Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.08.2011, Side 8

Fréttatíminn - 12.08.2011, Side 8
Lægsta til- boði, rúmlega helmingi af kostnaðaráætl- un, var tekið. Strandveiðum að ljúka Standveiðum á svæði sem náði frá Hnappadal til Súðavíkur er lokið en síðasti veiðidagurinn var á þriðjudaginn. Jón Bjarnason sjáv- arútvegs- og land- búnaðarráðherra gaf út reglugerð um stöðvun veiðanna, að því er fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins. Þar sagði að afli strand- veiðibáta á svæðinu hefði verið mjög góður. Á öðrum svæðum er veiðin skemmra á veg komin. Ekki er ósennilegt, segir ráðuneytið, að veiðileyfi verði í gildi út ágústmánuð á sunnan- og austanverðu landinu. - jh Tékkneskir glannar á hálendinu Torfærurúta tékknesku ferðaskrifstofunnar Adventura náðist upp úr Blautulónum á þriðjudaginn en farþegar hennar björguðust naumlega er hún sökk á kaf síðast- liðinn laugardag. Kynningarmyndband ferðaskrifstofu- nnar hefur vakið athygli en þar er starfsemin kynnt með glæfraakstri á íslenskum öræfum. Torfærurútan er þar sýnd við ýmsar aðstæður, einkum á hröðum akstri á há- lendisleiðum eða í djúpum ám og vötnum þar sem gusur ganga á báðar síður. Farþegar eru sitt á hvað innanborðs og utan og þá uppi á rútuþakinu á glannaferð. Í viðtali við Ríkisútvarpið segir Ólöf Ýr Atladóttir ferðamálastjóri að ekki sé fylgst með starfsemi þeirra erlendu ferðaþjón- ustufyrirtækja sem koma með ferðafólk hingað til lands. Ferðaskrifstofan er með starfsstöð í Tékklandi. Starfs- leyfi sem gefin eru út þar gilda á Íslandi vegna samninga um Evrópskt efnahagssvæði. Þessi tékkneska rúta lenti í árekstri við jeppa í fyrra á íslenskum hálendisvegi. -jh Leigusamningum fjölgar Leigusamningum fjölgaði um 8,8% milli júní og júlí, að því er Fasteignamat ríkisins greinir frá og byggir á tölum sem Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman. Heildarfjöldi samninga á landinu var 790 í júlí. Leigusamningum hefur hins vegar fækkað um 6,1% ef miðað er við júlímánuð í fyrra. Alls voru gerðir 559 leigusamningar á höfuðborgar- svæðinu í nýliðnum júlí miðað við 494 í júní. Á Suðurnesjum voru leigusamningarnir í júlí 74, á Vesturlandi 35, á Vestfjörðum 4 og á Norðurlandi 64. -jh Ó fremdarástand hefur verið í sumar á 4,4 km löngum kafla á Laugar-vatnsvegi, frá Skillandsá að Hóla- brekku. Þar hafa staðið yfir vegabætur sem ljúka átti um miðjan júní en standa enn. Vegurinn er einn sá fjölfarnasti á landinu að sumarlagi en um hann fer m.a. umferð með ferðamenn að Gullfossi og Geysi, eftir- sóttustu ferðamannastöðum landsins. Ekki er nóg með að vegurinn sé grófur og holóttur heldur er hann hættulegur að mati lögreglu. Bifhjólaslys varð á veginum um síðustu helgi þegar ökumaður missti stjórn á hjóli sínu í lausamöl á vegarkaflan- um. Fram kom í fréttum um slysið að lög- reglumenn á vettvangi hefðu sagt kaflann hættulegan vegna framkvæmdanna; mölin væri mjög laus á honum og hann því vara- samur ökumönnum. Vegagerð ríkisins bauð verkið út í fyrra og voru tilboð opnuð 24. ágúst á liðnu sumri. Um er að ræða breikkun og styrk- ingu á 4,4 km löngum kafla Laugardalsveg- ar. Áætlaður verktakakostnaður var 82,5 milljónir króna. Níu tilboð bárust í verkið og var tilboði lægstbjóðanda, Vélgröfunnar ehf. á Selfossi, tekið. Það var langt undir kostnaðaráætlun, eða 43,4 milljónir króna. Svanur Bjarnason, svæðisstjóri suður- svæðis Vegagerðar ríkisins, segir ástandið á vegarkaflanum mjög slæmt en áætlað hafi verið að verkinu lyki 15. júní, áður en sumarumferð hæfist fyrir alvöru. Ein- hver magn-aukning hafi orðið á verkinu en megninu af því hafi átt að ljúka 15. nóvem- ber síðastliðinn. „Það verður að segja það alveg eins og það er að þetta hefur ekki gengið nógu vel hjá þessum verktaka,“ seg- ir Svanur. Hann segir verktakann þó enn að en Vegagerðin sé að fara yfir stöðuna og meta til hvaða ráða eigi að grípa. Svanur segist ekki geta svarað því hvenær verkinu ljúki, að óbreyttu, en það verði að minnsta kosti ekki í þessum mánuði. Þá verður komið haust og sumarumferð að hinum vin- sælu ferðamannastöðum lokið. Spurður um það hvort vit sé í að taka tilboði sem sé aðeins rúmlega helmingur áætlaðs kostnaðar segir Svanur að vel megi spyrja sig að því en Vegagerðin verði að fara eftir reglum sem í gildi séu. „Það eru gerðar ákveðnar kröfur til verktaka, fjár- hagskröfur og fleira. Ef þeir uppfylla þær kröfur sem gerðar eru eigum við erfitt með að ganga fram hjá þeim. Þessi tiltekni verk- taki stóðst þessar kröfur.“ Vegna seinagangs við vegabæturnar og þess hve ástand vegarkaflans er slæmt segir Svanur að Vegagerðin sé að kanna hvort hún grípi inn í verkið og fram fyrir hendurnar á verktakanum. „Þetta stefnir í óefni,“ segir hann, „og það getur vel verið að grípa verði til slíkra ráða þótt það þýði að verkið verði eitthvað dýrara en nam hinu lága tilboði.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is „Þetta stefnir í óefni“ Svæðisstjóri Vegagerðarinnar segir stofnunina íhuga að grípa inn í vegna seinagangs hjá verktaka. Vegurinn er einn sá fjölfarnasti á landinu en um hann fer m.a. umferð að Gullfossi og Geysi. Hættulegur kafli að mati lögreglu. Slys varð um helgina vegna lausamalar.  vegagerð Ófremdarástand á Laugarvatnsvegi Vegabótum á Laugarvatnsvegi átti að ljúka 15. júní en enn sér ekki fyrir endann á þeim. Kaflinn á hinum fjölfarna vegi er grófur og lausamöl gerir hann hættulegan. Ljósmynd/Kristrún Sigurfinnsdóttir 8 fréttir Helgin 12.-14. ágúst 2011 www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu Hver er þín Paradís? Skemmtisaga um ástina eftir einn vinsælasta höfund Þýskalands „Frábærlega hugsuð og byggð saga.“ DIE ZEIT „Óvenjulega skemmtileg og auðlesin ...“ BERLINGSKE TIDENDE

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.