum. Óheimilt er að flytja inn birki, ösp, víði, álm, furu, greni, lerki og einnig önnur barrtré frá löndum utan Evrópu. Innflutningsbann við þessum trjátegundum á einnig við um trjávið með berki. Ekki má flytja inn plöntur sem safnað hefur verið á víðavangi eða vatnaplöntuna Elodea. Óheimilt er að flytja inn plöntur með rót af gúrku, tómati, papriku og salati. Má flytja inn jarðveg? Varðandi innflutning á jarðvegi er almenna reglan sú að óheimilt er að flytja inn jarðveg. Þó er undanskilin tvenns konar mold. Annars vegar er undanskilin mómosamold til ræktunar sem að meginhluta samanstendur af mómosa (Sphagnum). Sú mold þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Mómosamoldin þarf að vera tekin úr mógröfum þar sem ekki hefur verið ræktað áður, hún má ekki innihalda safnhaugamold, óunninn eða kurlaðan trjábörk né húsdýraáburð. Heilbrigðisvottorð þarf að fylgja moldinni við innflutning. Takmörkuð hætta er á að sjúkdómar og meindýr fylgi þessari tegund af ræktunarmold. Hins vegar er undanskilin sú mold sem fylgir rótum plantna. Í þeim tilfellum nær heilbrigðisvottorðið sem fylgir plöntunum einnig yfir þá mold sem fylgir með. Vakin er athygli á því að ef plönturnar koma frá löndum þar sem nýsjálenski flatormurinn er útbreiddur þurfa plönturnar að vera alveg lausar við mold, nema að sérstök yfirlýsing sé á heilbrigðisvottorði um að plönturnar komi frá svæði þar sem flatormurinn finnst ekki. Hvað mega ferðamenn taka með sér af plöntum? Undanþága frá innflutnings- reglum er til staðar fyrir ferðamenn og póstsendingar á milli landa. Ferðamönnum er heimilt að taka með sér eftirfarandi plöntur án heil- brigðisvottorðs, það sama gildir um póstsendingar: Vönd með afskornum blómum og greinum (allt að 25 plöntur). Blómlauka, rótar- og stöngul- hnýði frá Evrópu í órofnum verslunarumbúðum (allt að 2 kg). Einstaka pottaplöntur (inni- plöntur) frá Evrópu (3 stk.) Auk þess er við búferlaflutninga frá Evrópulandi heimilt að taka með sér pottaplöntur (inni- plöntur) sem tilheyra venjulegri búslóð (allt að 30 stk.). Undanþága þessi gildir ekki um villtar plöntur sem tíndar eru á víðavangi, trjáplöntur (með og án rótar), dvergtré (bonsai) og kartöflur. Matvælastofnun hvetur eindregið til þess að fólk fari eftir þessum reglum og taki ekki með sér plöntur eða plöntuafurðir umfram þessa undanþágu. Aukin áhætta fylgir því að taka með til landsins plöntur sem ekki hafa verið undir eftirliti. Það er í hag allra ræktenda að lágmarka hættuna á að nýir skaðvaldar berist til landsins. Almennt um innflutning plantna Heilbrigðisvottorð sem fylgja plöntum og plöntuafurðum til landsins, segja eingöngu til um að ákveðnir skaðvaldar séu ekki að finna í plöntunum eða plöntu- afurðunum en tryggir ekki að varan sé laus við allar lífverur. Ýmsar lífverur geta fylgt með vörunum en þær eru þó ekki allar taldar skaðlegar. Hinsvegar má sérstaklega líta til lífvera sem eru almennt útbreidd erlendis í ræktunarlöndunum og ef til vill ekki talin sérstaklega varasamar þar, en gætu valdið skaða eða tjóni í ræktun og á gróðri hér á landi. Þrátt fyrir strangar innflutnings- reglur hafa skaðlegar lífverur borist til landsins. Dæmi má nefna að þótt bann sé í gildi við innflutningi á ákveðnum ættkvíslum trjátegunda hafa nýlega borist til landsins t.d. ryðsveppir á víði og ösp og asparglytta. Í gildi er bann við innflutningi á helstu hýsiltegundum þessara skaðvalda, víði og ösp. Enn fremur má nefna birkikembuna sem er nýlegur landnemi hér og hefur verið áberandi í ár, en einnig er í gildi bann við innflutningi á birkiplöntum. Ekki er hægt að útiloka að asparglytta eða birkikemba hafi borist hingað sem laumufarþegar með öðrum plöntum. Ekki má heldur gleyma að aðstæður hér á landi hafa breyst á síðastliðnum árum, samgöngur milli landa hafa aukist, veðurfar hefur breyst og ræktun plantna er að verða fjölbreyttari sem getur stuðlað að því að fleiri skaðvaldar eigi meiri möguleika á að setjast hér að. Einnig er þarft að hafa í huga að ýmsir skaðvaldar geta borist með öðrum leiðum heldur en með plöntum og plöntuafurðum, t.d. með vindi og fuglum, með öðrum varningi, gámaflutningum og fólki. Erfitt getur reynst að útiloka alveg tilkomu nýrra lífvera til landsins, en hægt er að takmarka áhættuna með ákveðnum innflutnings reglum. Nú stendur yfir endurskoðun á reglugerð um innflutning og útflutning plantna og plöntu- afurða á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. En Ísland hefur skuldbundið sig með aðild að alþjóðasamningum um plöntuvernd að beita ekki reglum um plöntuheilbrigði nema að þær séu tæknilega réttlætanlegar og rökstuddar. Matvælastofnun sér um að lögum og reglugerðum um plöntuheilbrigði sé framfylgt. Heimild: MAST Innflutningsreglur plantna og plöntuafurða Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610 Schaffer 2024 SLT Verð frá kr. 3.190.000,- án vsk. Með skóflu og greip Schaffer liðléttingarnir eru liprar og öflugar vinnuvélar sem bjóða upp á mikla notkunarmöguleika - mest seldi liðléttingur á Íslandi Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 480 0400 Ve rð e ru b irt m eð fy rir va ra u m in ns lá tt ar vi llu r.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.