Bændablaðið - 19.09.2013, Side 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013
Í bænum Langley í Bresku
Kolumbíu í Kanada, skammt austan
Vancouver, er rekið hjálparstarf
sjálfboðaliða fyrir nauðstatt fólk
víða um heim. Starfsemin nefnist
Global Emergency Missions
Society, eða GEMS, og er stýrt af
fjölskylduráðgjafanum Indriða
Arnari Kristjánssyni, sem fæddur
er og uppalinn á Ísafirði. Hann
er giftur kanadískri konu, doktor
Carolyn Mercer, en þau hafa átt
heima í Bresku Kólumbíu í 19 ár.
Þau búa nú í 130 þúsund manna
bæjarfélagi sem heitir Abbotsford,
nokkru austan við Vancouver og rétt
norðan landamæra Bandaríkjanna.
Eiga þau tvö börn, dótturina Lindu
Marie, sem er barnakennari,
og soninn Jonathan, en hann er
verkfræðingur.
Viðamikil starfsemi
GEMS var stofnað í Langley í bresku
Kólumbíu árið 2003. Var það í kjölfar
þess að nokkrir einstaklingar á svæðinu
fóru að velta því fyrir sér hvernig þeir
gætu best orðið að liði til hjálpar fólki
í hörmungum sem þá höfðu komið upp
í Úkraínu. Nokkrir úr hópnum höfðu
þá kynnt sér ástandið af eigin raun.
Ljóst var að þörf var á fatnaði, teppum,
mat, lækningatækjum, húsnæði og
tækjabúnaði til að byggja hús. Farið var
í söfnun á búnaði í bæjum og borgum
og komið var upp aðstöðu í vöruhúsi
í Langley. Þar var nauðþurftunum
pakkað af sjálfboðaliðum og þær settar
í gáma til útskipunar. Þetta verkefni
áhugafólks í Kanada hlóð síðan utan
á sig og sjónum var beint að fólki í
öðrum löndum sem þurfti líka á aðstoð
að halda. Frá GEMS hafa síðan verið
sendir yfir 100 gámar af fatnaði og
alls konar búnaði til 22 landa í fimm
heimsálfum.
Byggt á starfi sjálfboðaliða
Starfsemi GEMS er því orðin
nokkuð viðamikil og er fatnaður
og ýmis tæki send til svæða þar
sem fólk hefur meðal annars verið
illa leikið eftir jarðskjálfta, þurrka,
stríðsátök eða aðrar hörmungar. Stór
hluti hjálpargagnanna sem fara frá
GEMS nú eru send til ríkja í Mið og
Suður-Ameríku eins og El Salvador,
Gvatemala og Haítí, en einnig fer
umtalsvert magn til Afríku og jafnvel
til ríkja innan Evrópusambandsins.
Eins og hjálparsamtökin Gleaners
Society byggir starfsemi GEMS
á framlagi sjálfboðaliða. Mikið
og gott samstarf er reyndar á milli
þessara samtaka. Segir Indriði engin
vandkvæði á að fá fólk af svæðinu til að
leggja fram vinnu sína án endurgjalds
í annarra þágu. Flest þetta fólk komi
frá félögum kristinna safnaða en
einnig komi fjöldi einstaklinga sem
hættir séu störfum á vinnumarkaði
en vilji leggja starfskrafta sína af
mörkum fyrir góðgerðarsamtök af
ýmsu tagi. Eins fái GEMS oft hjálp
frá fólki sem er í endurhæfingu á
meðferðarheimilum.
GEMS er alls með 15 útibú í Bresku
Kólumbíu, Alberta og Saskatchewan
sem reglulega senda hjálpargögn til
Langley.
Þegar blaðamaður Bændablaðsins
heimsótti Indriða hjá GEMS voru þar
inni á gólfi stórar pakkningar af fatnaði
og öðrum búnaði sem senda átti til
Rúmeníu, Moldóvu og þjáðra íbúa á
jarðskjálftasvæðum í Gvatemala.
Fyrirtæki dugleg að leggja
þeim lið
Indriði segir að fatnaðurinn sem
þangað kemur komi meðal annars
frá verslunum og fataframleiðendum
auk þess sem einstaklingar séu
duglegir við að senda þeim fatnað
líkt og þekkist hjá Rauða krossinum á
Íslandi. Margvíslegur tækjabúnaður
fer einnig í gegnum þeirra hendur
eins og notaðar saumavélar sem
gerðar hafa verið upp á verkstæði,
en án endurgjalds. Þar getur einnig
verið um að ræða lækningabúnað,
vatnsdælur, hjólastólar, rafskutlur,
reiðhjól, landbúnaðartæki, bíla og
fleira.
Allur þessi búnaður er yfirfarinn
og flokkaður af sjálfboðaliðum
og sendur með gámum þangað
sem þörf er á. Í húsnæði GEMS í
Langley gat meðal annars að líta
stæðu efnisstranga í ýmsum litum
sem framleiðandi þurrbúninga
fyrir kafara hafði sent. Var Indriði
að reyna að finna út hvort einhver
hefði þörf fyrir slíkt efni, eða hvort
eitthvert saumafyrirtæki gæti nýtt
það til að búa til vöru sem gæti
komið að gagni fyrir hjálparstarfið.
Það útheimtir því oft mikla
útsjónarsemi að finna hvar þörfin er
brýnust fyrir fatnað og annan búnað og einnig hvernig er hægt að koma
honum á áfangastað með sem hag-
kvæmustum hætti.
Hefur uppskorið þakklæti og
viðurkenningar víða um lönd
Indriði segist hafa uppskorið mikið
þakklæti víða um lönd fyrir það
starf sem hann og hans fólk í GEMS
hefur verið að vinna. Sem virðingar-
vott var hann meira að segja sæmdur
heiðursmerki á síðasta ári af David
Barahona, borgarstjóra í bænum
Jiquilisco í El Salvador, og veitt
viðurkenningarskjal fyrir að hjálpa
íbúum landsins.
Kynntur fyrir innviðum í
rússnesku fangelsi
Ekki gengur alltaf vandræðalaust
að koma sendingunum til skila og
hefur Indriði því stundum þurft að
fara sjálfur á svæðið til að fylgja
sendingunum eftir. Þá getur oft
verið um að ræða vandkvæði við
tollafgreiðslu hjálpargagna og
stundum spilar spilling meðal
embættismanna í viðkomandi
löndum þar inn í.
Indriði hefur líka fengið sinn
skerf af margvíslegum hremmingum
á þessum ferð sínum. Hann kvartar
samt ekki þó að honum hafi meira
að segja verið varpað í fangelsi
í Rússlandi vegna tortryggni
yfirvalda um störf sín. Hann segir að
það hafi verið sérkennileg upplifun,
en fangaklefinn var einangraður
og leðurklæddur svo þaðan bærust
engin hljóð. Þá var hurðinni
lokað með þreföldum voldugum
öryggislás.
Stundum hefur hann líka þurft að
koma heim til Kanada, fremur illa til
reika, eftir ferðir með hjálpargögn,
haltrandi við staf og eitt sinn meira
að segja í hjólastól. /HKr.
Ísfirðingur við stjórnvölinn hjá hjálparsamtökunum Global Emergency Missions Society á vesturströnd Kanada:
Sendir fatnað og ýmis hjálpargögn
til hrjáðs fólks í fimm heimsálfum
að aðstoða nauðstadda í El Salvador.
Þessi mynd var tekin nýlega af
ungri stúlku í Gvatemala að taka við