Bændablaðið - 19.09.2013, Page 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013
Nú líður að vetri með válynd veður og rafmagnsleysi
LEDperur ehf. er með til sölu
hleðslu kastara sem hægt er að no-
ta í 6 klst. á hleðslu. Þá bjóðum við
ORKUbanka sem er lítið tæki sem
notar 4AA rafhlöður til áfyllingar
farsíma 4-5 sinnum.
10W kastari sem gefur frá sér 900lm. og dugar í 6 klst. á hleðslu kr. 14.900.-
20W kastari sem gefur frá sér 1800lm og dugar í 6 klst. á hleðslu kr 33.900.-
30W kastari sem gefur frá sér 3000lm. og dugar í 6 klst á hleðslu kr. 54.600.-
50W kastari sem gefur frá sér 5000lm. og dugar í 5 klst. á hleðslu kr. 63.000.-
Þá er hægt að fá
20W kastarann í
tösku og kostar
það saman kr.
54.500
ORKUbankinn
með 4AA rafhlöðum
kr. 2.500
LEDperur ehf. – Lýsandi sparnaður
UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 445-2600 og 663-8172
asgeir@ledperur.is
Pantanir sem
berast fyrir
1. október fá
10% afslátt.
Hér á landi er í gildi reglugerð
(nr. 189/1990) um innflutning og
útflutning á plöntum og plöntu-
afurðum þar sem finna má
kröfur og reglur sem í gildi eru
vegna innflutnings á plöntum
og plöntuafurðum. Þar kemur
m.a. fram að innflutningur er
háður skilyrðum og eingöngu
er heimilt að flytja inn plöntur
og plöntuafurðir ef þeim fylgir
opinbert heilbrigðisvottorð. Á það
við um allar innfluttar plöntur eða
plöntuhluta sem rækta á áfram eins
og græðlinga, blómlauka, stöngul-
og rótarhnýði, og kartöflur,
afskorin blóm og greinar, rótarlaus
barrtré og barrtrjá greinar, trjávið
með berki og mold. Slíkt vottorð
staðfestir að þær séu lausar við
ákveðna skaðvalda sem ekki má
flytja til landsins.
Lista yfir þá er hægt að finna í
viðauka I í reglugerðinni. Auk þess
þarf leyfi frá Matvælastofnun fyrir
hvern innflutning á sendingum sem
innihalda plöntur eða plöntuafurðir.
Reglugerðin nær ekki yfir
innflutning á fræjum né plöntur
ætlaðar í fiskabúr.
Má flytja inn allar tegundir
plantna?
Nei – það ber að athuga að ekki er frjálst
að flytja inn allar tegundir plantna
og er í gildi bann við innflutningi á
ýmsum ættkvíslum trjátegunda og
ýmsum grænmetisplöntum. Óheimilt
er að flytja inn birki, ösp, víði, álm,
furu, greni, lerki og einnig önnur
barrtré frá löndum utan Evrópu.
Innflutningsbann við þessum
trjátegundum á einnig við um trjávið
með berki. Ekki má flytja inn plöntur
sem safnað hefur verið á víðavangi
eða vatnaplöntuna Elodea. Óheimilt
er að flytja inn plöntur með rót af
gúrku, tómati, papriku og salati.
Má flytja inn jarðveg?
Varðandi innflutning á jarðvegi er
almenna reglan sú að óheimilt er að
flytja inn jarðveg. Þó er undanskilin
tvenns konar mold.
Annars vegar er undanskilin
mómosamold til ræktunar sem
að meginhluta samanstendur af
mómosa (Sphagnum). Sú mold
þarf að uppfylla ákveðin skilyrði.
Mómosamoldin þarf að vera tekin úr
mógröfum þar sem ekki hefur verið
ræktað áður, hún má ekki innihalda
safnhaugamold, óunninn eða
kurlaðan trjábörk né húsdýraáburð.
Heilbrigðisvottorð þarf að
fylgja moldinni við innflutning.
Takmörkuð hætta er á að sjúkdómar
og meindýr fylgi þessari tegund af
ræktunarmold.
Hins vegar er undanskilin sú mold
sem fylgir rótum plantna. Í þeim
tilfellum nær heilbrigðisvottorðið
sem fylgir plöntunum einnig yfir
þá mold sem fylgir með. Vakin er
athygli á því að ef plönturnar koma
frá löndum þar sem nýsjálenski
flatormurinn er útbreiddur þurfa
plönturnar að vera alveg lausar við
mold, nema að sérstök yfirlýsing sé á
heilbrigðisvottorði um að plönturnar
komi frá svæði þar sem flatormurinn
finnst ekki.
Hvað mega ferðamenn taka með
sér af plöntum?
Undanþága frá innflutnings-
reglum er til staðar fyrir ferðamenn
og póstsendingar á milli landa.
Ferðamönnum er heimilt að taka
með sér eftirfarandi plöntur án heil-
brigðisvottorðs, það sama gildir um
póstsendingar:
Vönd með afskornum blómum
og greinum (allt að 25 plöntur).
Blómlauka, rótar- og stöngul-
hnýði frá Evrópu í órofnum
verslunarumbúðum (allt að 2 kg).
Einstaka pottaplöntur (inni-
plöntur) frá Evrópu (3 stk.)
Auk þess er við búferlaflutninga
frá Evrópulandi heimilt að taka
með sér pottaplöntur (inni-
plöntur) sem tilheyra venjulegri
búslóð (allt að 30 stk.).
Undanþága þessi gildir ekki
um villtar plöntur sem tíndar eru á
víðavangi, trjáplöntur (með og án
rótar), dvergtré (bonsai) og kartöflur.
Matvælastofnun hvetur eindregið
til þess að fólk fari eftir þessum
reglum og taki ekki með sér plöntur
eða plöntuafurðir umfram þessa
undanþágu. Aukin áhætta fylgir því
að taka með til landsins plöntur sem
ekki hafa verið undir eftirliti. Það
er í hag allra ræktenda að lágmarka
hættuna á að nýir skaðvaldar berist
til landsins.
Almennt um innflutning plantna
Heilbrigðisvottorð sem fylgja
plöntum og plöntuafurðum til
landsins, segja eingöngu til um
að ákveðnir skaðvaldar séu ekki
að finna í plöntunum eða plöntu-
afurðunum en tryggir ekki að
varan sé laus við allar lífverur.
Ýmsar lífverur geta fylgt með
vörunum en þær eru þó ekki allar
taldar skaðlegar. Hinsvegar má
sérstaklega líta til lífvera sem
eru almennt útbreidd erlendis í
ræktunarlöndunum og ef til vill
ekki talin sérstaklega varasamar
þar, en gætu valdið skaða eða tjóni
í ræktun og á gróðri hér á landi.
Þrátt fyrir strangar innflutnings-
reglur hafa skaðlegar lífverur borist
til landsins. Dæmi má nefna að þótt
bann sé í gildi við innflutningi á
ákveðnum ættkvíslum trjátegunda
hafa nýlega borist til landsins
t.d. ryðsveppir á víði og ösp og
asparglytta. Í gildi er bann við
innflutningi á helstu hýsiltegundum
þessara skaðvalda, víði og ösp. Enn
fremur má nefna birkikembuna
sem er nýlegur landnemi hér og
hefur verið áberandi í ár, en einnig
er í gildi bann við innflutningi
á birkiplöntum. Ekki er hægt
að útiloka að asparglytta eða
birkikemba hafi borist hingað
sem laumufarþegar með öðrum
plöntum.
Ekki má heldur gleyma að
aðstæður hér á landi hafa breyst
á síðastliðnum árum, samgöngur
milli landa hafa aukist, veðurfar
hefur breyst og ræktun plantna er
að verða fjölbreyttari sem getur
stuðlað að því að fleiri skaðvaldar
eigi meiri möguleika á að setjast
hér að. Einnig er þarft að hafa í
huga að ýmsir skaðvaldar geta
borist með öðrum leiðum heldur
en með plöntum og plöntuafurðum,
t.d. með vindi og fuglum, með
öðrum varningi, gámaflutningum
og fólki. Erfitt getur reynst að
útiloka alveg tilkomu nýrra
lífvera til landsins, en hægt er að
takmarka áhættuna með ákveðnum
innflutnings reglum.
Nú stendur yfir endurskoðun
á reglugerð um innflutning og
útflutning plantna og plöntu-
afurða á vegum Atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytisins. En
Ísland hefur skuldbundið sig með
aðild að alþjóðasamningum um
plöntuvernd að beita ekki reglum
um plöntuheilbrigði nema að þær
séu tæknilega réttlætanlegar og
rökstuddar. Matvælastofnun sér
um að lögum og reglugerðum um
plöntuheilbrigði sé framfylgt.
Heimild: MAST
Innflutningsreglur plantna og plöntuafurða
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610
Schaffer 2024 SLT
Verð frá kr. 3.190.000,- án vsk.
Með skóflu og greip
Schaffer liðléttingarnir eru liprar og
öflugar vinnuvélar sem bjóða upp á
mikla notkunarmöguleika
- mest seldi liðléttingur á Íslandi
Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 480 0400
Ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
in
ns
lá
tt
ar
vi
llu
r.