Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.08.2011, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 12.08.2011, Blaðsíða 26
Bonito ehf. Friendtex Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is VILTU SKEMMTILEGA AUKA VINNU? FRIENDTEX Á ÍSLANDI LEITAR AÐ FLOTTUM HEIÐARLEGUM KONUM TIL AÐ KYNNA OG SELJA FRIENDTEX TÍSKUFÖT NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 568 2870 EÐA 691-0808 kíkið á friendtex.is Nýr vörulisti er kominn á netið Pantaðu vörulistann við sendum þér listann frítt heim þann 2. september nk. Hjá okkur færðu þá leiðsögn sem þú þarft og það er enginn kostnaður fyrir þær sem vilja prófa. Kynnið ykkur málið fyrir 20. ágúst Við viljum öll trúa á kerfið Þegar hér er komið sögu, í ágúst 2009, er ekkert verið að tala um málið sjálft heldur fjallar þrætan við dómstóla um hvort hleypa megi Jóhannesi heim til Íslands til dóttur sinnar og konu. Þau höfðu eignast Viktoríu Rós í nóvember 2008. Þá var Skúlason ehf. löngu farið á hausinn og þrjú ár síðan Jóhannes hafði lent í húsleitinni. Hann hafði eftir hana hafið mikla eyðurmerkurgöngu til að bjarga fyrirtækinu og andlitinu. Hann var nýgiftur 2005 en það hjónaband hvarf í áhyggjur og rugl. Í raun var Jóhannes bara búinn að játa sig svolítið sigraðan og bjóst síst af öllu við því að verða handtekinn á Heat- hrow þegar dóttir hans varð átta mánaða. Hann hafði fengið vinnu sem verkefnastjóri hjá Latabæ, eða Lazytown eins og það kallast úti í heimi, og varð svo svæðisstjóri yfir Norðurlöndunum. Þegar talið berst hannes hefði beitt blekkingum eða gert nokkuð af því sem hann var sakaður um að hafa gert. Þegar upp var staðið stóð ekki steinn yfir steini og kviðdómur tólf mann- eskja í Ipswich í Englandi sýknaði Jóhannes. Samt voru þetta engar smá upphæðir sem um ræddi því það söfnuðust milljón pund í hlutafé sem bara eitthvað fólk keypti í von um gróða. Það tapaði öllu sínu eins og gengur í svona bissness og við lestur dómsgagna kemur í ljós að þetta fólk bar vitni ásamt endur- skoðendum og alls konar sérfræð- ingum. „Eftir að hafa farið í gegnum þetta hef ég ekkert lengur að fela,“ segir Jóhannes en í svona réttar- haldi er allt lagt á borðið. Hvert einasta smáatriði í lífi hins meinta fjárglæframanns er krufið og eng- inn steinn látinn liggja. Það er sama hversu miklu þú hefur sópað undir teppið, það er allt tínt til og ég trúi Jóhannesi þegar hann segir mér að hann sé ekki lengur hræddur við álit annarra. Ætlaði að verða ríkasti maður í heimi Eftir fangelsisvistina tók enn erfið- ari tími við og meira óöryggi. Jó- hannes fékk leigt herbergi í London og gat unnið hjá Latabæ (þar stóð fólk með honum í gegnum súrt og sætt) en hann mátti ekki nota laun- in sín. Honum voru skömmtuð 100 pund á viku til að borga leigu og mat en það dugði ekki í jafn dýrri borg. Sambýliskona hans, Lucy Bednarek, hafði fram að þessu verið ein með barnið á Íslandi. Hún er frá Póllandi og naut stuðnings fjölskyldu Jóhannesar vissulega og sá fyrir sér og Viktoríu litlu með því að vinna á Aktu/taktu. „Ég veit það hljómar ekki rökrétt en mér leið eiginlega verr eftir að ég kom út,“ segir Jóhannes og ég sé að hann kemst við. „Auðvitað leið mér ekki vel í fangelsinu en þarna stend ég einn úti í London og á ekki fyrir mat. Konan og dóttirin voru heima á Íslandi án nokkurra peninga. Ég var með ökklaband og að deyja úr hræðslu við að koma kannski of seint á lögreglustöð- ina [sem hann þurfti að mæta á á hverjum morgni] og vera sendur aftur í fangelsi.“ Svona liðu átta mánuðir og aftur reyni ég að setja mig í spor Jóhann- esar til að skilja hvað hann hefur þurft að ganga í gegnum. Einu sinni heyrði ég Magnús Scheving útskýra hvað leti væri í hans huga. Það er ekki að liggja uppi í sófa og leggja sig, það fannst Magga frekar hljóma eins og einhver væri þreyttur. Hins vegar er það að hans dómi leti ef þú sérð fátækan mann eða einhvern sem á bágt og nennir ekki að setja þig í spor hans. Það er leti. „Ég hef auðvitað gert fullt af mis- tökum í lífinu og er eins langt frá því að vera fullkominn og hægt er. Það er margt sem ég vildi hafa gert öðruvísi,“ segir Jóhannes og gerir svo grín að sjálfum sér því mamma hans segir að þegar þeir guttarnir í Grindavík voru spurðir hvað þeir ætluðu að verða þegar þeir yrðu stórir þá sagðist einn ætla að verða sjómaður eins og pabbi, annar lögga og næsti smiður en Jóhannes sagði alltaf: „Ég ætla að verða rík- asti maður í heimi.“ Það var sá gutti sem fór og ætlaði að sigra heiminn með símaveri sem myndi vera hérna á Íslandi en svara í símann fyrir fyrirtæki og stofnanir í Bretlandi og á Norður- löndunum. Viðskiptamódelið var gott, segir Jóhannes og vísar meðal annars í álit sérfræðinga sem báru vitni fyrir dómi. En með þetta plan að vopni réð hann sölumann í vinnu til að finna verkefni og gerði samning við aðra aðila sem söfnuðu hlutafé. Allir sem störfuðu með Jóhannesi voru sýknaðir í fyrra- sumar; málið allt var risastórt en aðeins tveir menn sem komu að allt öðrum öngum þess voru dæmdir sekir. Þetta var samt alvarlegt mál og breskum yfirvöldum full alvara. En enginn annar en Jóhannes var í gæsluvarðhaldi eða með ökkla- band. Vegna þess að sá hluti þess- arar sögu fjallar eingöngu um að ekki er framsalssamningur á milli Íslands og Bretlands. „Auðvitað er það súrt en ein- hvern veginn lifði maður einn dag í einu,“ segir Jóhannes en eftir nokkra mánuði tókst honum að fá Lucy og Viktoríu litlu út til sín því alltaf frestuðust réttarhöldin sem Jóhannes beið eftir. Hann var sann- færður um að ef hann fengi tæki- færi til að segja sína hlið þá myndi þessari martröð ljúka. Auðvitað er allt í klessu Réttarhöldin sjálf tóku sex vikur núna í maí og júní en það tók kvið- dóm ekki nema nokkrar klukku- stundir að komast að þeirri niður- stöðu að Jóhannes væri saklaus. Hann brotnaði niður og hágrét en þegar hann segir mér frá þeim degi sé ég barnslega gleði í augunum á honum yfir því hvað allir aðrir voru ánægðir. Sjálfur var hann í móki og einni tilfinningaflækju. „Sem betur fer voru allar þessar tilfinningar já- kvæðar,“ segir hann og viðurkennir að hafa verið hræddur. „Ég þekkti kerfið þeirra ekki neitt og vissi ekki hvað ég myndi gera ef þau dæmdu mig sekan fyrir eitthvað sem ég gerði ekki. Málið var reist á sandi,“ segir hann og þegar við ræðum þetta aftur viku eftir að hann lýsti þessu fyrir mér vill Jóhannes taka það fram hvað hann var ánægður að hafa tekist að standa sig fyrir konuna sína og Viktoríu litlu. Áttu mynd af þeim í símanum þínum? spyr ég hann og hann seg- ist vera með lítið annað en myndir af þeim og réttir mér símann. Dótt- irin er með blá augu eins og pabb- inn en mamman er með græn augu. Þær eru á ferðalagi með honum og það er gras og sóleyjar og þær brosa og skemmta sér. Viktoría fæddist á sunnudegi en á mánudeginum mætti Jóhannes í samfélagsþjónustu út af skatta- málinu sem hann var dæmdur fyrir í kjölfar gjaldþrots Skúlason ehf. Það hljóðaði upp á 32 milljónir og Jóhannes reyndi hvorki að verja sig þegar málið kom upp né á okkar fundum. En hvað verður til þess að sjó- mannssonur úr Grindavík stofnar útvarpsstöðvar og fyrirtæki og er alltaf í þessu brölti? „Ef ég á að segja satt þá held ég að ég hafi lengi vel stjórnast af ótta við álit annarra,“ segir Jóhannes og það er augljóst að hann hefur fengið tíma til að hugsa vel og lengi um hvað það er sem hann hefur verið að elta. Og nú er hann allt í einu frjáls. Sex ára göngu er lokið og Jóhannes er enn að átta sig á því að hann á sig sjálfur. „Auðvitað er allt í klessu fjárhagslega en ég er hægt og hægt að ná utan um líf mitt.“ Og ertu kominn yfir það að vilja verða ríkasti maður í heimi? „Já,“ segir Jóhannes og brosir. Honum finnst í augnablikinu nóg að geta gert plön og hann getur ekki talið það hversu oft á dag hann þakkar fyrir fjölskylduna og frelsið. Mikael Torfason ritstjorn@frettatiminn.is Jóhannes var sýknaður „Réttarhöldin sjálf tóku sex vikur núna í maí og júní en það tók kviðdóm ekki nema nokkrar klukkustundir að komast að þeirri niðurstöðu að Jóhannes væri saklaus. Hann brotnaði niður og hágrét.“ Ljósmynd/Teitur Jóhannes alskeggjaður á leið til London eftir tvo mánuði lokaður inni í klefa 22 tíma á sólarhring. að Latabæ sést glitta í sölumanninn Jóhannes og hann tekur ræðuna um heilsu krakka og heilbrigðan lífsstíl („rosalega skemmtilegt og gefandi að taka þátt í verkefni þar sem þú ert í alvörunni að reyna að breyta heiminum“). Strax við fyrsta fund okkar Jó- hannesar hafði ég lítinn áhuga á að taka við hann viðtal. Hann hafði samband við mig og mér hefur alltaf fundist efnahagsbrot svo flókin og sönnunarbyrðin á þessu óþolandi gráa svæði. Jóhannes sjálfur er meira að segja ekkert svo sannfærður um að hann fái nokk- urn tíma uppreisn æru: „Kannski er það ekkert hægt eftir svona. Hversu oft hefur maður sjálfur dæmt menn sem maður veit ekkert um? Bara af því að maður skautaði yfir grein í blöðunum. Ef fólk fer í gæsluvarðhald hlýtur það að vera vegna sektar. Saksóknari hlýtur að hafa rétt fyrir sér því við viljum öll trúa að kerfið virki.“ Þetta voru líka geggjaðir tímar hér fyrir nokkrum árum og Jó- hannes einn af þeim sem vildu fara í útrás. Hann var í basli með síma- og úthringiver á Íslandi og kynnist Bretum sem fara að safna fyrir hann hlutafé. Saksóknaranum úti þótti hvað grunsamlegast hversu háa þóknun þeir tóku fyrir það en honum tókst ekki að sanna að Jó- 26 viðtal Helgin 12.-14. ágúst 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.