Bændablaðið - 19.09.2013, Page 27

Bændablaðið - 19.09.2013, Page 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 skerpir alla hnífa, axir, sláttuvélablöð, skóflur. Dreifing: WORKSHARP HNÍFABRÝNIÐ fara skipafélögin hvert af öðru alveg í límingunum og halda að ímyndin þeirra fari í steik nema þeir taki undir.“ Monnípeningar og samsæri „Sjálfur er ég hallur undir þá kenningu að Nixon hafi skapað þetta skrímsli, hann vildi draga athyglina eins mikið og hann gat frá Víetnamstríðinu og fór að magna þessi hvalamál upp, þá fór allt þetta „anti-save the whale“ í gang og þeir fengu stuðning. Í dag er þetta ekki bara ein grúppa heldur hellingur af þeim og þeir slást eins og hundar og kettir sín á milli til þess að fá pening, þetta er bara monní. En þessi umræða er ekki nærri því sú sama og þetta var þá, þetta er alveg dautt mál í dag. Þú getur alveg eins talað við steinana hérna úti eins og að tala við þetta lið, en ég er farinn að rekast á fleiri greinar í erlendum fjölmiðlum þar sem efasemdir eru um málflutning friðunarsinna um að hvalir séu í útrýmingarhættu. Þeir eru búnir að tauta þetta í fjörutíu ár.“ Nauðsynlegt verður að grisja í framtíðinni Kristján rifjar upp að fyrsta iðnbyltingin á Íslandi hafi átt sér stað með hvalveiðum á Vestfjörðum og að veiðarnar hafi verið allt of miklar og stofnarnir ekki þolað áganginn. „Menn vissu ekki betur þá. En svo safnast í sarpinn þekking og með því að telja hvali, taka eggjastokka og eistu er hægt að fylgjast með viðkomunni. Í dag þyrfti að leggja mikið á sig til að útrýma hvalnum, ég myndi allavega ekki taka þátt í því. Svo lengi sem þetta er sjálfbært áttu að veiða hvali, þeir eiga unga og hafa ekki uppgötvað pilluna ennþá og smokkinn, svo þeim fjölgar. Þú framleiðir vesen með því að veiða ekki. Ég tek dæmi því mér finnst oft skemmtilegt að koma með líkingar: ef þú myndir láta eins og tíu merar og tíu fola vera á útigangi í Reykjavík og það mætti enginn snerta hrossin líkt og kýrnar á Indlandi, þau mættu fara í alla garða og éta eins og þau vildu, þeim myndi auðvitað fjölga. Eftir tuttugu ár yrði þetta katastrófa. Það sama gerist í hafinu en það sést ekki eins glatt og á landi.“ Þá spyr tíðindamaður Kristján að því hvort ekki hafi verið ágætt jafnvægi í hafinu áður en gufuskip komu til sögunnar? Hann svarar því með hornauga. En er það satt sem andstæðingarnir segja að kjötið sé selt í háklassa hundafóður? „Ekki mér vitanlega. Fram undir 1970 fór mest allt kjötið frá okkur í dýrafóður í Bretlandi, en svo fóru Japanirnir að koma inn í þetta. Ef þú selur vöru í búð veistu ekki hvað verður um hana. Eru allar fiskbúðir hunda- og kattabúðir? Einhver kona kemur og kaupir flak af ýsu og eldar fyrir sig og gefur kettinum með sér, er þetta þá orðin hunda- og kattaverslun?“ Hvað sem öllum hundum líður er það staðreynd að Japanir borða kjötið og spikið með góðri lyst, hvalbeikon er vinsælt, rengi úr sporðinum og sérstaklega þykir tungan vera lostæti.“ Hvalir á borðum Íslendinga frá upphafi landnáms Andstaða við hvalveiðar er ekki ný af nálinni, þó að nýtt sé að andstaðan sé af mannúðar- og útrýmingarástæðum. Þegar Baskar, Hollendingar og aðrar erlendar þjóðir veiddu hér við land á leið sinni til og frá Svalbarða á 17. öld til að ná sér í sléttbakslýsi var það ekki vinsælt hjá sumum fiskimönnum, sem töldu að hvalurinn sæi um að reka fiskitorfur inn á firðina. Einnig var hvalurinn illa nýttur og heilmiklu kjöti hent í sjóinn, sökk það til botns og héldu margir að fiskurinn tæki ekki á færi þar sem hann hefði nóg fyrir sig og sína með því að narta í hvalhræin. Það er hins vegar ekki rétt sem hvalfriðunarsinnar segja að Íslendingar hafi ekki veitt hval og engin hefð sé fyrir því fyrr en fyrst um miðja 20. öldina. Hvalveiðar urðu hins vegar ekki sjálfstæð atvinnugrein á meðal Íslendinga fyrr en á 20. öldinni. Fyrir utan hvalreka, sem þótti góðar fréttir í gamla daga, má ætla af lögbókunum Grágás og Jónsbók, en sú síðarnefnda var lögtekin á Alþingi árið 1281, að hvalir hafi bæði verið skutlaðir og reknir á land. Þegar hvalur gekk inn á fjörð söfnuðust menn á báta og ráku þá á land með grjótkasti, en talið var að hvalurinn óttaðist mjög að fá hnullung í blástursgatið. Heimildir eru um að Íslendingar hafi skutlað hvali á miðöldum, notað afurðirnar innanlands og flutt út. Á síðari hluta 18. aldar hnignaði mjög hvalveiðum Íslendinga en þær lögðust ekki af með öllu. Á 19. öld veiddu Arnfirðingar til dæmis kálfa steypireyðarinnar, en þær gengu inn á fjörðinn um vertíðarlok. Rétt er hinsvegar að segja að veiðiaðferðir Íslendinga hafi verið ómannúðlegar, svo notast sé við orð sem var óþarfi fyrr á öldum, en það gat tekið hvalina 2-3 daga að drepast úr blóðeitrun með skutulinn í sér áður en þeir náðust á land. Með nútíma veiðiaðferðum tekur það hvalinn þó aðeins nokkrar sekúndur upp í fimm mínútur að drepast. „Þeir segja að þetta sé svo „krúl“. Það er eitt argúmentið sem byrjaði fyrir nokkrum árum og veiðarnar megi ekki eiga sér stað af mannúðar ástæðum. Þessi hvalur hér,“ segir Kristján og bendir á feng dagsins, „er með einn skutul og hann er steindauður um leið, það er sprengja framan á. Þú ert ekki tvo til þrjá tíma með hann í línunni eins og antí-liðið heldur alltaf fram. Menn reyna að vanda sig að skjóta inn í brjóstholið og það er svo mikið trukk þarna inni að það rífur allar æðarnar og hann er algjörlega meðvitundarlaus. En það getur verið að þú hittir ekki alveg í fyrsta, en þá skýturðu öðrum skutli og drepur hann.“ Mikil ásókn í hvali frá lokum miðalda og fram til ársins 1970 var vegna spiksins eins og segir í bókinni Hvalveiðar við Ísland eftir Trausta Einarsson. Lýsið var mikilvægur ljósgjafi, það var notað sem feitmeti, við sútun á skinnum, í smurningu, kerti og sápur. Hvalskíðin voru um nokkurt skeið vinsæl í ákveðna gerð kjóla sem heita krínólínur. Jarðolía og rafmagn komu þó í stað lýsisins, og plast í stað hvalskíðanna á 20. öld. Vistvænar, sjálfbærar og skemmtilegar veiðar? Nú til dags er erfitt að losna við lýsið, en fyrirtækið Hvalur hf. notar 25% lýsi á móti þykkustu svartolíunni á gufuskipin Hval 8 og 9. „Við erum með 25% „bio-heavy fuel“. Í Evrópusambandinu þykir fínt af hafa 3% eða 5% svo við erum margsinnis betri en það, ef við viljum nota þá viðmiðum. En antí- liðið verður alveg brjálað þegar það heyrir þetta, þeir eru allir fyrir lífdísil, en ekki úr hval!“ segir Kristján. Spurður hvort þetta sé ekki skemmtileg veiði reynir Kristján að gera sem minnst úr því. „Skytturnar hafa verið lengi hjá okkur og voru í gamla daga áður en við hættum. Ætli bóndanum finnist ekki gaman að vera í búskap? Þetta er bara eins og hver önnur vinna. En sumir hvalir láta ekki ná sér, ef þeir eru á þannig ferð að mannskapurinn hefur ekki við þeim, koma niður hér og upp aftur þarna, ganga óreglulega, þá er bara leitað að öðrum og hvalurinn hefur vinninginn. Hann á mikinn séns.“ Tíðindamaður stingur að lokum upp á því hvort Kristján geti ekki flaggað hugtakinu fæðuöryggi til að réttlæta veiðarnar enn frekar? Til dæmis ef til þriðju heims- styrjaldarinnar kæmi, og gert þá eins og Japanir eftir seinni heimsstyrjöld og hafið hvalveiðar af krafti til að fæða hungraða og stríðshrjáða þjóð. En Kristján telur enga hættu á þriðju heimsstyrjöld í bráð. „Mér finnst nú umræðan hálf hjákátleg. Það þýðir ekki að ég sé á móti framleiðslu á Íslandi, en ef þú ætlar að réttlæta allt á altari einhvers fæðuöryggis held ég að hlutirnir fari í andhverfu sína. Ísland byggist á því að geta verslað við aðrar þjóðir, ef við gætum ekki flutt út fisk þá væri ansi hart í ári. Ef allar þjóðir tækju upp þá stefnu, bara fæðuöryggi og ekki kaupa af neinum, þá held ég að menn yrðu ansi hart úti hér.“ /Níels Rúnar Gíslason Heimildir: Trausti Einarsson. 1987. Hvalveiðar við Ísland 1600-1939. Whale and Dolphin Conservation. „Stop Iceland killing endangered whales“ http://uk.whales.org/en/ campaigns/stop-iceland-killing- endangered-whales Elizabeth Batt. „Iceland resumes endangered fin whale hunts“. Digital Journal, 21. júní 2013. Meira í leiðinniN1 VERSLANIR | N1 BÍLAÞJÓNUSTA | SÍMI 440 1100 | WWW.N1.IS BANNER STARTGEYMAR Í FLESTAR GERÐIR FARARTÆKJA Banner startgeymar í allar stærðir ökutækja t.d. mótorhjól, fjórhjól, vélsleða, dráttarvélar, vörubíla, vinnuvélar, jeppa og fólksbíla. Eigum einnig til start- og neyslugeyma fyrir báta, fellihýsi og hjólhýsi. Banner geymar eru framleiddir í evrópu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.