Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 47

Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Eigum allar síur í New Holland og JCB á lager Skeiðarás 3 Garðabær Sími 5272600 velavit@velavit.is Varahlutir - Viðgerðir sérhæfum okkur í JCB Hydrema Iveco New Holland og Case Vélavit Oftast ódýrastir! JCB Næsta Bændablað kemur út 3. október Skelltu inn smáauglýsingu með farsímanum eða spjaldtölvunni SÁRASPREY FYRIR ÖLL DÝR · Einstaklega græðandi · Hægir á blæðingu · Dregur úr sársauka og kláða · Myndar filmu og hlífir sári · Vinnur gegn bakteríu- og sveppamyndun · Íslensk framleiðsla NÝSKÖPUNARVERÐLAUN ÍSLANDS 2012 Siglufjörður · Sími 460 6900 · info@primex.is · www.primex.is Fæst hjá dýralæknum, hesta- og búvöru- verslunum um land allt Ný heklbók eftir Tinnu Þórudóttur Þorvaldar er komin út, María heklbók en þetta er önnur bók Tinnu. Hér hefur hún sett markið hærra og hannað allar uppskrift- irnar sjálf. Þar að auki hefur hún bætt við ítarlegum tæknikafla með gagnleg- um aðferðum sem nýtist öllum þeim sem leggja stund á hekl. Tinna byggir hönnun sína jafnt á handbragði for- mæðra sinna og eigin sköpunargleði. Útkoman er glæsileg og fjölbreytt heklbók sem er langþráð viðbót við íslenska hannyrðamenningu. Í bók- inni má finna 25 glænýjar og spenn- andi uppskriftir, fyrir reynda sem óreynda, en systurnar Ingibjörg og Lilja Birgissdóttir tóku ljósmyndir og sáu um útlit bókarinnar. Það gengur ekki alltaf slysalaus að heimta fé af fjalli. Þegar féð var komið af fjalli úr heimalandi Fljótsdals í Fljótshlíð lenti Anna Runólfsdóttir í smá óhappi. Hún var að remb- ast við að koma fénu inn í hús þar sem átti að taka lömbin undan ánum til slátrunar en rak augabrúnina í gaddavír svo að töluvert blæddi úr. Bóndi hennar Keli kom þá með kaldan bjór sem hún setti upp að auganu til að stoppa blæðinguna. Eftir blæðingar- stoppið var bjórinn auðvitað nýttur til and- legrar hressingar. Mynd / HLJ Ný heklbók Að orfa gras og hrífa hey Fyrir allnokkrum árum komu á markað áhöld sem á íslensku var farið að kalla vélorf. Ruddu þau sér til rúms innan garðahirðu, við slátt á löndum sumarbústaða og víðar. Áhöld þessi, prik með litlum mótor á efri enda og þráðum út frá hraðgengri skífu á þeim neðri borin í þægilegri ól og stýrt með hælum líkt og hefðbundnu orfi, hafa um margt reynst hin bestu áhöld. Þegar kom að því að gefa áhald- inu og vinnu þess íslenskt heiti varð mönnum eðlilega fyrir að líta til gamla amboðsins. Ekki þótti öllum rétt að tala um slátt því ekki slær grasabaninn eins og á hinn eldri máta – miklu frekar að hann mjaki orfinu til og frá á meðan þræðirnir merja grösin laust frá rótum sínum. Hér má nefna að hið enska heiti áhaldsins, brush cutter eða trimmer, hefur raunar afar óljósa tengingu við slátt. Líkamleg áreynsla er sömuleiðis allt önnur: Orfið er borið á öxlum og öll hreyfing „sláttumannsins“ að mestu án þeirrar hrynjandi sem er helsta einkenni sláttar með orfi og ljá á sæmilega greiðfæru landi. Í beitingu vélorfsins þótti þó felast nægilega mikil samlíking við það „að slá“ með orfi og ljá til þess að tala mætti um sláttuorf. Heitið orf á sér samsvörun í norrænu málunum, þ.e. orv. Í fornháþýsku er til orðmyndin worf (ljáskaft). Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók eftir Ásgeir Blöndal Magnússon er gríska orðið rhapís (stafur, trjágrein) talið vera skylt. Orf getur því maklega átt við þann staf eða prik sem er burðarás vélorfs. En hvernig mætti þá gera grein- armun í máli á hinni hefðbundnu aðferð við að slá með orfi og ljá og hinu að losa gras af rót með vélorfi? Einhver snjall garðyrkjumaður hefur sennilega fundið lausn á því. Kári Aðalsteinsson garðyrkjustjóri hjá Landbúnaðarháskóla Íslands segir mér að innan skrúðgarðyrkj- unnar hafi um árabil við notuð sögn- in að „orfa“ um „slátt með vélorfi“. Telur hann að sagnorðið hafi þar áunnið sér fastan sess. Ég skal viðurkenna að í fyrstu hljómaði hugtakið að orfa dálítið undarlega í eyrum mínum. Við nánari umhugsun sá ég þó að þarna var komin ágæt lausn til að halda aðskildum heitum amboða tímanna tveggja, sem að sönnu hafa sama tilgang en gerólíkan hátt á að ná honum: - Við sláum gras með ljá í orfi - Við orfum gras með vélorfi Og þá má enda pistilinn á því að ég hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að heyrst hafi að hey sé hrífað. Styttist þá í að mold verði skóflað og kjötstykkið hnífað. Nafn áhaldsins gefur sögnina er lýsir verknaðinum . . . Líklega ekki með öllu út úr korti; við ausum jú með ausu og heflum með hefli. Svona getur nú tungu- málið verið þjált og lagað sig að breytilegri tækni áhalda og verka með liprum hætti. /BG Ásdís Helga Bjarnadóttir, verk- efnisstjóri, slær stör á Hvann- eyrarengjum. Myndir / BG. Hannes Tryggvi Hafstein, skóg- fræðinemi á Hvanneyri, orfar gras þar í síðsumarsólinni. Til sölu Ford Transit T125 300, dísel, árg. ´05, ek. aðeins 131 þús. Nýlega sprautaður, ný kúpling, nýtt í bremsum og nýr startari. Skráður 7 manna. Góður bíll og vel við- haldið. Nýskoðaður. Uppl. í síma 663-4455.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.