Bændablaðið - 19.09.2013, Page 38

Bændablaðið - 19.09.2013, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Lesendabás Út er komin bókin Frá hestum til hestafla eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri. Þetta er þriðja bók Bjarna um verkhætti til sveita á tækniöld. Þær fyrri, . . . og svo kom Ferguson og Alltaf er Farmall fremstur, hafa notið mikillar hylli, enda rekur höfundur sögu íslensks samfélags út frá framvindu í landbúnaði á fróðlegan og bráðskemmtilegan hátt, að ógleymdu frábæru myndefni. Í þessari bók segir Bjarni sögur af vinnuhestum og hesta- notkun við bústörf, fyrstu dráttarvélinni sem til Íslands kom, Akranesstraktornum svonefnda, Lanz- þúfnabananum og loks af landbúnaðar- jeppunum Willys og Land Rover. Þá rifja átta einstaklingar upp minningar sínar frá þessum breytingatímum. Á 20. öld breyttust verkhættir Íslendinga við ræktun og fóðuröflun svo tala má um byltingu. Ræktunarumbætur voru liður í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar; vinnuafköstin uxu til muna og minna vinnuafl þurfti til landbúnaðar en fyrr. Vinnuhestarnir drógu þróunina af stað; f y r s t a dráttarvélin kom t i l l a n d s i n s árið 1918 og þúfnabaninn litlu seinna. Þúfnabaninn sýndi að vélum mátti beita til stórfelldrar túnræktar rétt eins og vélar höfðu þá breytt sjósókn og fiskveiðum landsmanna. Svo rann upp tími heimilisdráttarvélanna. Um miðja 20. öld veitti landbúnaðarjeppinn þeim samkeppni sem aflgjafi við bústörf með hætti sem óþekktur var í öðrum löndum. Bókin, sem er 232 blaðsíður, er gefin út af Uppheimum í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri. Hluti af andvirði hverrar seldrar bókar rennur til safnsins. Heildarsafn bóka Bjarna um vélvæðingu landbúnaðarins Í tilefni af útgáfu Frá hestum til hestafla býðst nú einnig til sölu vönduð askja undir yfirskriftinni Vinnur meira vit en strit, þar sem allar þrjár bækur Bjarna um vélvæðingu landbúnaðarins eru fáanlegar í vandaðri öskju. Þessi veglegi pakki er gefinn út í afar takmörkuðu upplagi, og bækurnar allar áritaðar og tölusettar. Ný bók Bjarna Guðmundssonar og ritsafn í öskju: Frá hestum til hestafla og Vinnur meira vit en strit Bækur Smá meira tilfinningaklám! Senn líður að lokun undirskrifta- söfnunar á vefsíðunni lending.is, þar sem skrifað er undir kröfu um að landsmenn fái að halda óskertri flug starfsemi í Vatnsmýrinni um ókomna tíð. Tilefnið er sú ætlan borgaryfirvalda að svipta okkur þessari perlu sem Reykjavíkur flugvöllur er, sbr. nýtt aðalskipulag borgarinnar sem nú er í auglýsingaferli. Þar með rofnar sú tenging við alla kjarna stjórnsýslu, menningar og heilbrigðisþjónustu, sem flugvöllurinn hefur veitt okkur. Og gert kleift að sækja hvaðanæva af landinu með stuttum fyrirvara og jafnvel skila okkur heim aftur samdægurs. Þetta hefur sérstaka þýðingu fyrir sjúkraflugsþjónustuna sem sér til þess að þeir sem verða fyrir því óláni að veikjast illa eða slasast fjarri borginni, komist til þeirrar sértæku læknismeðferðar sem á þarf að halda, í tæka tíð. Og þar sem þessi þáttur í umræðunni, sjúkraflugið, er sá hverfipunktur sem engin fjárhagsleg rök vinna á, þá hafa flugvallarandstæðingar tekið sig til og ráðist að einmitt þessum þætti. Tökum nokkur dæmi: „Sjúkraflugsþjónustan eru þröngir sérhagsmunir“ (samtökin um Betri Byggð). „Það er ábyrgðarlaust og siðferði- lega rangt að flytja sjúklinga í vængjuðu flugi. Alla bráðveika sjúklinga á að flytja með þyrlum.“ (Fjölmargar blaðagreinar Arnar Sigurðssonar og Gunnars H. Gunnarssonar. Á þessu byggist sú „röksemd“ að engin þörf sé á flugvelli í borginni vegna sjúkraflugs, heldur aðeins þyrlupöllum við spítalana). „Í lang flestum tilfellum er engin hætta á ferðum fyrir sjúkling þótt ferðatíminn lengist, m.a. ef krækja þarf með sjúkraflugi til Keflavíkur.“ (Áðurnefnd samtök oftsinnis, ásamt Degi B. Eggertssyni en hann lét þessi orð falla á ráðstefnu HR þ. 19. janúar 2012). „Aðeins er þörf á að viðhafa flýti fyrir fyrstu aðkomu á vettvang slysa eða bráðra veikinda, en eftir fyrstu umönnun þar liggur ekkert á.“ (Samtök um B.B. enn og aftur og einnig Dagur B. Eggertsson á sömu ráðstefnu og nefnd var hér að ofan). „Það hefur aldrei verið sannað að nálægð flugvallarins við sjúkrahús bjargi mannslífum“ (Dagur B. Eggertsson á kynningarfundi um nýtt aðalskipulag Reykjavíkur þ. 30 maí sl.). „...en málið er bara það að fyrir Reykjavík, þá er mjög mikilvægt að þétta borgina. Og þetta er ofboðslega mikilvægur hluti í því og eiginlega órjúfanlegur hluti þess að Reykjavík verði þétt og góð borg“ (Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2, 26.8. sl., eftir að hafa sagst skilja áhyggjur fólks vegna sjúkraflugsins, en þetta sýnir glöggt afstöðu hans til lífs og lima landsbyggðarfólks). Þór Saari telur að séð í stóru samhengi þurfi að ræða þetta mál og leysa „af skynsemi en ekki með svona vitleysistali um einstaka flutninga á fólki“ (Færsla á fésbók 19.8. sl. en hér er átt við það þegar einstök dæmi hafa verið nefnd í auglýsingum og umræðum á fésbók um sjúkraflug, þar sem nánd flugvallarins við LSH varð ótvírætt til lífsbjargar). Fréttastofa Stöðvar 2 lagði svo nokkuð til málanna þ. 2. 9. sl. þegar stuðst var við þessa tilvitnun í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjúkraflug, sem kom út þá um daginn: „Mikilvægt er að hafa í huga að þó mínútur geti skipt sköpum í sjúkraflutningum hefur aðbúnaður sjúklinga og aðstaða lækna, sjúkraflutningamanna og aðstandenda veruleg áhrif.“ Með þessari klausu taldi fréttastofan sannað að framburður okkar sem stöndum að undirskriftasöfnuninni, um að mínútur geti skipt sköpum í sjúkraflugi, væri rangur sbr. fyrirsögn fréttarinnar: „Ósamræmi er í málflutningi talsmanna flug- vallarins í Vatnsmýri ef litið er til nýútkominnar skýrslu ríkisendurskoðunar um sjúkraflug.“ Þá er landsmönnum vel kunnugt um það uppnefni sem umfjöllun okkar um sjúkraflug og einstök dæmi þar um hefur fengið, „tilfinningaklám“, en vandséð er hvernig hægt er að fjalla um björgun mannslífa og heilsu fólks án þess að sú umræða höfði til tilfinninga. Egill Helgason leggst á þessa sömu sveif þegar hann segir að umfjöllun á þessum nótum sé „á mörkum hins smekklega“. Loks hefur jaðrað við að niðrandi tal um sjúkraflugið, þar sem allir ofangreindir og fleiri til (t.d. Pétur Snæbjörnsson hótelhaldari í Mývatnssveit) ganga beinlínis svo langt að hagræða staðreyndum þar um máli sínu til framdráttar, sé komið út á þann hála ís að rakka niður þá framkvæmdaaðila sem sinnt hafa þessari þjónustu. Við sem að þessari söfnun stöndum höfum séð ástæðu til að greina frá mikilvægi flugvallarins fyrir sjúkraflugið og höfum nefnt einstök dæmi því til stuðnings, en þar erum við eingöngu að greina frá ísköldum staðreyndum, þetta eru eingöngu sannar reynslusögur sem fram hafa komið. Þær eru margar fleiri. Það að andstæðingum flugvallarins finnist þær ósmekklegar breytir engu um mikilvægi þeirra. Það þótt þessir sömu aðila telji sig geta fundið að framkvæmd sjúkraflugsþjónustunnar breytir heldur engu um að okkur liggur alltaf jafn mikið á með sjúklinga í bráðaflutningum, jafnt á lokasprettinum sem í öðrum hlutum flutningsleiðarinnar. Ég árétta hér með einn mikilvægan þátt í þessu samhengi öllu; allan þann tíma sem við hjá Mýflugi höfum starfrækt sjúkraflugsþjónustuna á landsvísu höfum við aldrei þurft að snúa frá Reykjavíkurflugvelli vegna veðurs. Svo vel er hann staðsettur og gerður úr garði, t.d. með sínum þremur flugbrautum, að ef við á annað borð höfum getað sinnt útköllum vegna aðstæðna á viðkomustöðum okkar annars staðar á landinu, þá höfum við undantekningarlaust getað lokið þeim útköllum í Reykjavík. Þetta hefur reynst ómetanlegt. Það áréttast hér með einnig að þyrlur eru frábær björgunartæki en fráleit flutningstæki í reglubundnu sjúkraflugi yfir hálendi Íslands. Um ástæður þess má m.a. lesa á lending. is. Einnig er sú staðreynd mikilvæg í umræðunni, en illa afbökuð af andstæðingum okkar, að sérhæfð og dýr þjónusta á ýmsum sviðum, s.s. hjartaþræðingar, meðferð heilablæðinga og gjörgæsla nýbura, verður ekki veitt á dreifðum fjórðungssjúkrahúsum landsins. Hún getur aðeins verið í boði á einum stað hjá svo fámennri þjóð eins og okkur. Sérhæfing þessara þátta er svo mikil, tækjabúnaðurinn svo dýr og mannauðurinn í þessum störfum takmarkaður auk þess sem þörf er á þeirri reynslu og kunnáttu sem aðeins fæst viðhaldið með því að þjónustan sé höfð svona miðlæg. Af útköllum Mýflugs eru einmitt hjartatilfellin langalgengust, þá heilablæðingar og meðgöngu- og nýburavandamál. Þessi öfgakenndu viðbrögð flugvallar andstæðinga og forherðingin sem sjá má í viðhorfum borgaryfirvalda æpir á að allir stuðningsmenn flugvallarins sem enn eiga eftir að skrifa undir á lending. is geri það nú þessa fáu daga sem enn eru til stefnu. Við munum skila þessum undirskriftum til viðtakenda næsta föstudag, þ. 20. september. Takk þið öll sem hafið skrifað undir nú þegar. Þorkell Ásgeir Jóhannsson flugstjóri hjá Mýflugi og stjórnarmaður í Hjartanu í Vatnsmýri. Þorkell Ásgeir Jóhannesson DÚNÞVOTTUR Er gamla dúnsængin þín orðin slitin? Þarf hún að fá upplyftingu? Við þvoum æðardún og skiptum um ver á gömlum dúnsængum. Setjum æðardún í sængurver. Geymið auglýsinguna. Morgunroði ehf. - Sími 893-2928

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.