Bændablaðið - 19.09.2013, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Hagsýnar fjölskyldur taka slátur
MATARKRÓKURINN – MARGRÉT D. SIGFÚSDÓTTIR
Sigurður kom inn í búreksturinn
í Steinsholti 1 með foreldrum
sínum og föðursystkinum árið
1984 – og tók við kúabúinu 1986.
Sigríður Björk flutti í Steinsholt og
kom í búskapinn með Sigurði árið
1991. Búið hefur verið byggt upp og
stækkað margfalt á þessum tíma.
Býli? Steinsholt 1.
Staðsett í sveit? Skeiða- og
Gnúpverjahreppi.
Ábúendur? Sigurður Loftsson og
Sigríður Björk Gylfadóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Fjögur börn eru á heimilinu: Gylfi
búfræðingur, Gígja nemi, Sveinn
á fjórða ári ML og Hrafnhildur
Jóhanna Björg á öðru ári ML.
Hefðarkötturinn Esmeralda og
fjósmæðginin Felix og Mía.
Stærð jarðar? Um 500 ha.
Gerð bús? Kúabú með léttu ívafi.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um 50
kýr ásamt uppeldi, 25 ær, 20 hross
og stundum eitthvað fleira til
gamans.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Verkefnin eru breytileg milli
árstíða en mótast nokkuð nú um
stundir af því að hjónin eru bæði
í öðrum störfum (leikskólastjóri
og formaður LK). Það tognar því
stundum á vinnudeginum en hann
byrjar ætíð og endar í fjósinu.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Í raun eru flest verkefni
skemmtileg, sérstaklega ef þau
ganga bærilega fyrir sig. Það er
hins vegar alltaf leiðinlegt að
missa skepnur.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni
eftir fimm ár? Vonandi í
áframhaldandi vexti.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Við höfum á þeim
talsverðar skoðanir en látum hjá
líða að úttala okkur um það þar
sem slík störf standa okkur talsvert
nærri nú um stundir.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni?
Ísland er gott grasræktarland og
hér er gnægð af hreinu og góðu
vatni. Í því felast mikil tækifæri
og framtíðin er björt ef arðsöm,
öfgalaus og aðgætin framtíðarsýn
fær að ráða för.
Hvar teljið þið helstu tækifærin
í útflutningi íslenskra búvara?
Þau tækifæri geta leynst víða ef
rétt er á málum haldið og land-
búnaðurinn fær að þróast með
eðlilegum hætti.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, smjörvi, ostur, egg,
grænmeti – já og bjór!
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Grillað lamb og naut
úr eigin framleiðslu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Á löngum búskapar-
tíma gerast mörg eftirminnileg
atvik. Flest hafa þau verið til
góðs og búreksturinn styrkst með
árunum, það skiptir mestu máli.
Steinsholt
Blóðmör
› 1 lítri blóð
› 7 dl vatn
› 2 msk. gróft salt
› 400 g haframjöl
› 500 g rúgmjöl
› 500-600 g mör
Sigtið blóðið og blandið vatni og
salti út í ásamt haframjölinu. Látið
standa í smá stund á meðan saltið leys-
ist upp og haframjölið blotnar. Setjið
rúgmjölið út í ásamt mör og hrærið
á meðan. Varist að gera hræruna of
þykka.
Felið upp, þ.e. setjið hræruna í
keppina. Hafið þá rúmlega hálfa og
saumið fyrir.
Pikkið lítil göt á hvern kepp með
nál og setjið í sjóðandi vatn með salti.
Sjóðið í 2½ klst.
Það slátur sem á að frysta er sett
í frystipoka en gott ráð er að hafa
pokana flata með því að hafa þá á
bökunarplötu, loka vel og setja strax
í frost.
Lifrarpylsa
› 2 lifrar
› 4 nýru
› 2 msk. gróft salt
› 6 dl mjólk
› 1½ dl heitt vatn og
½ súputeningur
› 300 g haframjöl
› 400 g rúgmjöl
› 300-400 g smátt skorinn mör
Himnuhreinsið lifur og nýru með því
að klæða þau úr himnunni. Maukið
í matvinnsluvél.
Setjið lifrarhræruna í rúmgott fat,
blandið vökva, salti og haframjöli
saman við. Látið standa í um 5 mín-
útur á meðan saltið leysist upp og
haframjölið blotnar.
Hrærið rúgmjöli og mör saman
við og passið að hafa hræruna ekki
of þykka. Lifrarhræran er höfð
þykkari en blóðmörshræran. Gott er
að setja örlítinn sykur út í hræruna,
1-2 tsk.
Hálffyllið keppina og saumið
fyrir með bómullargarni. Ágætt er
að nota gamaldags rjómasprautu við
að koma hrærunni fyrir.
Pikkið með nál og setjið
út í sjóðandi vatn, sjóðið í 2½
klukkutíma. Athugið að salta vatnið.
Ef frysta á keppina eru þeir settir í
plastpoka. Þegar slátur er tekið úr
kistunni til suðu eru frosnu kepp-
irnir settir út í heitt vatn með salti
og soðnir í 3 klukkutíma. Ekki láta
slátrið þiðna fyrir suðu. Þegar slátrið
er fryst eru göt pikkuð á keppina
þegar suðan kemur upp.
Nú er sláturtíðin komin á fullt
og hagsýnar fjölskyldur fara að
taka til við sláturgerð. Slátur er
bæði hollt og gott auk þess sem
það er ódýr matur. Margrét
D. Sigfúsdóttir, skólastjóri
Hússtjórnarskólans í Reykjavík,
deilir hér uppskriftum að blóð-
mör og lifrarpylsu auk þess að
gefa góð ráð.
Margrét segir að best sé að
undir búa sláturgerðina í tíma. „Það
er nauðsynlegt að kaupa hráefnið
degi áður því blóðið er selt frosið og
þarf að þiðna. Þá er hægt að létta sér
verkin með því að vinna sér í haginn
með ýmsu móti.“ Hún nefnir að
sviðahausana sé best að setja strax
í frystinn þegar heim er komið eða
sjóða þá strax. Þá sé hægt að gera
sviðasultu eða hafa þau einfaldlega
í kvöldmatinn þann daginn. „Ég
legg mikla áherslu á að halda öllu
hráefni vel kældu og viðhafa mikið
hreinlæti við sláturgerðina eins og
ávallt við alla matreiðslu.“ Margrét
bendir á að það sem þurfi að hafa
við hendina við sláturgerðina sé
góður bali eða vaskafat, gróf nál,
sláturgarn og frystipokar. Hún gefur
lesendum eftirfarandi ráð og lætur
klassískar sláturuppskriftir fylgja
m.v. tvö slátur.
Slátur er selt annað hvort sem
„þrjú slátur“ eða „fimm slátur“.
Þrjú slátur eiga að duga í um níu
máltíðir fyrir fjögurra manna
fjölskyldu ef allt hráefnið er notað
og bæði gerð lifrarpylsa og blóðmör.
Byrjum á mörnum
Hvort sem gerð er lifrarpylsa eða
blóðmör þarf að byrja á því að skera
niður mörinn í hæfilega bita. Mælt er
með því að skera hann ekki of smátt
því þá geta þeir sem ekki vilja mikla
fitu tekið bitana frá þegar slátrið er
tilbúið. Ef kirtlar fylgja í mörnum eru
þeir skornir frá og fleygt. Mörinn er
síðan geymdur á köldum stað þar til
hann er notaður.
Saumaskapur
Þar næst eru vambir og keppir teknir
úr sláturkassanum og allt skolað.
Sníða má 4 til 5 keppi úr hverri
vömb en keppirnir eru síðan saumaðir
saman með sláturgarni og skilið eftir
vænt op. Geymið keppina á köldum
stað á meðan lifrar- eða blóðmörs-
hræran er löguð.
Einu slátri fylgir:
» sviðahaus,
» tvö nýru,
» lifur,
» hjarta,
» mör,
» frosið blóð,
» vömb og keppur