Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.08.2011, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 12.08.2011, Blaðsíða 54
Ég kúplaði mig nú alveg út úr þessu strax og sendi hann á strákana. Brasilíska útgáfufyrirtækið Wave Records gaf í lok júlí út 28 laga geisla- disk með úrvali laga hinnar forn- frægu pönksveitar Q4U. Ellý, söng- kona hljómsveitarinnar, kann litlar skýringar á því hvers vegna Alex Twin, eigandi Wave, vildi ólmur gefa út tónlist sveitarinnar en ljóst má vera að hann er heillaður af gamla ís- lenska pönkinu. „Hann hafði bara samband við mig á Facebook, þessi maður, og spurði hvort ég væri Ellý í Q4U. Fyrst setti hann lög frá okkur á safnplötu og svo vildi hann endilega gefa út þessa „best of“ plötu. Og maður varð bara mjög hissa,“ segir Ellý. Twin hefur viðrað hugmyndir um að Q4U haldi tónleika í Suður-Amer- íku og er greinilega mjög áhugasam- ur um að hitta hljómsveitarmeðlim- ina. „Já, hann vill líka koma hingað. En ég veit það ekki. Við erum öll svo upptekin og ég er náttúrlega mamma og amma með mörg börn og barnabörn og er kannski ekki alveg tilbúin í einhverja túra,“ segir Ellý. Q4U var áberandi í upphafi níunda áratugarins og lét til dæmis hressi- lega að sér kveða í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík. Sveitin kemur saman af og til og verður næst með tónleika á Dillon á Menningarnótt. Heyrst hefur að þessi útgáfa Wave muni berast til Evrópu en Ellý hefur meiri áhuga á því að sinna myndlist- inni en því hvað verður úr hugmynd- um Alex Twin. „Ég veit bara ekki neitt. Ég er bara á kafi í myndlist- inni minni. Ég veit bara að við fáum 150 diska. Ég kúplaði mig nú alveg út úr þessu strax og sendi hann á strákana. Ég nennti ekki að standa í þessu enda er þetta ekki alveg mín deild.“ -þþ  brasilískt útgáfufyrirtæki Dustar rykið af íslensku pönki Q4U eftirsótt í Brasilíu  tobba og ellý saman í sjónvarpi í fyrsta sinn Við erum með mjög mikið af umdeildum og krassandi hug- myndum. Ellý undrast áhugann á tónlist Q4U í Brasilíu en er samt enn að og spilar með félögum sínum á Dillon á Menningar- nótt. Þ etta verður stelpuþáttur en samt ekkert fliss og þannig læti,“ segir Tobba. „En við munum láta ýmislegt flakka. Ellý vinkona mín er nú svo opinská að ég sýp stundum hveljur,“ segir Tobba sem sjálf er þó þekkt fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið. „Tobba skilur mig og stundum er hún hissa á því sem ég segi. Ég veit ekki hvort að hún sé tepran í þessu vináttu- sambandi,“ segir Ellý. „Jú, svona þegar ég hugsa um það þá er ég að kenna henni og Kalla [Karli Sigurðssyni, unnusta Tobbu] ýmislegt. Meira get ég ekki sagt.“ Tobba og Ellý ætla að fá gesti til sín í þáttinn, vera með innslög og margt fleira. „Það sem okkur dettur í hug verður bara gert. Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri, er búinn að lofa okkur því að við megum flippa að vild. Við erum með mjög mikið af umdeildum og krassandi hugmyndum. Hann segist ætla að gefa okkur lausan tauminn og standa með okkur í þessu öllu,“ segir Tobba. „Ætli það megi ekki segja að við séum banvæn blanda,“ segir Ellý. „Og við ætlum bara að spyrja spurninganna sem aðrir þora ekki að bera upp og ræða mál sem aðrir leggja ekki í og Hilmar ætlar ekki einu sinni að grípa í tauminn ef við förum á brokk, eða skellum jafnvel á skeið.“ Tobba segist vera yfir sig ánægð með að fá tækifæri til þess að vinna með Ellý. „Við erum búnar að vera vinkonur lengi og ég þekki Ellý út og inn þannig að þetta verður leikandi ljúft.“ Tobba og Ellý kynntust fyrir nokkrum árum varð fljótt vel til vina og í dag telur Tobba Ellý til sinna allra nánustu vin- kvenna. Þær vita báðar hvernig það er að vera á milli tannanna á fólki og Ellý viður- kennir að vissulega megi segja að þær séu umdeildar. „Ég myndi í það minnsta segja að bak mitt hafi breikkað í gegnum árin,“ segir Ellý og ekki er annað á henni að skilja að þær stöllur verði ófeimnar við að nálgast viðfangsefni sín af hispursleysi. „Við munum fjalla um allt sem konur hafa áhuga á. Snyrtivörum, útliti, líkams- rækt og svo má auðvitað ekki gleyma kynlífinu,“ segir Ellý glottandi. „Það er líka svo spennandi að geta tekið á þessum málum myndrænt og það er eiginlega með ólíkindum að við fáum að láta hugmyndir okkar verða að veruleika í sjónvarpi.“ toti@frettatiminn.is Banvæn blanda Trúnaðarvinkonurnar Ellý Ármanns og Tobba Marínós fá kærkomið tækifæri til þess að vinna saman í fyrsta sinn þegar þær byrja með nýjan sjónvarpsþátt á Skjá einum í haust. Ellý var um árabil ein dáðasta sjónvarps- þula landsins en fær nú að spreyta sig í dagskrárgerð með Tobbu. Stelpurnar ætla að vera frjálslegar á skjánum og láta allt flakka þannig að það er mikill hiti og stuð í kortunum. Ellý Ármanns og Tobba Marínós eru nánar vinkonur og ætla að skella á skeið saman í nýjum sjónvarpsþætti á Skjá einum í vetur. Ellý mun samt halda áfram að flytja fréttir af ríka og fræga fólkinu í Hollywood á Vísi.is. VOD-ið bítur Barátta á sjónvarpsmarkaðnum tekur á sig nýja mynd þegar splunkunýir þættir Stöðvar 2 „Love Bites“ hefja göngu sína á mánudag. Nú er það ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Universal hefur selt Skjánum/SkáBíó réttinn til að sýna hvern nýjan þátt strax næsta dag á eftir frumsýningu á Stöð2. Að líkum er hrifningin lítil hjá 365 en því meiri hjá Skjánum þar sem menn bjóða einstaka þætti á innan við verði þess sem margauglýstur áskriftardagur kostar viðskiptavininn á Stöð2. Og menn horfa þegar þeim hentar á VOD. Verði þetta þróunin hriktir í gömlu stoðum. Leikarar eiga til að lenda í því að renna saman við persónur sem þeir túlka að þeim getur reynst erfitt að hrista sín þekktustu hlutverk af sér. Nægir í þessu sambandi að nefna Sean Connery sem var áratugi að losa sig við James Bond og Larry Hagman sem er ennþá J.R. Ewing í hugum margra. Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leik- og blaðakonu, fékk að upplifa þetta í vikunni eftir að tilkynnt var að hún myndi taka við ritstjórn Séð og heyrt. dv.is gerði skil- merkilega grein fyrir sviptingum hjá tímaritaútgáfunni Birtíngi og upplýsti að Lilja Sigurðardóttir væri nýr ritstjóri blaðsins. Lilja Katrín lék einmitt nöfnu sína Sigurðardóttur í sjónvarpsþátt- unum Makalaus og mátti standa í skugga persónunnar þar sem mbl.is át vitleysuna upp eftir dv.is þannig að skáldsagnapersónan var orðin ritstjóri Séð og heyrt á tveimur af mest lesnu vefmiðlum landsins. Unnusti Lilju Katrínar gerði athugasemd við fréttina á vef DV og mátti skilja á honum að sér þætti snautlegt að þar á bæ þekkti fólk ekki fyrrum blaða- mann með fullu nafni en Lilja Katrín starfaði um tíma á DV. DV leiðrétti ruglið snarlega en Lilja ritstjóri Séð og heyrt er enn Sigurðardóttir á mbl.is. Sögupersóna verður ritstjóri Líflegt á Fimm- vörðuhálsi Hópur vaskra kvenna ætlar að ganga Fimmvörðuhálsinn um helgina og ætla má að sú ganga verði sérlega lífleg þar sem í fararbroddi verða leik- konan Selma Björnsdóttir og blaðakonan Björk Eiðs- dóttir ásamt leikkonunum Unni Ösp Stefánsdóttur og Nönnu Krist- ínu Magnúsdóttur. Hópurinn veður galvaskur út í óvissuna en Björk hefur þó á Facebook viðrað óskir sínar um þolanlegt veður svo hún geti séð eitthvað af hálsinum að þessu sinni. HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatí ann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fré atímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita me tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatim nn.is 50 dægurmál Helgin 12.-14. ágúst 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.