Bændablaðið - 19.09.2013, Page 36

Bændablaðið - 19.09.2013, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins DNA-sýni hrossa: Arfgerðargreiningar hrossa á Íslandi Pétur Halldórsson Hrossaræktarráðunautur hjá Ráðgjafar miðstöð landbúnaðarins Öryggismál Heilsa bænda og vinnuumhverfi: Ef bóndi fræðir bónda er hægt að ná bestum árangri Upplýsingatækni & fjarskipti sviðsstjóri tölvudeildar Bændasamtaka Íslands jbl@bondi.is Jón Baldur Lorange Reynsla mín af forvörnum er sú að best sé að koma skilaboðum á jafnréttisgrundvelli og stend ég fastur í þeirri trú að ef bóndi fræðir bónda sé hægt að ná bestum árangri. Dæmin einfaldlega sýna að sé fræðslan byggð upp á jafnréttisgrundvelli næst árangur. Þekktasta íslenska dæmið er sennilega Slysavarnaskóli sjómanna, sem stofnaður var 1985, en varla eru til þær viðurkenningar sem sá skóli hefur ekki fengið fyrir árangur á þessum tæpu þrjátíu árum frá stofnun hans. Undir stjórn Hilmars Snorrasonar hefur náðst ótrúlegur árangur í slysa-, heilsu- og forvarnarmálum hjá íslenskum sjómönnum. Þann 17. júní síðastliðinn var Hilmar sæmdur riddarakrossi íslensku fálkaorðunnar af Ólafi Ragnari Grímssyni forseta. Eflaust getur Hilmar miðlað af þekkingu sinni til fleiri en sjómanna, en í stuttu spjalli við hann þar sem nokkrar spurningar voru lagðar fyrir hann hafði hann frá mörgu að segja og væri hægt að læra mikið af honum varðandi forvarnir, öryggi og heilsufar. Árangur náðist eftir 15 ára ferli – Hvernig gekk í byrjun og hvað tók það langan tíma að ná sjáanlegum árangri? Það tók 10 til 15 ár, sem helgast af því að fyrsti áfangi öryggisskyldu tók gildi 1997 og upp úr því fór að sjást verulegur árangur. Til að geta verið sjómenn í dag þurfa menn að vera búnir með Slysavarnaskóla sjómanna.Gildir hvert námskeið í fimm ár og þá verða menn að koma í endurmenntun og endurnýjun á skírteininum. – Sérð þú í fljótu bragði eitthvað sem landbúnaðurinn gæti lært af Slysavarnaskóla sjómanna? Já, slys eru ekkert síður í landi en til sjós. Lærdómurinn af síendurtekinni fræðslu er að hún skilar margfalt betri árangri en tímabundin átaksverkefni. Sagan sýnir, hvort heldur sem er í landi eða til sjós, að með nýrri óþekktri tækni eykst slysahætta sem þarf að bregðast við. Tilkynning og skráning slysa er afar mikilvæg í forvörnum. Besta forvörnin væri ef menn mundu útbúa blað sem á stæði: Hefði getað orðið slys.: Næstum slys.: Slys.: Með þessu búa menn til þekkingargrunn í umhverfi sínu. – Hvar er vænlegast að byrja að þínu mati? Byrja í grunnskólum að fræða um forvarnir, hollustu og heilsu. – Hvaða áhersluatriði myndir þú leggja til landbúnaðarins í forvarnamálum? 1. Áhættumat. 2. Atvikaskráningar. 3. Fræðsla. 4. Aðgerðir. /H.L.J. Allt frá árinu 2006 hefur markvisst verið boðið upp á arfgerðar greiningar hrossa á Íslandi. Greining sýna var í upphafi á hendi fyrirtækisins Prokaria sem nú er hluti þekkingarfyrirtækisins Matís (www.matis. is). Verkefninu var í upphafi ýtt af stað með tilstyrk Stofnverndarsjóðs íslenska hestsins sem lagði fram fjármuni til greiningar á sýnum úr sýndum hryssum. Með þessu móti varð hratt og örugglega til góður grunnur sýna úr virkum ræktunarhluta íslenska hrossastofnsins. Tilgangur þessarar vinnu er fyrst og síðast sönnun/staðfesting á ætterni ræktunargripa. Augljóst má vera að kórréttar ætternisupplýsingar eru grunnforsenda þess kynbóta- skipulags sem unnið er eftir í markvissri hrossarækt og auðvitað allri búfjárrækt. Hér haldast þétt í hendur réttar skráningar og einstaklings merkingar gripa (örmerkingar) og sýnataka, enda sýni aldrei tekin úr ómerktum gripum. Afleiddir kostir þessa starfs eru m.a. að einfalt er að greiða úr faðernismálum þar sem hryssur hafa verið hjá fleiri en einum hesti, einfaldari leiðréttingar vafatilfella og/eða þar sem ætternisupplýsingar eru á huldu og einnig má nefna sýnatöku sem öflugt verkfæri til úrskurðar í deilumálum um eignarhald gripa. Þá er ótalinn sá gæðastimpill í sölu- og markaðsstarfi sem ótvírætt fylgir hrossi með staðfest ætterni. Staðfesting á ætterni er kvöð á öllum stóðhestum sem koma til kynbótadóms. Enginn stóðhestur hlýtur dóm nema sýnatökuskilyrði séu uppfyllt. Fjögurra vetra (og yngri) hestum nægir venjulegt stroksýni úr nös með hefðbundinni sýnatöku en komi hestar til dóms 5v., eða eldri, er einnig skilyrt að blóðsýni hafi verið tekið úr gripnum. Dýralæknar vítt og breitt um landið annast blóðsýnatöku, oftast samhliða hæklamyndatöku 5v. stóðhestsefna. Blóðsýnin eru varðveitt til framtíðar á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Hrossaræktendur vítt og breitt um landið útfæra sínar sýnatökur með ýmsum hætti. Velflestir hafa þó valið þá skynsamlegu leið að taka sýni úr öllum sínum stofnhryssum í upphafi enda ófyrirséð hvaða hryssur muni reynast heilladrýgstar í framræktun, áður en reynslan tekur af tvímæli. Víða er því ágæta verklagi fylgt að taka sýni úr öllum folöldum, sumir setja mörkin við merfolöld og hestfolöld sem eiga að halda sínu og enn aðrir ræktendur velja stífar úr folaldahópnum. Hér er rétt að árétta að DNA-sýni má taka úr gripnum hvenær sem er á lífsleiðinni. Framkvæmd Starfsmenn hrossaræktarsviðs RML annast DNA-sýnatökur og örmerkingar eftir því sem óskað er eftir (www.rml.is), auk einstakra starfsmanna búnaðarsambanda og starfandi dýralækna. Á hrossaræktar- sviði RML eru eftirtalin: Guðlaugur V. Antonsson, Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes. S: 516-5018 / ga@rml.is Gunnar Ríkharðsson, Húnabraut 13, 540 Blönduós. S: 451-2602 / gr@bondi.is Halla Eygló Sveinsdóttir, Austurvegi 1, 800 Selfoss. S: 516-5024 / halla@rml.is Pétur Halldórsson, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur. S: 487-1513 / 862-9322 / petur@rml.is Steinunn Anna Halldórsdóttir, Aðalgötu 21, 550 Sauðárkrókur. S: 516-5045 / sah@rml.is Sem fyrr segir má taka DNA-sýni hvenær sem er á æviskeiði grips – og raunar eftir að því lýkur ef hægt er að komast í tæri við sýni úr vef (hár/ bein). Hefðbundin stroksýnataka er framkvæmd með því að væta tvo langa bómullarpinna með slími úr nös. Heppilegast og þægilegast er því að eiga við tamin hross og/eða folöld strax á fæðingarári eða á fyrsta vetri. Sýnin eru send Matís við fyrsta hentugleika sem alla jafna greinir öll innsend sýni innan mánaðar frá því að þau berast í hús. Ath. þó að hægt er að óska eftir sérstakri flýtimeðferð. Kostnaður við venjulega sýnagreiningu er kr 8.150,- á sýni en annar kostnaður er tímavinna sýnatökuaðila og akstur (sjá galdskrá RML: http://www.rml. is/is/starfsemi-/gjaldskra). Sautján erfðamörk greind Alls eru greind 17 erfðamörk í hverju sýni, samkvæmt evrópskum stöðlum og í takt við greiningar í öðrum hrossakynjum (ISAG- staðall). Niðurstöður staðlaðra greininga eru keyrðar jafnharðan inn í W-Feng, Upprunaættbók íslenska hestsins (www.worldfengur.com). Rannsóknarstofur í Danmörku, Hollandi, Svíþjóð og Þýskalandi annast greiningar með sama hætti og Matís og birta niðurstöður sínar með samræmdum hætti í W-Feng. Almennir notendur Fengs sjá táknmyndir fyrir útkomu greininganna. Þar kemur fram hvort gripur er sannaður í föður-/ móðurlegg eða hvorutveggja og/eða hvort greint sýni er til úr viðkomandi grip þó ekki sé hægt að bera saman við framættir. Haust og vetur er góður tími fyrir ræktendur til að skoða sína stöðu m.t.t. DNA-sýna í stóðinu. Sérstaklega má árétta að missa ekki af eldri hryssum sem eiga uppvaxandi ættboga og möguleg stóðhestsefni í sínum afkvæmahópi. Allar frekari upplýsingar veitir undirritaður eða aðrir nefndir starfsmenn hrossaræktarsviðs RML. Pétur Halldórsson, hrossaræktarráðunautur. RML, Hvolsvelli. S: 487-1513 / 862-9322 petur@rml.is Stafræn Evrópa án landamæra Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins (ESB) hefur kynnt framsækna áætlun um stafræna Evrópu án landamæra undir heitinu Digital Agenda for Europe. Áætlunin hefur að markmiði að tengja saman Evrópu í endurbættum reglum um innri markað í fjarskiptum (e. telecoms single market). Ísland er hluti innri markaðar ESB í gegnum EES samninginn um svokallað fjórfrelsi þar sem póstur og fjarskipti eru meðtalin. Það má því gera sterklega ráð fyrir að Ísland verði hluti af breyttum reglum um innri markaði í fjarskiptum þegar ESB hefur samþykkt og ríki ESB og EES samningsins hafa innleitt að fullu nýjar og róttækar reglur um innri markaðinn í fjarskipti í Evrópu. Væntanlega þýðir þetta að erlend fjarskiptafyrirtæki geta boðið þjónustu sína hér á landi, og að sama skapi íslensk fyrirtæki í öðrum ríkjum ESB án viðskiptahindrana milli landamæra. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar, lagði fyrir Evrópuþingið síðsumars tillögur um lagapakka undir heitinu Connected Continent (samtengd álfa). Markmið þessa lagabálks er að lækka fjarskiptakostnað neytenda, minnka skriffinnsku fjarskiptafyrirtækja og innleiða aukin réttindi bæði fyrir neytendur og fjarskiptafyrirtæki sem veita internetþjónustu svo að Evrópa geti að nýju orðið leiðandi í heiminum í stafrænni tækni, eins og segir á vefsíðu framkvæmdastjórnarinnar. Með áætlun framkvæmdastjórnarinnar á að nýta upplýsingatækni og fjarskipti til hins ítrasta til vaxtar á sviðum sem auka samkeppnishæfni, frumkvæði og atvinnu, eins og kemur fram á áhugaverðri og fróðlegri vefsíðu sem framkvæmdastjórn ESB heldur úti af þessu tilefni undir heiti áætlunarinnar (sjá https://ec.europa.eu/digital- agenda/en). Þá kom það fram hjá Neelie Kroes, varaforseta upplýsingatæknistjóra framkvæmdastjórnar ESB, að af öllum geirum samfélagsins eigi landamæri ekki að þekkjast í fjarskiptum á veraldarvefnum: ,,Hann er kallaður veraldarvefur af ástæðu.“ Framkvæmdastjórn ESB telur Evrópu ekki vera samkeppnishæfa í dag í upplýsingatækni og fjarskiptum og við því þurfi að bregðast, sem gert er með áætluninni Digital Agenda for Europe. Þannig standa Evrópubúar mjög aftarlega í innleiðingu á 4G nettengingum þar sem Bandaríkin eru með 50% markaðshlutdeild á heimsmarkaði, Asía með 40% en Evrópa aðeins með 6% (Í þessu sambandi má geta þess að ekki er svo langt síðan að íslensk fjarskiptafyrirtæki fóru að bjóða viðskiptavinum sínum upp á 4G netsamband). Talið er að það sem hamli framförum séu viðskiptahindranir milli ríkja ESB þegar kemur að fjarskiptum. Fyrirtæki og neytendur geti ekki gengið að því vísu að sömu reglur gildi milli ríkja, engin stöðlun eða samræming sé til staðar milli þjónustu sem fyrirtæki bjóði neytendum og neytendalöggjöf sé ekki sameiginleg. Fjarskiptafyrirtæki kvarti einnig undan því að miðað við núverandi kerfi borgi sig ekki að fjárfesta í innviðum fjarskipta, sem hamli framförum. Innri markaður með upplýsinga- tækni og fjarskipti sé lausnin að áliti framkvæmdastjórnarinnar og er markmið áætlunarinnar að koma slíkum markaði á milli ríkja Evrópu. Vinnufundur skrásetjara Veraldarfengs (WF) í Malmö Í tengslum við árlegan fund FEIF, alþjóðasamtaka eigenda íslenskra hesta, þar sem allar nefndar samtakanna koma saman til árslegs fundar þá verður að þessu sinni auk þess haldinn fundur með öllum skrásetjurum WorldFengs. Fundurinn er á vegum skýrsluhaldsnefndar FEIF og Bændasamtaka Íslands. Þetta er fjórði alþjóðlegi fundurinn með skrásetjurum WorldFengs en fundirnir hafa verið haldnir í Reykjavík, Stokkhólmi, London og nú í Malmö. Að sögn Kristínar Halldórsdóttur, formanns skýrsluhaldsnefndar FEIF og annars af tveimur skrásetjurum WF í Þýskalandi, standa vonir til að meirihluti skrásetjara FEIF landanna mæti til fundarins. Ætlunin er að kynna og ræða útgáfuplan fyrir viðbætur og endurbætur í WorldFengs, sem og að samræma vinnubrögð skrásetjara á sem flestum sviðum. Full trúar Bænda- s a m t a k a n n a o g WorldFengs úti verða Þorbergur Þ. Þorbergsson forritari, Hallveig Fróðadóttir, fulltrúi í skýrsluhaldsnefnd FEIF, og dálka höfundur. Hilmar Snorrason

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.