Læknablaðið - 01.09.1958, Page 30
80
LÆKNABLAÐIÐ
möguleikann á holdsveiki í
huga við sjúkdómsgreiningar
síðasta áratuginn. Sumir yngri
læknanna hafa sennilega aldrei
séð holdsveikisjúkling.
Yið slikar kringumstæður er
ekki óeðlilegt, þótt það geti tek-
ið nokkurn tíma að greina rétt
nýja holdsveikisjúklinga.
1 ritgerð, sem próf. Sæmund-
ur Bjarnliéðinsson skrifaði i
Læknablaðið 1922, um út-
breiðslu lioldsveiki á Islandi,
telur hann horfur góðar á út-
rýmingu veikinnar. Hann varar
þó jafnframt við þeirri hættu,
sem getur stafað af því, ef lækn-
ar eru ekki nóg á verði gegn
sjúkdóminum og g'leyma að
hann sé enn í landinu og
nýrra holdsveikisjúklinga geti
verið von. I þvi sambandi minn-
ir liann á það, þegar árveknin
minnlcaði í Noregi, skömmu
fyrir 1920. Þá var tala holds-
veikra í Noregi komin niður i
150, en hafði verið um 3000 um
1850. Einn lioldsveikraspítali af
fjórum var þá eftir í Noregi, og
þingmenn voru farnir að tala
um að leggja þennan eina spít-
ala niður í sparnaðarskvni, því
að margir töldu, að veikin
myndi deyja út af sjálfu sér.
En um þetta leyti vöknuðu
Norðmenn við vondan draum,
þvi að 1919 og 1920 fundust upp
undir 20 nýir sjúklingar, flestir
líkþráir. Læknar höfðu haldið,
að þetta væri syfilis eða eczem
og aðrir húðsjúkdómar. Sjúk-
lingarnir höfðu þvi Iengi gengið
lausir og sennilega smitað
margra, áður en nokkrum datt í
hug, að þetta gæti verið holds-
veiki.
Saga leprasjúklingsins hér
að framan er sögð til að
hvetja til árvekni. Það eru ekki
nema 20 ár siðan sjúklingur
með lepra tuherosa (líkþrá)
fannst á Akurevri, og 4 árum
áður fannst ung líkþrá kona í
Reykjavík, tveggja barna móðir.
Enn eru því á Islandi nokkrir
menn, sem verið hafa samvist-
um við líkþráa og það er vitað,
að inkubations-tími lepra getur
verið langur. Það er því sjálf-
sagt fyrir lækna að hafa í huga
möguleika á nýjum holdsveiki-
sjúklingum enn um skeið. Ef
það er ekki gert, gæti svo farið,
að líkþráir gengju hér um með-
al Islendinga á síðari hluta 20.
aldar.
Summary.
A short review of the decrease
of Lepra in Iceland since the year
1900 is given. In the year 1893 there
were 236 Lepra patients in the
country or 3,1%C of the inhabitants.
In the year 1901 the patients were
169, year 1920 patients 67, year 1940
patients 22 and in the year 1958
there are 8 patients of Lepra known
of, amongst the 165 thousand in-
habitants.
Heimildarrit:
1. Heilbrigðisskýrslur.
2. Læknablaðið, 8. árg., 17. febrúar
1922. Sæm. Bjarnhéðinsson.
Guðm. Benediktsson.