Fréttatíminn - 12.08.2011, Síða 25
3*39 mbl
„Ég fíla
græna bíla“
Suð u r l a n d s b r a u t 1 4 s ím i 4 40 4400
www . e r g o . i s e r g o@e r g o . i s
E r g o f j á rmögnun a r þ j ó n u s t a Í s l a n d s b a n k a
Ef þú velur umhverfishæfari bíl
nýturðu betri kjara
Græn lán Ergo bera engin lántökugjöld
Með Grænum lánum vill Ergo koma til móts við þá
sem kjósa sparneytnari bíla sem nýta nýjustu tækni
við að draga úr úrblæstri koltvísýrings. Þannig stuðla
Græn lán að bættu umhverfi.
Græn lán standa til boða, út árið 2011, við kaup
á nýjum bílum í A–C flokki (120 g/km af CO2 eða
minna). Hægt er að velja á milli bílalána og bílasamninga.
Dæmi
Þú tekur 3 milljóna króna Grænt bílalán
til 7 ára => þú sparar 105.000 krónur.
Reiknaðu með okkur
Sex ára píslargöngu loks lokið
Þetta var á útvarpsárunum hans en
Jóhannes var fyrsta karlröddin til
að lesa svokallaðar lesnar auglýs-
ingar á Bylgjunni. Hann rak líka
FM957 um tíma fyrir menn sem
höfðu tekið hana upp í skuld og
tókst svo loks að selja Árna Samú-
elssyni hana. Þannig að Jóhannes
er hvorki engill né ilmenni og vill
sjálfur ekki draga neitt undan varð-
andi þau mistök sem hann hefur
gert.
Taugaáfall og sjálfsmorðsvakt
„Það er svo skrýtið að í fangelsinu
þá stundum vildi maður heldur vera
inni í stað þess að fara út í litla garð-
inn í þessar 45 mínútur sem manni
var hleypt út. Af því að maður hafði
val,“ segir Jóhannes sem eyddi
tveim mánuðum í fangelsi, fyrst í
Bedford og svo í Norwich: „Það var
að mörgu leyti betra því Norwich-
fangelsið er minna en öryggis-
gæslan er ekki eins öguð og því var
meira um ofbeldi og slíkt.“
Ástæðan fyrir fangelsisvist
Jóhannesar var að ekki er fram-
salssamningur á milli Íslands og
Bretlands. Dómstólar ytra féllust á
fullyrðingar saksóknara um að ef
Jóhannesi yrði hleypt út færi hann
beina leið til Íslands og kæmi aldrei
aftur. Það tók mikið á að fá dómara
til að samþykkja 100 þúsund punda
(tæpar tuttugu milljónir) tryggingu
ef Jóhannes útvegaði sér heimilis-
fang í Englandi og samþykkti að
vera með ökklaband. Illa gekk að
safna tryggingarfénu hér heima
sumarið 2009 og það var ekki
fyrr en Jóhannes fékk taugaáfall
í Norwich og var settur á sjálfs-
morðsvakt að dómarinn sam-
þykkti að lækka tryggingarféð um
helming. Þá tókst bróður hans að
slá yfirdrátt í banka og Jóhannesi
var afhentur lestarmiði, plastpoki
og Biblía:
„Það er ekki hægt að lýsa því
hvernig þetta fer með mann,“ sagði
Jóhannes mér og á þessum fundum
okkar hafði ég oft flissað og hlegið,
jafnvel þegar hann var að lýsa fyrir
mér fangavistinni. Það var eins og
ég þyrfti að verja sjálfan mig í stað
þess bara að taka þetta inn. Þegar
ég sagði honum það sagðist hann
upplifa þetta svipað. Þegar hann
hugsar um þennan tíma, sitjandi í
lest alskeggjaður á leið til London
eftir tvo mánuði lokaður inni í klefa
22 tíma á sólarhring, líður honum
eins og þetta hafi ekki verið hann:
„Þetta braut mig niður og ég er allt
annar maður,“ segir hann.
Framhald á næstu opnu
Helgin 12.-14. ágúst 2011