Læknablaðið - 01.10.1959, Side 20
122
LÆKN ABLAÐIÐ
arakstri manna byggist á niður-
stöðuin blóðrannsókna, að lang
mestu leyti.“
Þessi úrskurður var staðí'est-
ur í Hæstarétti.
Spurningar Læknafélags Is-
lands eru þessar:
1. „liefur óbreyttur lögreglu-
þjónn hér eftir vald til þess
að fyrirskipa lækni að taka
sakborningi blóð til ófengis-
rannsóknar gegn vilja á-
kærða, eða getur læknir kraf-
izt úrskurðar dómara liverju
sinni.
2. Getur læknir neitað að fram-
kvæða blóðtöku gegn vilja
ákærða af heilsufarslegum
ástæðum eða öðrum orsök-
um.“
Svar: Samkvæmt lagaá-
kvæðum þeim, er að framan
greinir, verður að telja, að lækni
sé almennt skylt að framkvæma
blóðrannsókn á manni, sem
lögreglumaður flytur til hans i
því skyni. Hins vegar lilýtur
læknir að meta það hverju
sinni, livort heilsa mannsins
leyfi blóðtökuna eða ekki. Telji
læknir einhvern vafa vera i
þessu efni, hlýtur honum jafn-
an að vera heimilt að krefjast
úrskurðar dómara, en þeim úr-
skurði verður læknirinn að
sjálfsögðu að hlíta.
3. „Geta almennir læknar neit-
að blóðtökum gegn vilja sak-
bornings og vísað til embætt-
islæknis (bæjarlæknis, hér-
aðslæknis).“
S v a r : Nei.
4. „Hvaða viðurlögum er liægt
að beita lækni, ef liann neit-
ar að framkvæma blóðtöku
af því sakborningur neitar
aðgerðinni.“
S v a r : Sektum.
Fylgiskjöhn endursendast.
Virðingarfyllst,
Einar B. Guðmundsson.
XIII. AlþjóSaráðstefna um atvinnu-
sjúkdóma og heilsuvernd á vinnu-
stööum.
Þrettánda alþjóðaráðstefnan um
atvinnusjúkdóma, sem tilkynnt var
um hér í blaðinu, 3. tölublað 1958,
verður haldin í New York, í Waldorf
Astoria hótelinu, 25.—29. júli 1960.
Framkvæmdanefnd mótsins gef-
ur þeim, er sækja vilja ráðstefnuna,
kost á að leggja fram ritgerðir eða
erindi til birtingar á henni. Dag-
skráin verður einkum helguð um-
ræðum um eftirfarandi atriði, sem
snerta atvinnusjúkdóma:
1. Tilhögun og stjórn fram-
kvæmda.
2. Lyflækningar.
3. Handlækningar.
4. Fræðsla og þjálfun.
5. Félagsleg og lagaleg sjónarmið.
6. Aðbúnaður og hollustuhættir í
umhverfinu.
7. Áhrif umhverfis á heilsuna.
8. Vinnan, lífeðlisfræðilega og sál-
fræðilega séð.
9. Sérstakar iðngreinar.
10. Almennt.
Þeir, sem óska að birta ritgerðir
eða erindi um ofangreind atriði,
snúi sér til Jóns Sigurðssonar, borg-
arlæknis, Reykjavik, sem gefur all-
ar nánari upplýsingar.