Fréttatíminn - 12.08.2011, Blaðsíða 14
Berlínar-
múrinn varð
ýmsum tákn
um siðferði-
legt þrot
sameignar-
stefnunnar. Ís-
lenskir sósíal-
istar voru á
öðru máli.
M
úrar eru venjulega hlaðnir til varn-
ar, til dæmis í kringum miðalda-
borgir. Stundum eiga þeir að halda
villimannaþjóðum úti, svo sem
múr Hadríanusar í Norður-Eng-
landi eða kínverski múrinn. En Berlínarmúrinn var
ekki reistur til að halda fólki úti, heldur loka það inni.
Í austur-þýska alþýðulýðveldinu, sem stofnað var
á hernámssvæði Ráðstjórnarríkjanna í Þýskalandi
1949, urðu þegnarnir að kjósa með höndunum eins
og valdhafar vildu. Fengu kommúnistar venjulega
99 prósent atkvæða í slíkum kosningum. Í röskan
áratug gátu þegnarnir þó kosið með fótunum, flúið til
Vestur-Þýskalands, og það nýttu milljónir Þjóðverja
sér.
Austur-þýsk stjórnvöld reyndu að loka landamær-
unum milli hinna tveggja hluta Þýskalands með
gaddavír og varðturnum. En Berlínarborg skiptist í
tvö hernámssvæði, Vesturveldanna og Ráðstjórnar-
ríkjanna. Auðvelt var að fara úr austurhluta borgar-
innar í vesturhlutann og þaðan til Vestur-Þýskalands.
Þetta breyttist allt sunnudagsmorguninn 13. ágúst
1961 þegar austur-þýsk yfirvöld gripu til sinna ráða.
Þau lokuðu skyndilega landamærunum milli borgar-
hlutanna tveggja og létu næstu daga hlaða rammgerð-
an múr milli borgarhlutanna, leggja gaddavírsgirðing-
ar og reisa varðturna. Eftir það voru þeir, sem reyndu
að flýja til Vestur-Berlínar, umsvifalaust skotnir, og
fengu austur-þýskir landamæraverðir sérstök verð-
laun fyrir hvern þann, sem þeim tókst að fella.
Múrinn varinn
Berlínarmúrinn varð ýmsum tákn um siðferðilegt
þrot sameignarstefnunnar. Íslenskir sósíalistar voru
á öðru máli. Tryggvi Sigurbjarnarson, sem stund-
aði nám í Austur-Þýskalandi, skrifaði „Gaddavírs-
hugleiðingu“ í Þjóðviljann 22. ágúst 1961. Kvað hann
svartamarkaðsbrask hafa verið stundað í vesturhluta
borgarinnar, og væri múrinn reistur til að binda enda
á þetta „svívirðilega svindilbrask, svo að ekki sé
minnst á hina svívirðilegu njósna- og undirróðurs-
starfsemi, sem allir vita, að rekin hefur verið frá
Vestur-Berlín“.
Þjóðviljinn kynnti á forsíðu 3. september 1961, að
annar námsmaður í Austur-Þýskalandi, Guðmundur
Ágústsson, hæfi í því tölublaði birtingu greinaflokks
um Berlínarmúrinn. Guðmundur kvað Austur-Þjóð-
verja hafa stöðvað njósnir og undirróður með því að
hlaða múrinn í kringum vesturhlutann. Svo ánægður
var Magnús Kjartansson, ritstjóri Þjóðviljans, með
skrif Guðmundar, að hann bað miðstjórn austur-
þýska kommúnistaflokksins að greiða honum fyrir
þau.
Vinsamleg samskipti
Íslenskir sósíalistar höfðu frá upphafi átt vinsamleg
samskipti við kommúnistastjórnina í Austur-Þýska-
landi. Einar Olgeirsson fór þangað fyrst á leið frá
Moskvu haustið 1945 (áður en alþýðulýðveldið var
stofnað) og hitti þá einn ráðamann landsins, Hans
Teubner. Annar gistivinur Austur-Þjóðverja var
Magnús Kjartansson, ritstjóri Þjóðviljans. Þegar
verkamenn í Austur-Berlín risu upp 17. júní 1953,
skrifaði Magnús að frásagnir um vöruskort og fátækt
þar eystra væru „barnalegt og marklaust bull“.
Verkalýður Austur-Þýskalands stæði ekki að óeirð-
um, heldur „hlaupagikkir og flugumenn“. Magnús
Kjartansson heimsótti einnig stundum njósnahreiður
eitt í Greifswald-háskóla, sem sérstakur kafli er um í
væntanlegri bók minni um íslenska kommúnista.
Áhrifamenn í Alþýðubandalaginu sóttu „Eystra-
saltsvikuna“, sem austur-þýsk stjórnvöld héldu allt
frá 1958 og fram til 1975, en tilgangur hennar var að
afla landinu viðurkenningar og reka fleyg í varnar-
samstarf vestrænna þjóða. Í tengslum við Eystrasalts-
vikuna voru haldnar verkalýðs- og kvennaráðstefnur
og friðarþing og jafnvel einu sinni stjórnmálanám-
skeið Sósíalistaflokksins.
Alþýðubandalagið, sem bauð fram í stað Sósíal-
istaflokksins allt frá 1956, sleit öll tengsl við komm-
únistaflokk Austur-Þýskalands haustið 1968, eftir
að austur-þýski herinn hafði tekið þátt í innrásinni í
Tékkóslóvakíu. Var múrinn ekki framar lofsunginn
í málgögnum Alþýðubandalagsins, þótt Stasi-maður-
inn Guðmundur Ágústsson yrði raunar um skeið for-
maður Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur.
Svavar og Þorsteinn
Einar Olgeirsson útvegaði mörgum efnilegum
ungum sósíalistum námsstyrki í Austur-Þýskalandi.
Mynduðu þeir, ásamt nokkrum námsmönnum í
öðrum sósíalistaríkjum, með sér Sósíalistafélag Ís-
lendinga Austantjalds, SÍA.
Einn efnilegasti ungi sósíalistinn var Svavar
Gestsson, sem starfaði 1967 á skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins, þegar verið var að breyta því úr kosn-
ingabandalagi í stjórnmálaflokk, og aðstoðaði hann
dyggilega gamla kommúnistakjarnann í Sósíal-
istaflokknum við að tryggja yfirráð sín yfir Alþýðu-
bandalaginu og val á framboðslista þess. Í verðlauna-
skyni var Svavar sendur á flokksskóla í Austur-Berlín
haustið 1967, og las hann þá einnig prófarkir að
Úrvalsritum Marx og Engels, sem útgáfufyrirtæki
sósíalista á Íslandi fékk prentuð ókeypis í Austur-
Þýskalandi. Svavar kom heim í sumarleyfi vorið 1968
og sneri ekki aftur til Austur-Þýskalands.
En 1973 fór sendinefnd frá Æskulýðssambandi
Íslands undir forystu Þorsteins Vilhjálmssonar
eðlisfræðings á svokallað „heimsmót æskunnar“ í
Austur-Berlín og þakkaði síðan í skýrslu sinni „frá-
bærar móttökur og vel skipulagt mót“. Hafði sendi-
nefndin á orði hversu hreinskilnislegar viðræður hún
hefði átt við þýska æskumenn. Landbúnaðarvara
og afnot almenningsfarartækja væru ódýrari en í
Vestur-Þýskalandi og húsaleiga lægri. „Ef eitthvað er
að marka áróðurinn á Vesturlöndum frá tíma kalda
stríðsins, hefur æðimargt breyst í DDR,“ sögðu Þor-
steinn og félagar.
Fréttamaður The Times á mótinu, Peter Broder-
ick, birti hins vegar rækilega greiningu á því hvernig
villt hefði verið um fyrir mótsgestum á öllum sviðum,
og var hún kynnt í íslenskum blöðum. Davíð Odds-
son, þá laganemi, sem staddur var í Vestur-Berlín
sömu dagana og Þorsteinn Vilhjálmsson í Austur-
Berlín, skrifaði einnig: „En ég er þess fullviss, að enn
hefur flest ungt fólk hér á landi skömm á þeim blind-
ingsleik, sem ÆSÍ-sendinefndin lék í Berlín.“
Öllum skjölum eytt
Þegar Berlínarmúrinn hrundi 9. nóvember 1989,
höfðu um 120 manns látið lífið í flóttatilraunum
vestur á bóginn. En eftir hrun múrsins var eitt fyrsta
verk þáverandi ríkisstjórnar, undir forsæti Stein-
gríms Hermannssonar, að senda einn starfsmann
utanríkisþjónustunnar til Þýskalands til að spyrjast
fyrir um hvort eitthvað misjafnt væri um ráðherrann
Svavar Gestsson í skjalasafni Stasi. Fékk hann dræm
svör. En öllum gögnum um Svavar í skjalasafni Stasi
hafði verið eytt 25. júní 1989.
Fólk lokað inni
Hinn 13. ágúst eru 50 ár liðin frá því bygging Berlínarmúrsins hófst. Dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, rifjar hér upp sögu múrsins og viðbrögð Íslendinga við
tíðindunum af gerð hans, en von er á bók frá Hannesi í haust um sögu íslenskra kommúnista.
Um 120 manns eru taldir hafa fallið við múrinn í flóttatilraunum vestur á bóginn. Hann var reistur 13. ágúst 1961 og hrundi 9. nóvember 1989.
Lj
ós
m
yn
d/
B
un
de
sa
rc
hi
v
B
14
5
B
ild
-P
0
61
24
6
14 tímamót Helgin 12.-14. ágúst 2011