Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 34

Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Utan úr heimi Ótal áhugaverðar rannsóknir eru til í heiminum sem snúa að hinni gríðarlega fjölbreyttu búfjárframleiðslu og á hverju ári bætist í þekkingarbrunn okkar varðandi það hvernig best er að standa að því að búa með mjólkurkýr. Samhliða aukinni tölvutækni og notkun á margs konar sjálfvirkni við skráningar hefur t.d. mjög mikið bæst við af upplýsingum um hegðun og atferli. Undanfarin ár hefur í mörgum löndum verið í auknum mæli horft til þessara þátta þegar starfs- umhverfi framleiðslunnar er varðað með lögum og reglugerðum. Er þá sérstaklega átt við þætti sem lúta að kröfum um aðbúnað og umhverfi, sem og hirðingarþátta, þ.e. mannlega þáttarins. Á hverju byggja kröfurnar? Hér á árum áður gerðist það alloft í mörgum löndum að settar voru kröfur sem ekki endilega samræmdust þörfum skepnanna sjálfra heldur mun frekar skoðunum fólks á því hvað væri rétt. Gott dæmi um það er krafa sem þekkist erlendis um útivist kúa í lágmarksfjölda klukkutíma á degi hverjum. Þekking fræðimanna á þörfum skepna í dag er sem betur fer mun meiri en áður var og því er nú hægt að byggja opinberar kröfur á niðurstöðum hlutlausra rannsókna, þar sem skepnurnar eru „spurðar“ sjálfar hvað þær vilja, sem í flestum tilfellum fer afar vel saman við góða dýravelferð. Þetta er þó ekki algilt sjónarmið og má nefna frjálst aðgengi að fóðri sem dæmi um atriði sem er ekki endilega alltaf í hag skepnunnar, þrátt fyrir augljósan áhuga þeirra. Kýr og beit Flestir líta svo á að þar sem kýr eru beitardýr frá náttúrunnar hendi, þá hljóti þær að vilja vera á beit og því felist góð velferð í því að hafa þær á beit. Þetta er hins vegar ekki svona einfalt, en sem betur fer hafa verið gerðar ótal rannsóknir á hegðun kúa sem hafa val um ólíka fóðurkosti. Þessar rannsóknir eru í dag alltaf að verða betri og markvissari en nánast í hverjum mánuði bætist ný þekking við sem stundum styður við eldri hugmyndir en stundum kemur fram eitthvað nýtt sem breytir því sem áður var talið rétt. Þetta er aðeins hluti af eðlilegri þróun en stundum reynist þó erfitt að koma þessari nýju þekkingu inn hjá skoðanaföstum. Vilja út á kvöldin! Enskir vísindamenn birtu í júníblaði Journal of Dairy Science áhugaverðar niðurstöður varðandi val kúa á beitarsvæðum. Tilraunin fór þannig fram að kýrnar gátu valið um að fara til beitar á góðu svæði, dvelja þar án beitar eða vera í fjósi þar sem þær komust í fóður. Í ljós kom að kýrnar völdu sjálfar að vera úti á nóttunni en inni í fjósi á daginn. Skýringin er trúlega birtustigið og náttúrulegt atferli kúnna, enda hafa aðrar rannsóknir sýnt að hitastig og loftraki hefur ekki teljandi áhrif á breytt atferli hvað snertir úti- eða inniveru á meðan gildin eru innan eðlilegra marka. Vilja stutt í beit Þegar skoðað var hve langt kýrnar sóttu beit var þrennt í boði: að fara á beitarsvæði sem var 60 metra frá fjósinu, 140 metra eða 260 metra en samhliða stóð þeim alltaf til boða að halda sig inni í fjósi þar sem nægt heilfóður var allan sólarhringinn. Í ljós kom að fjórar af hverjum tíu kúm (42%) héldu til beitar ef það var mjög stutt að fara, ef þær þurftu um lengri veg þá nenntu þær hreinlega ekki út enda innandyra allt sem til þurfti. Eins og áður segir valdi þó meirihluti kúnna, átta af hverjum tíu, að vera úti milli kl. 21 og 04.30 og var það óháð því hvort þær þyrftu að ganga stutt til beitar eða langt. Inni í rigningu og vindi Það kemur væntanlega fáum kúa- bændum á óvart hvað kýrnar velja ef það rignir eða ef vel blæs, þá halda þær sig innandyra í skjólinu og ber mörgum rannsóknum saman um þetta. Hámjólka inni! Í annarri enskri rannsókn, frá árinu 2011, var hámjólka kúm boðið upp á val á milli þess að halda á beit eða vera í fjósi og völdu tvær af hverjum þremur kúm að vera inni í fjósi allan sólarhringinn og það sem meira var þá var innistöðutíminn 92% af heildartímanum sem kýrnar notuðu fyrir utan mjaltir. Með öðrum orðum, þær kýr sem fóru út gerðu það í stuttan tíma. Vísindamennirnir skýrðu þessa hegðun kúnna með því að hámjólka kýr eru í það mikilli fóðurþörf að gott og tryggt aðgengi að fóðri innandyra svara einfaldlega miklu betur kröfum kúnna sjálfra en beitin. Auk þess töldu þeir að kúnum þætti einfaldlega léttara að éta fóðrið á fóðurgangi en að slíta það sjálfar upp úti á beit. Að sama skapi kom í ljós að lágmjólka kýrnar settu fjósið ekki framar í forgangsröðunina. Vilja sand! Í enn einni áhugaverðri rannsókn, sem framkvæmd var í Kanada, var kúnum gefið frjálst val um gerðir undirlags þar sem þær bera, en á þeim tíma eru kýr afar viðkvæmar. Rétt fyrir burð skipta kýrnar oft um stellingu til þess að hagræða sjálfum sér og hinum óborna kálfi og vegna þessa vilja kýrnar gjarna mjúkt en hálkulaust svæði. Rannsóknin var gerð á hópi kúa sem gátu valið á milli steypts undirlags með 15 cm þykkri hálmmottu ofan á, gúmmímottu með hálkuvarnaryfirborði og svo stíu með 10 cm sandi og 15 cm hálmmottu ofan á. Flestar kýrnar í rannsókninni völdu sandinn, þá völdu næst flestar steypta undirlagið en nánast engin gúmmímottuna. Niðurstaðan? Framangreindar upplýsingar ber að sama brunni, þ.e. við eigum að treysta skepnunum okkar til þess að gefa okkur svör við þeim spurningum sem lúta að húsvistarþátttum þeirra. Í allri umræðu um húsvist þarf að stórvara sig á því að láta ekki tilfinningar eða skoðanir fólks stjórna umræðunni, svo ekki sé nú talað um að láta slíkt hafa áhrif á opinberar kröfur. Þetta er þó hægara sagt en gert. Enda byggir umræða oft á vanþekkingu, þröngsýni eða tilfinningasemi í stað rökfærslna og vísindalegra niðurstaðna, eins og reyndin hefur verið þegar rætt hefur verið um húsvist búfjár í mörgum löndum Evrópu undanfarin ár. Það getur þó skipt sköpum fyrir landbúnaðinn, sér í lagi ef kröfur um umhirðu eða aðbúnað yrðu verulega íþyngjandi án þess að bæta hag skepnanna okkar í raun. Svo er annað mál að þegar búfjárafurðir eru fluttar á milli landa eru ekki gerðar kröfur um að viðkomandi afurðir komi frá búfénaði sem hafi verið alinn við sambærilegar aðstæður eða fengið sambærilega umhirðu og eftirlit eins og gerð er krafa um í innflutningslandinu. Fæstir neytendur gera sér grein fyrir þessu, enda stendur þetta hvergi á umbúðum varanna. Árið 2002 kom út skýrsla hjá Evrópusambandinu þar sem bent var á hve alvarlegur aðstöðu- munurinn væri á milli landanna innan WTO, sem og innan landa Evrópu sambandsins sjálfs, hvað framangreint atriði snertir. Þó svo að liðinn sé heill áratugur síðan hefur því miður lítið gerst til þess að jafna þennan mun eða gera löndum mögulegt að hafna lágmarks- innflutningi á grundvelli verulegra frávika frá þeim kröfum sem gilda í viðkomandi innflutningslandi. Snorri Sigurðsson sns@vfl.dk Nautgriparæktardeild Þekkingarseturs landbúnaðarins í Danmörku Skynsamar kýr Nýlega voru birtar í blaðinu Bonde og Småbruker niðurstöður um tekjur og gjöld norskra bænda á síðasta ári, 2012. Um langan aldur hafa norskir bændur brauð- fætt þjóð sína. Langt er síðan hún hætti að vera sjálfri sér næg um mat, en það takmark var enn mikilvægara fyrr á tímum en nú. Á þeim tíma var þjóðinni vel ljóst að tryggur aðgangur að mat væri ekki sjálf- gefinn og að bæði veðurfar og alþjóðamál væru óvissu háð. Á síðari árum hefur jarðarbúum fjölgað mikið, ekki síst millistéttar- fólki, og kaupmáttur fólks aukist. Millistéttin í Kína og Indlandi hefur einnig farið í fótspor stéttarbræðra sinna og -systra á Vesturlöndum um matarvenjur. Aukinn hluti kornframleiðslu í heiminum hefur því verið nýttur til kjötframleiðslu. Hnattræn hlýnun veðurfars á jörðinni eykur enn áhyggjurnar. Staðan á alþjóðlegum kornmörkuðum er því nú með þeim hætti að kornverð gæti hækkað verulega, en það hefði í för með sér aukin félagsleg vandamál jarðarbúa. Enginn núverand stjórnmála- flokkur í Noregi getur skorist undan ábyrgð á þróun norsks landbúnaðar. Olíuhagfræði og markaðshyggja hafa ekki sjálfsnægtabúskap á stefnuskrá sinni. Um nýliðin þúsaldamót ákváðu norsk stjórnvöld að breytt yrði fyrri stefnu um að í landinu yrðu á hverjum tíma til birgðir af matkorni sem næmu hálfs árs neyslu þjóðarinnar. Í samræmi við það var töluvert ræktunar land, sem notað hafði verið til korn- ræktar, tekið til annarra þarfa, svo sem undir vegi og í b ú ð a r - byggð. Mik i l l meiri hluti n o r s k u þ j ó ð a r - innar stendur vörð um land- búnað sinn og sættir sig við að greiða uppsett verð á matvælum en talsmenn landbúnaðarins í Noregi hafa ekki einir afl til að verja hann. Efast um niðurgreiðslur en vilja auka tollvernd Flokkur Græningja í Noregi hefur ekki trú á því að auknar niðurgreiðslur á búvörum séu hér lausnarorðið og telur að það grafi einungis undan stöðu bænda sem sjálfstæðra atvinnurekenda. Skynsamlegra sé að bændur afli sér tekna með því sem þeir framleiða og selja. Þeir kalla hins vegar eftir samstöðu með hugsandi neytendum um aukna tollvernd á innflutningi búvara, þar sem hærra verð, bæði í verslunum og til handa framleiðenda, er burðarásinn. Hverjir aðrir þora að halda fram þessu sjónarmiði og ávinna sér jafnframt tiltrú þéttbýlisbúa, sem fjölgar nú jafnt og þétt? Flokkur Græningja í Noregi hefur það markmið að rífa sig upp úr úreltum vinnubrögðum sem birtast í uppgjöf og vonleysi allra þeirra sem eiga sér þá ósk og von að innlend matvælaframleiðsla eigi sér bjarta framtíð í Noregi. Tryggur aðgangur að mat ekki sjálfgefinn Kýr eru skynsamar og láta ekki einhverja vísindapésa plata sig í tilraunum með hvaða undirlag sé best fyrir þær. Jurtaeyðingarefnið glýfosat veldur áhyggjum í Evrópu Umhverfissamtökin Friends of Earth hafa varað við því að að jurtaeyðingarefnið glýfosat safnist fyrir í líkömum manna. Rannsókn í 18 löndum í Evrópu sýndi að að leifar af glýfosati fundust í sýnum frá öllum löndunum. Bæði þýsku umhverfisverndarsamtökin Friends of Earth og Bunel létu rannsaka 182 þvagprufur og í 44 þeirra fannst glýfosat. Bunel hvatti í framhaldi af því til strangara eftirlits með glýfosati í matvælum. Bunel telur útbreiðslu glýfosats alvarlegt mál. Í finnska landbúnaðarritinu Landsbygdens Folk segir Hubert Weiger að brýnt sé að draga úr jurtaeyðingarefninu í landbúnaði. Auk þess sé brýnt að afla meiri upplýsinga um langtímaáhrif efnisins í matvælum og umhverfinu. Finnst í 70-90% matvæla í mörgum löndum Evrópu Á Möltu fannst efnið í 90% matvæla, í Þýskalandi, Bretlandi og Póllandi, í 70% en í Hollandi, Tékkóslóvakíu, Belgíu, Lettlandi og Kýpur 50%. Í hverju landi voru tekin 8-12 sýni, öll í stórborgum. Höfuðtilgangurinn með rannsókninni var að kanna hvort glyfosfat dreifðist með matvælum. Enginn rannsakenda hafði neitt með glýfosat að gera í starfi sínu. Rannsókn viðlík þessari hefur ekki farið fram áður. Framleiðendur glýfosats telja ekki ástæðu til að bregðast við þessari rannsókn. Þeir telja að þar komi ekkert nýtt fram um skaðleg áhrif efnisins. Þá gagnrýna þeir hve fáar athuganir liggi að baki rannsóknunum. Eitt útbreiddasta jurtaeyðingarefni í heimi Samkvæmt upplýsingum frá efnafyrirtækinu Monsanto er glýfosat eitt útbreiddasta jurtaeyðingarefni í heimi. Fyrirtækið segir fjölmargar rannsóknir á því sýna að notkun þess hafi engin áhrif, hvorki á heilsu fólks né umhverfið. Jafnframt segja talsmenn fyrirtækisins að starfsmenn þess muni fara vel í saumana á þessum rannsóknum, jafnframt því að safna frekari upplýsingum. Fyrirtækið boðar enn fremur að það muni kynna niðurstöður þeirra þegar þær liggi fyrir. Umhverfissamtökin sem stóðu fyrir rannsókninni, Friends of Earth, halda því aftur á móti fram að viðlíka ítarleg rannsókn á þessu verkefni hafi ekki farið fram áður. Á Evrópuþinginu brást talsmaður Flokks græningja, Martin Häusling, strax við og lýsti því yfir að banna ætti strax notkun á glýfosati í núverandi mynd í hvers kyns ræktun. Fyrirtækin Bayer, Syngenta og BASF hafa einnig á boðstólum varnarefni gegn illgresi sem innihalda glyfosfat. Heilbrigðisyfirvöld í Þýskalandi telja eðlilegt að glýfosat finnist í þvagi fólks. Það hafi ekki neina áhættu í för með sér ef styrkleiki þess sé innan löglegra marka. Glýfosat var fyrst sett á markað árið 1974 undir heitinu Roundup. Notkun þess er leyfð í 130 löndum. Þýtt og endursagt / ME

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.