Læknablaðið - 01.10.1959, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
123
t(r erlen<twm
lœknaritunt
Isolated Fluoroscopy: An Evalua-
tion. Sherman, R. S. og Cahan,
AV. G. New England Journ. Me-
dicine, 259 : 622: sept. 1959.
Höfundar, sem eru röntgenlæknar
á snærum Memorial center of cancer,
New York, skilgreina isolated fluor-
oscopy sem gegnlýsingu án röntgen-
myndatöku, í þeim tilgangi aS finna,
staðfesta eða fylgjast með sjúklegri
breytingu. Lýst er hinum margvís-
legu sviðum, er læknar nota gegn-
lýsingu í sjúkdómsgreiningu sinni;
auk lungnaskoðana og hjarta virðist
úthreitt í Bandaríkjunum að nota
gegnlýsingu eina við magarannsókn-
ir, beinbrot og beinasjúkdóma, leit
að corpora aliena auk inargs ann-
ars.
Rætt er nokkuð um ástæðuna fyr-
ir þvi, að gegnlýsing eigi svo mikilli
hylli að fagna sem rannsóknarað-
ferð meðal almennra lækna og ým-
issa sérfræðinga annarra en röntgen-
lækna. Koma þar fram ýmis kynleg
sjónarmið; samkeppni lækna um
sjúklingana, gamall vani, tilhneiging
lækna að gera öllum óskum sjúklinga
sinna til hæfis og svo sérstök áhuga-
efni einstakra lækna.
Höf. gizka á, að grundvallartil-
gangurinn með notkun gegnlýsinga
í rannsóknarskyni hljóti þó að vera
að finna sjúklegar breytingar, en að
því loknu sé ætlunin að framkvæma
reglulega röntgenskoðun. Þá verður
að álvkta, að sjái gegnlýsendurnir
engar sjúklegar breytingar, muni
þeir ætla það mark um, að engar
slikar breytingar séu fyrir hendi.
Hér er aðeins sá hængur á, að sjúk-
legar breytingar þurfa að vera all-
stórar og útbreiddar til þess að sjást
í gegnlýsingu; 5—10 sinnum meiri
en þær breytingar, er sýna má fram
á með röntgenmynd. Á þetta benda
höf. einnig, svo og, að það er ekki
sízt við lungna- og beinasjúkdóma,
sem þetta á við, en það er einmitt
við skoðun á þeim líffærum, sem
gegnlýsing er hvað mest notuð.
Höf. draga þá ályktun af athug-
un sinni, að gegnlýsing eingöngu sé
misnotkun á trausti sjúklingsins og
allt að því glæpsamleg. Gegnlýsing i
höndum lieimilislæknis (eða tilsvar-
andi) hljóti einnig að geta leitt til
of- eða vanrækslu, allt eftir ástæð-
um, sökum hins nána sambands
hans við sjúkling og meðferð hans.
Loks er bent á hina raunhæfu og
verulegu geislunarhættu, er stafar
af gegnlýsingu, einkum i höndum
viðvaninga. (gegnlýsing á lunga get-
ur gefið sjúkl. 100 r húðskammt eða
meira, samanborið við 0.025—0.1 r
við fullkomna röntgenmyndun af
lungum).
Greinarhöf. mæla með, að gegn-
lýsing í þeim skilningi, er þeir hafa
gertað umtalsefni, verði útlæg ger úr
nútíma læknisfræði og benda á leið-
ir til þess.
Ásm. Brekkan.
------•------
Ekknasjóður
Hér fara á eftir reikningar
Styrktarsjóðs ekkna og munað-
arlausra liarna íslenzkra lækna
fyrir árin 1956 og 1957. Reikn-
ingarnir eru birtir samkvæmt
ósk sjóðstjórnarinnar. Um leið
eru læknar minntir á, að hafa
sjóðinn í huga, er þeir gefa
minningargjafir (sjá auglýs-
ingu á öðrum stað í blaðinu).