Bændablaðið - 19.09.2013, Page 40

Bændablaðið - 19.09.2013, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 hlj@bondi.is Vélabásinn Hjörtur L. Jónsson Fyrir nokkru las ég að íslenskir bílaprófunarblaðamenn hefðu valið Mitsubishi Outlander einn af topp bílum í flokki fjór- hjóladrifinna fólksbíla í vali á bíl ársins. Þar sem ég hafði ekki prufuekið þessum bíl vildi ég vita hvernig mér líkaði bíllinn og renndi við í Heklu og fékk bílinn í prufuhring. Frá því að fjórhjóladrifinn Outlander kom fyrst fyrir sjónir Íslendinga hefur bíllinn breyst mikið og þá sérstaklega hvað varðar öryggishliðina sem fjölskylduvænn bíll með öryggi fjölskyldunnar í fyrirrúmi. Eftir prufuaksturinn skil ég vel að Outlander fái góða einkunn. Tvennt var ég ekki ánægður með, en bíllinn var á heilsársdekkjum og heyrðist örlítið veghljóð frá þeim á nýju malbikinu, einnig að speglarnir á hliðunum mættu vera stærri (ná aðeins utar). Að öðru leyti var allt gott við bílinn. Hraðastilling, árekstrarvörn og akreinavari virka vel Outlander er útbúinn með skynjara/ myndavél efst í framrúðunni (bak við baksýnisspegilinn). Þessi skynjari gerir a.m.k. þrennt: Sjálfvirk hraðastilling (ACC), árekstrarvörn að framan og akreinavari. Sjálfvirk hraðastilling virkar þannig að keyri maður á 90 og kemur aftan að bíl sem er á 80 hægir bíllinn sjálfkrafa á sér. Árekstrarvörnin (FCM) virkar þannig að ef bíllinn fyrir framan bremsar eða stoppar skyndilega bremsar Outlander sjálfur. Akreinavari (LDW) virkar þannig að ef maður fer yfir heila línu eða punktalínu án þess að gefa stefnuljós flautar mælaborðið á bílstjórann en gefi maður stefnumerki og beygir svo yfir línuna kemur ekkert hljóð. Hægt er að slökkva á þessum nemum í mælaborðinu en ég mæli ekki með því sérstaklega úti á vegum í langkeyrslu því að í gegnum árin hafa fjölmargir keyrt útaf vegi og lent í tjónum. Með LDW akreinavarann flautar mælaborðið á mann áður en í óefni er komið. Mikið og gott rými Sama hvar er komið inn í Outlanderinn blasir við mikið og gott pláss (minnir einna helst á félagsheimilið í Stuðmannamyndinni sem var svo lítið að utan en risastórt að innan). Farangursrýmið er mjög stórt og undir gólfplötunni þar eru mörg lítil gagnleg hólf. Farþegasætin eru þægileg, farþegar sitja hátt og hafa gott útsýni. Þegar ég settist aftur í bílinn mældi ég frá hnjám og fram í bakið á framsætinu fyrir framan voru það á milli 23 cm og 28 cm, sem er það mesta sem ég hef mælt í sambærilegum bíl. Ökumannssætið er þægilegt og fótarými gott fyrir bæði bílstjóra og farþega við hlið hanns. Mikill munur á eyðslu að keyra með ECO á eða ekki Fyrst byrjaði ég að keyra um á bílnum án þess að vera með Eco- takkann á og sagði aksturstölvan mér að með þessu aksturslagi mundi ég komast á bilinu 400 til 500 km á því sem að eftir væri af dísil í tanknum. Eftir um 10 mínútna akstur á Eco-takkanum sagði tölvan í bílnum mér að ég kæmist um 700 km með þessu aksturslagi. Hins vegar fann ég að bíllinn var töluvert slappari í snerpu og upptaki með Eco-takkann inni. Í langkeyrslu með Eco-takkann var ég að eyða 6,4 lítrum af dísil á hundraðið en innanbæjar var ég ekki með Eco-takkann inni og samkvæmt aksturstölvunni eyddi ég 10,1 á hundraðið. Bíllinn er gefin upp fyrir að eyða 4,6 í langkeyrslu og 6,4 innanbæjar en væntanlega eru báðar þessar tölur væntanlega miðað við bestu aðstæður og með Eco-takkann á, allavega viðurkenni ég ekki að hafa verið að spyrna bílnum mikið innanbæjar. Snerpan svolítið skrítin Þegar lagt er af stað úr kyrrstöðu fer Outlander mjúklega af stað fyrstu bíllengdina og síðan er eins og hann fái spark. Bíllinn hreinlega hendist áfram enda er hann með 150 hestafla dísilvél. Skiptingin í sjálfskipta bílnum er sex þrepa og hægt er að handskipta upp og niður án þess að sleppa stýrinu. Dísilvélin er 2.268 rúmsentimetrar og á að skila 150 hestöflum (sem ég efa ekki því mér fannst bíllinn vinna mjög vel). Verðið á Mitsubishi Outlander diesel er 6.390.000. Allar nánari upplýsingar veitir Stefán Sandholt, sölustjóri Mitsubishi, í Heklu eða www.hekla.is. Mitsubishi Outlander með 150 hestafla dísilvél: Fjölskylduvænn fjórhjólabíll með öryggið í fyrirrúmi MMC Outlander er virkilega fjölskylduvænn bíll. Myndir / MLJ Um 23-25 cm pláss fyrir framan hné hjá mér í aftursætinu. Farangursrýmið er virkilega stórt. Undir hleranum eru mörg lítil gagnleg hólf. Nemar fyrir öryggisbeltin sýna hvort farþegar í aftursætum eru með beltin spennt. Í bakkmyndavélinni sést vel aftur og líka í myrkri. Vinstra megin við stýrið eru stjórn- takkarnir á vegmerkingarlesaranum og bremsuvaranum. Lengd: 4.655 mm Hæð 1.680 mm Breidd: 1.800 mm Þyngd: 1.415 kg Vél: Dísil 2.268 cm3 150 hestöfl Mitsubishi Outlander kostar 6.390.000 Bændablaðið Kemur næst út 3. október

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.