Bændablaðið - 19.09.2013, Page 24

Bændablaðið - 19.09.2013, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Margrét Jónsdóttir Njarðvík rekur litla ferðaskrifstofu undir nafninu Mundo. Nú í október er hún m.a. að bjóða upp á ferð til Spánar sem gætu hentað ferðaþjónustubændum sérstaklega vel. Þar geta menn lært spænsku jafnhliða því að fá innsýn í hvernig ferðaþjónustan í jaðarhéruðum Spánar tekur á móti gestum. Auk þess að stunda ferðamennsku bæði á Spáni og á Íslandi ásamt því að bjóða upp á alþjóðlega ráðgjöf kennir Margrét spænsku. Hún er með masterspróf í rekstrarstjórnun, er doktor í spænsku og jafnframt vararæðismaður Spánar á Íslandi. Hún hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig eigi ekki að haga ferðaþjónustu, sér í lagi á Íslandi þar sem verið er að leggja mikið undir í uppbyggingu ferðaþjónustunnar. Margrét segir mikilvægt fyrir fólk í íslenskri ferðaþjónustu að kynna sér hvernig aðrar þjóðir geri hlutina. Á Spáni sé t.d. mikil reynsla og þar geti fólk kynnt sér hvaða mistök Spánverjar hafi gert í ferðaþjónustunni og hvað þeir séu að gera vel. Henni finnst umhugsunarvert að Íslendingar séu uppteknir af að auka stöðugt innflutning ferðamanna en gleymi því sem skipti mestu máli, að þjónusta ferðamennina með sómasamlegum hætti. Segir hún að víða sé pottur brotinn í þeim efnum á Íslandi og slíkt spyrjist út um allan heim. Alltaf hægt að gera betur „Þetta er spurning um á hvaða skala við viljum hafa ferðaþjónustuna hjá okkur og hversu auðvelt og æskilegt það er að fara úr því að vera sæmilegur eða góður yfir í það að vera frábær og í takt við okkar dásamlegu náttúru. Þegar við náum því að vera frábær er hægt að réttlæta hátt verðlag og fólkinu sem starfar við þetta líður um leið mikið betur í starfi.“ Margrét segist alls ekki vilja alhæfa um að ferðaþjónusta á Íslandi. Fyrirtækin og einstaklingarnir sem að þessari þjónustu komi séu eins misjafnir og þeir eru margir. Því megi finna í allri flórunni hreint frábæra staði þar sem gestum er sinnt af mikilli alúð og fagmennsku. Með sumarbúðir fyrir ungmenni á Spáni Margrét hefur langa reynslu sem leiðsögumaður og segist hafa byrjað rekstur Mundo á því að vera með sumarbúðir fyrir 14 til 18 ára íslenska unglinga á Spáni. Þá undirrita ungmennin yfirlýsingu um að þau snerti hvorki áfengi né tóbak meðan á dvölinni stendur. „Þetta hefur gengið ótrúlega vel og þetta er þriðja árið sem ég er með þetta. Ég byggi þetta á samböndum í þorpinu Zafra í Extremadura á Spáni þar sem ég var sjálf skiptinemi á árum áður. Vinkona mín velur fyrir mig fjölskyldur á Spáni til að taka við íslenskum ungmennum. Í stað þess að borga fjölskyldunum beint fyrir þessa þjónustu býð ég spænsku ungmennunum í fjölskyldunum á enskunámskeið og leiðtoganámskeið. Íslensku krakkarnir eru á spænskunámskeiði og leiðtoganámskeiði og saman fara hóparnir í skoðunarferðir og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. Samræmist það vel kjörorðum Mundo sem eru menntun, skemmtun, menning og þjálfun.“ Sumarbúðirnar eru lífsbreytandi pakki sem hefur gengið mjög vel enda fá foreldrar tækifæri til að senda börnin sín erlendis í algerlega öruggri umgjörð. Ánægja þeirra leynir sér heldur ekki. Extremadura er jaðarhérað á Spáni, norðvestur af Andalúsíu og við landamæri Portúgals. Þar er framleitt megnið af rafmagninu fyrir norðurhluta Spánar. „Þar er líka að finna bestu fjallaskinkuna á Spáni, en þarna ganga svörtu svínin sem notuð eru í hana frjáls og nærast m.a. á akarni. Íbúar eru að byrja að láta til sín taka í túrisma. Það gera þeir með því að bjóða bara upp á það sem er ekta og vinna með það sterkasta úr sinni menningu. Nú verð ég einmitt með tveggja vikna búðir í þessu héraði í haust þar sem gist verður í gömlu klaustri og farið þaðan í mismunandi gönguferðir við sólarupprás á hverjum einasta Íslendingar þurfa að staldra við og taka sig verulega á í ferðaþjónustunni: Förum okkur hægar og gerum hlutina vel, þannig að eftir verði tekið og um talað – „Hlustum á kúnnann,“ segir Margrét Jónsdóttir Njarðvík, eigandi ferðaskrifstofunnar Mundo Margrét Jónsdóttir Njarðvík, eigandi ferðaskrifstofunnar Mundo, segir að ýmislegt megi bæta í þjónustu við ferðamenn á Íslandi. Mynd / HKr. Extremadura er jaðarhérað á Spáni, norðvestur af Andalúsíu og við landamæri Portúgals. Þar er framleitt megnið af rafmagninu fyrir norðurhluta Spánar. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, eigandi ferðaskrifstofunnar MUNDO, með hóp spænskra ferðalanga við Ófærufoss.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.