Læknablaðið - 01.10.1959, Side 10
112
LÆKNABLAÐIÐ
kandidatsprófi við Iláskóla
íslands vorið 1925. Sigldi hann
þegar í stað og lauk námi sínu
á fæðingardeild Ríkisspítalans
í Kaupmannahöfn. Var síðan
rúmlega eins árs skeið stað-
göngumaður héraðslæknis í
Blönduóshéraði, en sigldi til
Þýzkalands seint á árinu 1926
og lagði stund á húð- og kvn-
sjúkdómalækningar bæði þar
og í Danmörku. Arið 1928 var
hann af Læknafélagi íslands
viðurkenndur sérfræðingur i
húð- og kynsjúkdómum og sett-
ist þá að sem starfandi læknir
í Reykjavik. Sama ár var hann
ráðinn kynsjúkdómalæknir
ríkisins samkvæmt kynsjúk-
dómalögum og árið 1934
deildarlæknir við húð- og kyn-
sjúkdómadeild Landspítalans.
Enn fremur var hann yfirlækn-
ir við holdsveikraspítalann i
Kópavogi um skeið. Frá árinu
1945 starfaði hann sem docent
i húð- og kynsjúkdómum við
læknadeild Háskólans. Þá veitti
hann forstöðu húð- og kynsjúk-
dómadeild heilsuverndarstöðv-
ar Revkjavikur frá því að liessi
deild hóf starf sitt árið 1954. f
Reykjavík var Hannes starf-
andi læknir i meir en 30 ár.
Félagsmál lét hann allmjög
til sín taka. í stjÓrn L. R. var
hann 1932—1936 og hin síðustu
ár gjaldkeri í stjórn L. í.
í starfi var Hannes mjög
áhugasamur. Hann fylgdist vel
jneð öllum nvjungum i fræði-
grein sinni, las mikið og rit-
aði talsvert í innlend og erlend
læknarit. Hann fór oft utan til
funda og fræðsluleitar meðal
erlendra stéttarbræðra.
Fáum mun til fulls kunnugt
hið mikla starf Hannesar í kyn-
sjúkdómavörnum jjessa lands.
Hann var hógvær maður, sem
lét litið yfir sér og kunni vel
að meta það traust, er sjúkling-
ar svndu, er þeir opnuðu lion-
um hug sinn allan varðandi
sjúkdóm sinn og sjúkdómsor-
sakir. I lygg ég, að eigi hafi aðr-
ir læknar hérlendis eða erlend-
is komizt lengra en hann í að
rekja orsakir smitana og ná
fullum ti'únaði sjúklinga sinna,
en slíkt er fvrsta skilyrði ár-
angursríks starfs á þessu sviði.
Hin prúða og rólega framkoma
hans samfara hispurslevsi og
ágætri athyglisgáfu auðveld-
uðu honum starfið, svo að
óvenjulegur árangur varð af.
Hannes var mjög fjölhæfur
maður sem hann og átti kyn
til. Hann var hagur vel og átti
mörg áhugamál. Sumarhús
hans i Fossvogi og trjálundur-
inn jiar hera um þetta ljós
vitni, en öll mannvirki þar voru
unnin af honum sjálfum og
konu hans.
Hannes var tæplega meðal-
maður á hæð, grannholda, ljós
yfirlitum, bláeygur, sviphreinn
og fríður sýnum. Hvar sem
hann fór vakti hin ljúfa og
prúðmannlega framkoma hans