Fréttatíminn - 12.08.2011, Qupperneq 10
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Hornstrandaferðum lýkur brátt
Sækjast eftir
íslenskum fíkni-
efnaleitarhundum
Erlend lögregluyfirvöld vilja
kaupa íslenska fíkniefnaleitar-
hunda. Fjórir af átta hvolpum
tíkar lögreglunnar á Suður-
nesjum og hunds Tollgæslunnar
þykja efnilegir leitarhundar,
en ríkislögreglustjóri vill ekki
selja, að því er fram kemur í árs-
skýrslu Ríkislögreglustjóra sem
Ríkisútvarpið vitnar til. Verkefni
fyrir þessa hunda eru talin
næg hér á landi en lögreglan
er með fíkniefnaleitarhunda í
öllum landsfjórðungum. Verð á
fíkniefnahundum erlendis hefur
snarhækkað í kjölfar efnahags-
breytinga. Í sparnaði tók lög-
reglan til þess ráðs að kynna tík
embættisins á Suðurnesjum fyrir
hundi Tollgæslunnar. Þau kynni
skiluðu átta hvolpum og hefur
nú komið í ljós að fjórir þeirra
teljast efnilegir til fíkniefna-
leitar og hafa staðist próf í þeim
fræðum. -jh
SkipulagSmál Nýtt íbúðahótel í miðbæNum
Hótelíbúðir í Kirkjuhvoli
Þórsgarður hefur fengið leyfi fyrir
fjórtán hótelíbúðum í Kirkjuhvoli við
Kirkjutorg, beint á móti Dómkirkjunni.
Jafnframt hefur veirð sótt um leyfi fyrir
þremur íbúðum til viðbótar. Þórsgarður,
sem er í eigu bandaríska fjárfestisins
Michaels Jenkins og þeirra Valdísar
Fjölnisdóttur og Eyglóar Agnarsdóttur,
keypti þetta sögufræga hús af Karli
Steingrímssyni, betur þekktum sem
Kalla í Pelsinum, fyrr á árinu. Stefnt er
að því að hótelið verði opnað næsta vor,
að sögn Valdísar, framkvæmdastjóra
Þórsgarðs.
„Markhópurinn er fólk sem vill njóta
þess sem íbúðir hafa upp á að bjóða
fremur en hótelherbergi. Fjölskyldur þar
sem pör geta haft börnin sín hjá sér en
samt verið út af fyrir sig, hvort heldur
sem þau eru Íslendingar eða útlendingar.
Yfir sumartímann má gera ráð fyrir að
útlendingar verði í meirihluta og að yfir
vetrartímann verði þó nokkuð um Íslend-
inga sem vilja búa í höfuðborginni tíma-
bundið og njóta þess að vera í íbúð með
öllu tilheyrandi og á besta stað í bænum,“
segir Valdís í samtali við Fréttatímann.
Kirkjuhvoll er sögufrægt hús í
hjarta miðbæjarins.
Áætlunarsiglingum í Hornstrand-
afriðlandið fer að ljúka en síðasti
áætlunarbáturinn siglir til Horn-
víkur næstkomandi mánudag, 15.
ágúst. Áætlun til Hesteyrar verður
í gangi til 21. ágúst. Til Aðal-
víkur verða ferðir frá Ísafirði og
Bolungarvík til 28. ágúst. Þessu
til viðbótar munu bátarnir vera á
ferðinni í ýmis konar aukaferðum,
að því er fram kemur á vef Bæjar-
ins besta. Þar segir enn fremur að
umferð ferðafólks um friðlandið hafi verið ágæt í sumar en haft er eftir Jóni Björns-
syni landverði að erlendir ferðamenn hafi verið í meirihluta. Í sumar hafa landverðir
Hornstrandafriðlandsins haft fasta viðveru í Hornvík og á Hesteyri. Starfsstöðinni
í Hornvík verður lokað fljótlega eftir síðustu áætlunarferð sumarsins þangað, en
stöðin á Hesteyri verður opin lengur fram eftir mánuðinum. -jh
Hagstæð vöruskipti í júlí
Vöruskipti voru hag-
stæð um 10,4 milljarða
króna í júlí, samkvæmt
bráðabirgðatölum sem
Hagstofa Íslands hefur
birt. Útflutningur nam
52,5 milljörðum króna
en innflutningur 42,1
milljarði króna. - jh
+
10,4
milljarðar
VöRuSkipTi Í JÚlÍ
Hagstofa Íslands
Steingrímur studdist
við neyðarlögin
Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu, vegna um-
fjöllunar um heimildir fjármálaráðherra til að stofna
Spkef sparisjóð til að taka við rekstri Sparisjóðsins í
keflavík, að ráðherrann hafi haft heimild samkvæmt
neyðarlögunum svokölluðu til að stofna nýtt fjár-
málafyrirtæki til þess að taka yfir rekstur annars
fjármálafyrirtækis sem komið er í þá stöðu að það
getur ekki lengur starfað. „Hugtakið fjármálafyrir-
tæki,“ segir í ráðuneytistilkynningunni, „er ekki
bundið við tiltekið félagaform, en samkvæmt lögum
um fjármálafyrirtæki geta fjármálafyrirtæki verið
annað hvort hlutafélög eða sparisjóðir.“ Að halda
því fram, segir enn fremur, að heimildir fjármálaráð-
herra séu bundnar við að stofna hlutafélag fremur
en sparisjóð er þannig augljóslega rangt. -jh
Lj
ós
m
yn
d
El
ía
s
O
dd
ss
on
ViðbótarSparNaður FramleNgiNg úttektar
Úttekt á viðbótarsparnaði
framlengd í september
Alþingi ætlar á septemberþingi að framlengja heimild til að taka út viðbótarlífeyrissparnað, en
heimildin rann út 1. apríl síðastliðinn.
F ramlengingin á heimildinni til að taka út við-
bótarlífeyrissparnað var
afgreidd út úr efnahags-
og skattanefnd í júní og
ég geri ráð fyrir að hún
komi til afgreiðslu í sept-
ember þegar þingið hefst
að nýju,“ segir Helgi
Hjörvar, formaður efna-
hags- og skattanefndar, í
samtali við Fréttatímann.
Heimild til að taka út við-
bótarsparnað rann út 1.
apríl síðastliðinn án þess
að hún væri framlengd á
vorþingi.
Helgi segir að heim-
ildin verði með svipuðu
sniði og síðast. Hámarkið verður fimm
milljónir og má búast við því að heimildin
gildi til áramóta til að byrja með. „Það
verður rætt í tengslum við fjárlagagerð
hvort ekki sé þörf á því að
framlengja heimildina út
næsta ár en það hefur ekki
verið tekin nein ákvörðun
um það,“ segir Helgi.
Samkvæmt síðustu heim-
ild máttu einstaklingar taka
að hámarki fimm milljónir
króna á tólf mánuða tímabili
eða rúmlega 416 þúsund
krónur á mánuði. Af þeirri
upphæð var síðan dreginn
tekjuskattur.
Úttekt á viðbótarlífeyris-
sparnaði hefur gert mikla
lukku meðal þjóðarinnar. Í
febrúar á þessu ári birti Rík-
isskattstjóri tölur um úttekt
á viðbótarlífeyrissparnaði.
Þar kom fram að alls hefðu
um 52 þúsund manns sótt um úttekt fyrir
um 40 milljarða frá hruninu 2008. Líklegt
er að tekjur ríkisins af þessum úttektum
hafi numið hátt í annan tug milljarða.
Það verður
rætt í
tengslum
við fjár-
lagagerð
hvort ekki
sé þörf
á því að
framlengja
heimildina
út næsta ár.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Helgi Hjörvar, formaður
efnahags- og skattanefndar.
10 fréttir Helgin 12.-14. ágúst 2011