Bændablaðið - 19.09.2013, Side 30

Bændablaðið - 19.09.2013, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Úttekt: Fjallahjólaferðamennska Ferðaþjónusta á Íslandi er þjóð félaginu mikilvæg á ýmsa vegu, ekki síst í fjárhagslegu tilliti. Er svo komið í dag að gjaldeyristekjur ferða- þjónustunnar eru taldar jafnast á við það sem sjávarútvegurinn skilar í þjóðarbúið. Í fyrra skilaði ferða þjónustan næst mestum gjaldeyris tekjum, á eftir sjávarútvegnum, og er búist við að ferðaþjónustan fari í fyrsta skiptið í sögunni fram úr á þessu ári. Vaxtar möguleikar ferða- mennskunnar hafa verið ákjósan- legir á síðustu árum og greinin tekið stakkaskiptum í samræmi við það. Hún er þó enn í tals- verðri mótun og virðist eiga tals- vert inni enda liggja tækifærin víða – vankantar eru sniðnir af og vaxtar sprotar spretta fram. Ört vaxandi grein á Bretlandseyjum Á Bretlandseyjum er fjallahjóla- ferðamennska ört vaxandi grein. Talið er að fjöldi Breta sem leggur það í vana sinn að ferðast á fjallahjólum upp um fjöll og firnindi sé meira en 5,5 milljónir. Í Wales er sérstaklega mikil gróska í þessum málum og fjölgaði slíku ferðafólki þar um 160 þúsund á árunum frá 2004 til 2011. Á Bretlandseyjum hafa verið byggðar upp miðstöðvar á hentugum landsvæðum; sumar á vegum hins opinbera, en einnig hafa þarlendir landeigendur og bændur gripið gæsina og komið upp aðstöðu fyrir fjallahjólagarpana. Tækifæri á Íslandi Þá vaknar sú spurning, hvort þarna séu tækifæri fyrir bændur á Íslandi – þar sem landslagi svipar hér í ýmsu til þess sem gerist í Wales og víða annars staðar á Bretlandseyjum. Til mikils er að vinna ef marka má velgengnina þar í landi. Á árunum 2006 og 2007 tóku þarlendir ferðaþjónustaðilar að meðaltali 24 milljónir punda árlega af fjallahjólaferðamönnum frá Bretlandseyjum. Þá hefur það sýnt sig þar að fjallahjólamennska er mjög stöðug grein og stendur frekar af sér efnahagsþrengingar en aðrar greinar ferðamennsku. Ekki spillir heldur fyrir möguleikum greinarinnar að hún hefur yfir sér vistvæna og heilsusamlega ímynd. Kjörlendi fyrir þessa íþrótt er einmitt bændalöndin margvísleg; með ávölum ásum, hálsadrögum, fjölskrúðugum fjöllum og fellum. Skyldi uppbygging á þess konar ferðamennsku hafa komið til tals meðal bænda í ferðaþjónustu á Íslandi? Vettvangsferðir til Bretlands Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda (FB), telur að töluverðir möguleikar séu fyrir bændur í hjólaferðamennsku. „Það ætti ekki að kosta svo mikið að starta útgerð en það mun skapa vinnu og gæti aukið nýtingu á gistingu – sérstaklega utan háannatíma.“ Hann segir að málið hafi verið tekið til skoðunar innan FB og farnar hafi verið tvær vettvangsferðir til Norður-Englands og Skotlands til að kynna sér fjallahjólaferðamennsku þar í löndum. Hann segir að unnar hafi verið greinargerðir í kjölfar heimsóknanna sem varpi ljósi á möguleika Íslendinga í þessum málum. Stefán Tryggvason, frá Hótel Natur, Þórisstöðum á Svalbarðsströnd, tók saman greinargerð fyrir uppskeruhátíð Félags ferðaþjónustu bænda og Ferðaþjónustu bænda á síðasta ári, í kjölfar ferðar á vegum Íslandsstofu um landamærahéruð Englands og Skotlands í október 2012. Bergþóra Reynisdóttur í Fögruhlíð í Fljótshlíð fjallaði um sömu ferð frá sjónarhorni ferðamannsins, auk þess að greina stöðu hjólaferðamennsku á Íslandi í dag. Bæði hafa þau ágæta reynslu af hjólaferðamennsku á sínum bæjum. Í greiningu Bergþóru segir: „Hjólaferðamennska á Íslandi er lítil í sniðum og byggir að mestu leiti á einstaklingsframtakinu, þ.e.a.s. hjólaleigur í einkaeign þar sem einnig er boðið uppá styttri hjólaferðir undir leiðsögn. Ekki er til neitt heildstætt skipulag, merktar hjólaleiðir, álagstengd svæði né samtök sem halda utan um hjólaferðamennsku á Íslandi. Íslendingar hafa klúbba eins og t.d. Íslenski fjallahjólaklúbburinn þar sem markmiðið er að stuðla að auknum hjólreiðum, farið er í dagsferðir yfir sumarmánuðina og reglulegir fundir eru haldnir yfir veturinn til að fræða áhugasama hjólaunnendur,“ segir í greiningu Bergþóru. „Þessa dagana er verið að vinna að undirbúningi að stofnun samtaka ferðaþjónustuaðila sem hafa áhuga á að bjóða uppá hjólaferðamennsku. Innan þessara samtaka gætu F.B átt erindi til að byggja upp hjólaferðamennsku á Íslandi, en nokkrir gististaðir samtakanna bjóða nú þegar upp á Enn eru ónýttir möguleikar í ferðaþjónustunni Sigurður Már Harðarson blaðamaður smh@bondi.is Fjallahjólaferðamennska Bergþóra Reynisdóttir, ferðaþjónustubóndi í Fögruhlíð í Fljótshlíð: Dagsferð um Fljótshlíðina „Ég opnaði Fagrahlíð Guesthouse þann 1. júní 2010 og fannst strax að það þyrfti að bjóða upp á einhverja afþreyingu og datt strax hjólaleiga og hjólaferðir í hug. Sjálf hef ég alla tíð verið áhugamanneskja um útivist og finnst yndislegt að njóta íslenskrar náttúru með hjólaferðum og hef m.a. hjólað uppi á hálendi Íslands, eins og Kili og víðar. Við bjóðum upp á dagsferð um Fljótshlíðina þar sem fléttað er saman Njálssaga, náttúrufegurð og óvæntum uppákomum. Fólkið er nestað og við borðum úti undir berum himni. Ferðir eru eingöngu eftir pöntunum. Við erum með aðstöðu í útihúsunum fyrir hjólin og síðan er nauðsynlegt að hafa þurrkherbergi fyrir fötin. Það er eingöngu um sumarferðir að ræða og hefur það ráðist af eftirspurninni. Aðsóknin hefur smám saman verið að aukast, ennþá er fólk mjög háð bílaleigubílum, er með þykkar möppur af dagskrá fyrir hvern dag þannig að álagið hefur oft verið yfirþyrmandi. Þeir sem hafa gefið sér tíma og farið í hjólaferðirnar eru almennt mjög ánægðir og finnst þessi ferðamáti hafa komið skemmtilega á óvart. Aðrir gestir hafa tekið hjól á leigu einn dag eða í tvær til þrjár klukkustundir og jafnvel tengt það við að fara á næsta veitingastað. Hjólin eru sýnileg á bæjarhlaðinu og á skiltum, auk þess sem þessi ferðamöguleiki er kynntur á vefsíðu okkar og Ferðaþjónustu bænda. Það er gott að fara rólega af stað eins og að kaupa ekki ný og dýr hjól í fyrstu. Hægt er að fá góð, notuð hjól á hagstæðu verði og endurnýja flotann síðan smám saman með nýjum hjólum. Gott er að kynna þessa afþreyingu fyrir ferðafólkinu þegar það kemur heim í hlað, vera með myndir á vegg af eigin hjólaferðum – það heillar fólk.“ Staðreyndir úr upplýsinga bæklingi um fjallahjólaferðamennsku sem gefinn var út í Wales: Það eru 5,5 milljónir fjallahjólafólks á Bretlandseyjum. Fjallahjólamennska hefur verið stunduð frá 1985 í Wales. Lykilatriði sem munu skila umtalsverðum og varanlegum árangri: » Dvalarstaður fyrir hjólreiðamennina. » Góður matur. » Búnaður til að kaupa eða leigja. » Nákvæm staðarþekking/ fróðleikur. Á árunum 2006 og 2007 eyddu breskir fjallahjólaferðamenn árlega 24 milljónum punda að meðaltali á ferðum sínum í Wales. Í Wales eru 15 sérstakar þjónustumiðstöðvar og grunnbúðir á víð og dreif um landið; sérstaklega settar upp til að þjónusta fjallahjólafólk. Marrit Meintema og Kolbrún Ósk Jónsdóttir, fyrir aftan, á ferð með Íslenska fjallahjólaklúbbnum. Mynd / Hrönn Harðardóttir Mynd / Frosti Jónsson Bergþóra Reynisdóttir, Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir og Stefán Tryggvason á hjólaferðalagi um Bretland. Mynd / Björn H. Reynisson

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.