Fréttatíminn - 12.08.2011, Síða 2
KJÖTHITAMÆLAR
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
www.grillbudin.is
VERÐ FRÁ
3.990
FRÁBÆRIR FYRIR
GRILL OG OFNA
reykjavíkurborg Fjárnám vegna dagsekta
Fjárnám í villu Vegvísis
Skipulags- og byggingafulltrúi
Reykjavíkurborgar hefur lagt
fram fjárnámskröfu í lúxusvillu á
Laufásvegi sem er í eigu félagsins
Vegvísis. Félagið er í eigu móður
Stefáns Hilmars Hilmarssonar,
framkvæmdastjóra rekstrarsviðs
365, sem er gjaldþrota, en eins og
Fréttatíminn greindi frá í síðustu
viku námu kröfur í bú hans um 2,5
milljörðum króna. Villan, sem var
áður í eigu Stefáns, var flutt yfir á
Vegvísi í september 2008 en skipta-
stjóri þrotabús Stefáns íhugar að fá
þeim gjörningi rift.
Fjárnámskrafan er tilkomin vegna
dagsekta borgarinnar sem hafa
hlaðist upp á eigendur hússins vegna
þess sem yfirvöld í Reykjavík telja
vera ólöglega framkvæmd. Lögfræð-
ingur Stefáns heldur þó öðru fram í
bréfi sem hann sendi Fréttatímanum
í júní en þar sagði hann að ákvörðun
skipulags- og bygginarnefndar um
að leggja dagsektir á eigendur húss-
ins hefði verið mótmælt á grundvelli
þess að ekki væri fótur fyrir þeim og
beðið væri svara frá nefndinni. -óhþ
Villan á
Laufásvegi.
Ljósmynd/Hari
Arion bakhjarl tónlistarviðburða Hörpu
Harpa og Arion banki undirrituðu í gær
samning um að bankinn verði einn helsti
bakhjarl viðburða í Hörpu. Markmið samn-
ingsins er að styrkja menningar- og tón-
listarstarf á Íslandi og kynna þá listviðburði
sem Harpa skipuleggur fyrir almenningi.
Höskuldur H.Ólafsson bankastjóri Arion
lýsti yfir ánægju bankans með aðkomuna
að tónlistarviðburðum Hörpu. „Það er mikil-
vægt að skapa góðan rekstrargrundvöll
fyrir þetta hús og það er okkur mikill heiður
að fá að taka þátt í því.“ Fyrstu tónleikar
sem Harpa hélt með styrk frá Arion banka
voru tónleikar Mariu Joao Pires og Maxim
Vengerov í júlí. Næsti viðburður verða
tónleikar Gautaborgarsinfóníunnar undir stjórn Gustavo Dudamel þann 19.september.
b jörgólfur Thor Björgólfsson og langafi hans, Thor
Jensen, eru áberandi ein-
staklingar í íslenskri við-
skiptasögu – hvor á sínu
tímabilinu. Nú er tilbúin
heimildarmynd um kappana
sem danski leikstjórinn Ulla
Boje Rasmussen leikstýrir.
Myndin verður frumsýnd
í Bio Carl í Kaupmanna-
höfn 7. september og mun
Björgólfur Thor taka þátt í
pallborðsumræðum á vegum
danska viðskiptablaðsins
Börsen í tengslum við frum-
sýninguna.
Myndin fjallar um sögu
Thorsaranna tveggja; stofn-
andann sjálfan, Thor Jensen,
sem flutti munaðarlaus til
Íslands þegar hann var fjór-
tán ára, ris hans og fall, og
barnabarnabarn hans, Björg-
ólf Thor Björgólfsson, sem
varð ríkasti maður Íslands
áður en bankahrunið skall á
haustið 2008.
Í kynningu segir að mynd-
in, sem ber nafnið Thors´s
Saga, endurspegli sögu
fyrstu og fjórðu kynslóðar
Thors-fjölskyldunnar í ein-
stöku verki um skandinav-
íska viðskipasögu. Hún fangi
óbugandi frumkvöðlaanda
á háskalegum krossgötum
einstaklinga og þjóða.
Samkvæmt heimasíðu
framleiðenda myndarinnar
er hún gerð með styrk frá
danska og íslenska kvik-
myndasjóðnum og í sam-
starfi við TV2 í Danmörku og
RÚV á Íslandi. Ólíklegt þykir að myndin verði sýnd í
kvikmyndahúsum hér á landi en RÚV mun að öllum
líkindum taka hana til sýningar.
Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Björgólfs
Thors, segir í samtali við Fréttatímann að Björgólfur
Thor hafi ekki á nokkurn hátt komið nálægt gerð
myndarinnar að öðru leyti en því að hann veitti viðtöl
og lánaði áður óbirtar myndir úr fjölskyldualbúmum.
„Þessi danski leikstjóri byrjaði á þessari mynd 2005
og þá átti hún að snúast um sögu Thors Jensen sem
hún hafði heillast af. Henni var síðan bent á Björgólf
Thor í vinnsluferlinu og þá ákvað hún að tvinna sögu
þessara tveggja manna saman. Síðan kom auðvitað
hrunið og þá breyttust hlutirnir. Þannig að myndin
hefur verið lengi í vinnslu,“ segir Ragnhildur og bætir
við að Björgólfur Thor hafi ekki lagt fjármagn í mynd-
ina og hafi ekki einu sinni séð endanlega útgáfu.
oskar@frettatiminn.is
kvikmynd dönsk mynd um íslenska athaFnamenn
Heimildarmynd
um Björgólf Thor og
Thor Jensen frumsýnd
Danski leikstjórinn Ulla Boje Rasmussen frumsýnir nýja mynd um Björgólf Thor Björgólfsson
og langafa hans, Thor Jensen, í Kaupmannahöfn 7. september næstkomandi.
Plakat myndarinnar er vígalegt eins og sjá má.
Björgólfur Thor Björg-
ólfsson kemur ekki nálægt
gerð myndarinnar, að sögn
talsmanns hans.
Danski leikstjórinn Ulla
Boje Rasmussen leikstýrir
heimildarmyndinni.
Frá undirskrift samningsins. Höskuldur
Ásgeirsson (til vinstri) stjórnarformaður
Portus, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tón-
listarstjóri Hörpu og Höskuldur H.Ólafsson,
bankastjóri Arion banka. Ljósmynd/Teitur
Ferðafélagið semur um
afnot Hornbjargsvita
Fulltrúar Siglingastofnunar og Ferðafélags Íslands
skrifuðu á þriðjudaginn undir samning til fimmtán
ára um afnot vitavarðarbústaðarins við Hornbjargs-
vita í Látravík. Þar var samþykkt að Ferðafélagið
fengi bústaðinn til afnota endurgjaldslaust gegn því
að sinna viðhaldi og endurbótum á mannvirkjum og
aðstöðu sem nauðsynleg er til reksturs ferðaþjón-
ustu á staðnum. Hornbjargsviti og íbúðarhús fyrir
vitavörð voru byggð árið 1930 í Látravík, austan
Hornbjargs. Búseta vitavarðar í Látravík var aflögð
árið 1995. Undanfarin ár hafa hjónin Ævar Sigdórs-
son og Una Lilja Eiríksdóttir séð um rekstur
vitavarðarbústaðarins á Hornbjargi í Látravík og er
samningurinn við Ferðafélagið sambærilegur því
fyrirkomulagi. -jh/Ljósmynd Siglingamálastofnun
Háskólalestin á
Ástarviku
Háskólalestin svokallaða verður á
Ástarviku í Bolungarvík á morgun,
laugardaginn 13. ágúst, en lestin
ferðast vítt og breitt um landið
í tilefni aldarafmælis Háskóla
Íslands. Dagný Kristjánsdóttir,
prófessor við HÍ í íslenskum
nútímabókmenntum, er ein af
þeim sem munu flytja erindi á
vegum Háskólalestarinnar. Erindi
hennar ber titilinn „Ástin sigrar
(ekki, kannski, vonandi) alltaf. Um
ástarsögur fyrr og nú“ þar sem
hún mun fjalla um hugmyndir um
ástina, hvernig þær hafa breyst
í gegnum tíðina og hvernig þær
birtast okkur í skáldskap. Dagnýju
líst vel á það, að því er fram kemur
á síðu HÍ, að Bolvíkingar hafi
ákveðið að upphefja ástina með
því að halda upp á hana í heila
viku árlega. Sóley Bender, pró-
fessor við HÍ og forstöðumaður
fræðasviðs um kynheilbrigði, mun
einnig flytja erindi. Það ber titilinn
„Oft við Amor hef ég átt í erjum“.
Hún fjallar m.a. um kynferðis-
þroska og að á þroskaferðalaginu
verði margt á veginum, m.a. ástir
og örvænting. - jh
2 fréttir Helgin 12.-14. ágúst 2011