Bændablaðið - 19.09.2013, Page 39

Bændablaðið - 19.09.2013, Page 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Það verður að gerast – fátt brýnna fyrir þjóðina Frést hefur að slitastjórn Glitnis hyggist hugsanlega selja 95% hlut erlendra kröfuhafa í Íslandsbanka á 115 milljarða króna til nýrra útlendra áhættufjárfesta. Vegna þessa langar mig að rifja upp mikilvægi þess að taka hér upp nýjan íslenskan lögeyri, því að hann mun leysa mál vegna þrotabúanna miklu betur fyrir þjóðina auk þess sem hann mun einnig skapa hér allt aðra og hagfellda stöðu, svo vægt sé til orða tekið. Við skulum rifja málið upp og byrja á byrjuninni. Nýr íslenskur gjaldmiðill Til þess að öðlast langþráðan stöðugleika á Íslandi þarf fyrst og fremst mikla festu í öllum fjármálum landsins og skynsamlega eyðslu og skuldastefnu og það til langs tíma. Þetta og verðgildi gjaldmiðilsins tengist auðvitað hvort öðru, en hægt er að róa gengissveiflur með því að binda gengi krónunnar við einhverja myntkörfu, eins og áður hefur verið gert. Við þyrftum að ganga í Evrópusambandið til þess að taka upp evruna, en gætum ekki uppfyllt skilyrði slíkrar upptöku eins og sakir standa né þá fyrirsjánlega. Það væri hægt að taka einhliða upp gjaldmiðil einhvers annars lands með því t.a.m. að íslenska ríkið, bankar og fyrirtæki ákvæðu að gera upp í þeim gjaldmiðli, en þá þarf að kaupa viðkomandi mynt til þess að hafa í almennri umferð, þ.e. að kaupa gjaldeyri með gjaldeyri, en við eigum hann ekki í nægjanlegu magni, enda forðinn að mestu leyti tekinn að láni. Með upptöku erlends gjaldeyris misstum við stjórn á peningamálum okkar til þeirra sem ættu gjaldmiðilinn sem og myntsláttuhagnaðinn. Þá er spurningin hvort við eigum eða þurfum því að halda í gömlu krónuna og þá fljótandi með óbreyttu sniði, en það hefur bæði sína kosti og galla. Almennt talað má segja að kostirnir séu sveigjanleiki til gengisbreytinga, en gallarnir samfara óstöðugleiki a.m.k. þar til festa á öðrum sviðum fjármálalífsins til langs tíma hefur verið náð og hafa ber í huga, að krónan getur sveiflast í báðar áttir og þá einnig hækkað/styrkst, sem t.d. gerði útflutningsgreinunum erfiðara fyrir. En er til einhver önnur lausn í gjaldmiðilsmálunum? Ég lít svo á að aðalverkefnin og markmiðin í þessu sambandi séu þrjú. Í fyrsta lagi að ná hér gengisstöugleika. Í öðru lagi að finna lausn á því hvernig hægt er að leysa snjóhengjuvandamálið og snúa því við yfir í tækifæri og ná þaðan fé til okkar og í þriðja lagi að afnema gjaldeyrishöftin. Eina lausnin, sem ég hef séð til þess að ná öllum þessum markmiðum fljótt og vel er að taka hér upp nýjan íslenskan lögeyri, sem við getum kallað t.d. mark eða mörk, en skulum kalla hér til hægðarauka hinu gamla heiti ríkisdal, enda hefur það heiti þegar annars staðar verið kynnt til sögunnar. Verðgildi ríkisdalsins yrði þá væntanlega sem næst því hið sama í krónum og gengi Bandaríkjadals væri á skiptideginum, en ríkisdalurinn yrði fasttengdur við dollarann þ.e. dalur á móti dal við Bandaríkjadal, mest notaða gjaldmiðil veraldarinnar eða í um 90% milliríkjaviðskipta heimsins. Gengi ríkisdalsins mundi þá sveiflast með Bandaríkjadal gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Þetta kostar mjög lítið og við höfum gert ekki ósvipað áður, þegar nýkrónan var tekin upp, en með þessu öðluðumst við þegar eins mikinn gengisstöðugleika og hægt er að ná og sveiflur þá mjög vægar. En ríkisdalurinn er einnig lykillinn að öðrum mikilvægu aðgerðunum, sem væru ekki mögulegar ef að við hefðum þegar tekið einhliða upp einhverja erlenda mynt, því þá ryki allt stjórnlaust úr landi og við sætum aðeins uppi með allar skuldirnar. Snjóhengjan Mér skilst að aflandskrónurnar séu nú samtals um 1.000-1.200 milljarðar og fer sú upphæð hraðvaxandi vegna hávaxtatekna og er sá kostnaður á herðum íslenskra lántakenda. Þar fyrir utan er svo stóreign þrotabúanna í gjaldeyri jafnvel talin vera yfir þrjú þúsund milljarðar. Þetta fé vill allt úr landi og málið er þegar vaxið yfir höfuð okkar og hætta er á að málið muni enda með einhverri skelfingu, því að það er ekki og verður ekki til gjaldeyrir til að skipta þessum krónum yfir í eða ef t.d. að þessir aðilar keyptu og kæmust yfir stóran hluta fyrirtækja og eigna landsins og miðanna með öllum krónunum og við þá verða ánauðug þeim. Því verður að ráðast til atlögu við hengjuna strax og það áður en hún hengir okkur. Enginn veit hverjir eigendur vogunar sjóðanna eða hrægammarnir eru í raun, en þeir eru stærstu eigendur þrotabúa bankanna, en tvö þeirra eiga svo tvo af stærstu bönkunum. Því þarf að setja strax á lög, þar sem þeim verður öllum gert undanbragðalaust að upplýsa um eignarhald sitt alveg niður í það smæsta og nafngreina einstaklingana, sem standa á bak við þá. Þetta verður mikið mál fyrir þá að upplýsa, því að eigendurnir fela sig á bak við félög, sem eru í eigu annarra félaga, sem eru í eigu enn annarra félaga, sem gjarnan eru svo í einhverjum skattaparadísum. Þeim verður auðvitað meinilla við slíkar kröfur, því að þeir vilja ekki láta aðra vita um brall sitt og vilja vinna í myrkri og því væri þannig komin ákveðin pressa og tangarhald á þeim. Með hinum nýja lögeyri þyrftu allir að skipta gömlu krónueignunum yfir í ríkisdalinn, en með því að vera sjálfstæð þjóð með eigið löggjafarvald, þá má setja ýmis lög og reglur m.a. um takmarkanir á því hverjir fái hinn nýja lögeyri og hverjir ekki. Þannig mætti einmitt undanskilja erlenda krónueigendur og auðvitað þrotabú gömlu bankanna, en dómurinn í Icesave-málinu kveður á um að greiða eigi kröfuhöfum bankanna í íslenskum krónum og kemst landið þá væntanlega yfir hina stóru gjaldeyriseign þrotabúanna. Þannig væri hægt að festa þá viðkomandi, sem við viljum í gömlu krónunum og gera þeim að geyma þær á sérstökum lokuðum reikningum og greiða geymsluvexti af. Að semja út frá styrk Nú væri orðið sorfið að liðinu og komin sterk og alvöru samningsstaða og vandséð er með hvaða hætti öðrum eða á hvaða forsendum hægt væri að ná einhverjum bitastæðum samningum um það mál með svipuðum árangri, því nú gætum sett skilmálana svo til einhliða. Til þess að þeir losni úr prísundinni, þá mætti bjóða viðkomandi að þiggja skuldabréf í Bandaríkjadölum til langs tíma, svo við hefðum svigrúm til þess að rétta úr kútnum, með lágum vöxtum og á aflandskrónugengi og með 90-95% afföllum. Eigendur þrotabúanna hafa þó þegar matað krókinn með hávaxtatekjum og hafa náð að koma arðgreiðslum úr landi í gjaldeyri í sérstöku vildarboði seðlabankans og við skulum muna að allir viðkomandi eru áhættufjárfestar og að hrægammasjóðir eru alls staðar afar óvinsælir, svo ekki er að búst við miklum mótmælum frá útlöndum. Þessir umræddu peningar yrðu þannig nú hjá íslenska ríkinu, en ekki bönkunum, vogunarsjóðunum, aflanskrónueigendum eða nýjum hræætum. Nota þyrfti þá féð, sem þannig fengist, til þess að greiða niður skuldir ríkisjóðs, í arðbærar fjárfestingar, til heilbrigðiskerfisins, til að takast á við fátæktina og til leiðréttingar kjara aldraðra og öryrkja, uppbyggingar landsins, lækkunar skatta o.s.frv., en ekki í skuldaleiðréttingu heimilanna, enda þá búið að leysa þau mál með öðrum hætti. Þetta er einnig fljótvirkasta aðferðin til þess að losna við gjaldeyrishöftin, sem er þriðja aðalmarkmiðið. Athugum að engin önnur gjaldmiðilsbreyting hvorki evra né nokkuð annað hefði áhrif á skuldastöðu ríkisins eins og þessi leið gerir svo vel. Hagsmunir Íslands eru gríðarlegir þarna og til samantektar um ábata þess að taka hér upp ríkisdalinn er að með því næðist: Gengisstöðugleiki Samningar út frá styrk við þrotabú bankanna og aflandskrónu- eigendur Stórfé rennur til ríkissjóðs, skuldir hans greiddar niður og ýmsar hagfelldar aðgerðir loks mögulegar Gjaldeyriseign þrotabúanna upp á e.t.v. þrjú þúsundir milljarða tekin yfir og erlendar skuldir Íslands greiddar niður Möguleiki á lækkun eða uppgreiðslu lánsgjaldeyrisvaraforða seðla- bankans, sem kostar tugi milljarða króna í gjaldeyri á ári í vexti Möguleiki á afnámi gjaldeyris- haftanna fyrr en síðar Stóraukinn möguleiki á erlendum fjárfestingum og orkusölu og arðsamri uppbyggingu Möguleiki á að hleypa einhverju af fé lífeyrissjóðanna úr landi til erlendra fjárfestinga (þá vonandi gegn því að þeir komi fyrirtækjum í þeirra eigu aftur til einstaklinga) Möguleiki á því að erlendir bankar vilji koma hér upp útibúum. Þetta verður að gerast – borgararnir hvetji til dáða Vandséð er nokkur önnur aðgerð, sem er einfaldari, ódýrari, fljótvirkari og áhrifameiri til að ná fram öllum þessum markmiðum en ríkisdalurinn og það þannig með einu höggi má segja. Mér sýnist því, að það yrðu slæm býtti að ætla að selja nýjum hræætum þrotabúaeignirnar fyrir einhverja smáaura. Væntanlega verður það einnig eitthvað léttara að berja saman fjárlögin að þessum aðgerðum loknum eða hvað? Hvað finnst kjósendum um þetta? Væri það ekki óðs manns æði að fara ekki út í og hvetja ekki til þessara lang brýnustu peningagefandi aðgerða ríkisins? Látið hátt í ykkur heyra svo eitthvað hreyfist. Það eru eins og sumir séu annað hvort blindir eða þá naglfastir í íhaldssömum viðhorfum sínum og aðhafast ekkert. Það þarf ekkert hugrekki. Aðeins smá ímyndunarafl. Þetta er lífsspursmál fyrir þjóðina og þessar aðgerðir verða að verða að raunveruleika. Kjartan Örn Kjartansson Höfundur er fyrrverandi forstjóri Bloggsíða: framavid.com Vandséð er nokkur önnur aðgerð, sem er einfaldari, ódýrari, fljótvirkari og áhrifameiri til að ná fram öllum þessum markmiðum en ríkisdalurinn og það þannig með einu höggi má segja. Kraftmeiri skógur er fjölþætt fræðslu verkefni í skógrækt og lítil- lega var greint frá í síðasta Bænda- blaði. Þessu verk efni er ætlað er það hlutverk að ná til sem flestra Íslenskra skógar eigenda með almennri fræðslu í leshringjum, persónulegum heim sóknum fagfólks til skógarbænda, útgáfu skógarbókar, virkri heimasíðu og ýmiss konar símenntun. Í völdum skógum verða svo opnaðir sýni - reytir sem nýtast leshópum sem og öðrum til fræðslu. Hrönn Guðmundsdóttir nýr formaður Landssamtaka skógar- eigenda, segir að hugmyndin sé að af stað fari átta leshópar um land allt þar sem jafn margir skógarbændur sjá um að stýra umræðum í hópnum. Vinna leshópanna byggist á nýútkominni bók, Skógarauðlindin – ræktun, umhirða og nýting. Landsliðsþjálfarinn fékk fyrsta eintakið Fyrstu eintök bókarinnar voru afhent á aðalfundi Landssamtaka skógareig- enda en Lars Lagerbäck landsliðs- þjálfari var fenginn til að afhenda ráðherra, formanni LSE, skógræktar- stjóra og rektor LBHÍ fyrstu eintökin. Lars er skógarbóndi í Svíþjóð og hefur tekið þátt í verkefninu Kraftsamlig skog, sem er fyrirmynd verkefnisins „Kraftmeiri skógur“. Námskeiðið „Á stubbnum“ er stutt námskeið sem haldið verður á Hvanneyri í byrjun nóvember næst- komandi. Námskeiðið er sniðið að skógareigendum sem ekki hafa tök á að starfa í leshópum, eða öðrum nám- skeiðum og hafa áhuga á að fræðast um skógrækt. Nytjaskógrækt er langtímaverkefni Hrönn segir að skorað sé á skógarbændur að nýta sér það einstaka tækifæri að taka þátt í leshópum eða að sækja námskeiðið Á stubbnum. „Þekking á atvinnu- greininni er forsenda þess að góður árangur náist. Yfirsýn og það að réttar ákvarðandir eru teknar á hverjum tíma ræður miklu um lokaútkomu þessa langtímaverkefnis sem ræktun nytjaskóga er,“ segir hún. Nánari upplýsingar um skráningu í leshópa og á námskeiðið er að finna á heimasíðunni www.skogarbondi.is og www.lbhi.is. Skógarauðlindin – ræktun, umhirða og nýting er bók fyrir virka skógareigendur og þá sem vilja verða það. Hægt er að panta bókina á ritari@ritari.is og hronn.lse@gmail. com Fræðsluverkefnið Kraftmeiri skógur: Þekking forsenda þess að árangur náist í skógrækt FRá vinstri: Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari, Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra, Björn B. Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlands- skóga og í ritnefnd bókarinnar, og Björgvin Örn Eggertsson, verkefnastjóri Starfs- og endurmenntunar deildar LBHÍ og í ritnefnd bókarinnar. Mickey Thompson dekkin hafa sannað sig á Íslandi ! Hið heimsþekkta merki Mickey Thompson hefur verið selt á íslandi í áratugi en dekkin hafa verið framleidd síðan árið 1963, Mickey Thompson er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur. á Mickey Thompson jeppadekkjum í völdum stærðum LAGERSALA Nánari upplýsingar: www.mtdekk.is mtdekk@mtdekk.is Sími: 773 4334 ALL BAJA MTZ RADIALS FEATURES Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.