Fréttatíminn - 12.08.2011, Page 27
Hvernig
á maður
að velja?
Ef valkvíði gerir vart við sig í upphafi
Jazzhátíðar er auðvitað langeinfaldast
að slá á hann með því að tryggja
sér aðgang að öllum viðburðum
hátíðarinnar, en það er hægt að gera
til 15. ágúst. Þannig getur maður líka
verið viss um að gera bestu kaupin, og
hver vill ekki gera góðan díl? En það
er líka góður díll að velja sér tiltekna
viðburði, enda miðaverði stillt í hóf.
Það hefur komið til tals að merkja
tónleika Jazzhátíðar Reykjavíkur á
eftirfarandi máta til að auðvelda
hlustendum valið:
n Hlustunarpípa = ljúf og hljóðlát
músík.
n Sperrt eyru = í meðallagi sterk
músík
n Heyrnarskjól = mjög hávaðasöm
músík
Það má líka reyna að meta hversu
fljótt músíkin nær til áheyrandans:
n Broskall - Lokuð augu = mjög
aðgengileg tónlist.
n Broskall - Opin augu = frekar
krefjandi tónlist.
n Broskall - Hissa = ótrúlega tyrfin og
torskilin tónlist .
Ekki má gleyma á hvaða
aldri tónlistin er:
n Talstöð = Upprunajazz
n Skífusími = Svíngjazz eða bíbopp
n Farsími = Nútímajazz
Eða hvaðan tónlistin kemur:
n Gulur leigubíll = Amerískur jazz
n Reiðhjól = Skandinavískur eða
evrópskur jazz
n Togari = Íslenskur jazz
n Sem sagt: Tónlist auðkennd með
bjarteygum broskalli, farsíma,
gulum leigubíl og hlustunarpípu
væri samkvæmt þessu = amerískur
nútímajazz sem er frekar krefjandi
en líka ljúfur og hljóðlátur.
Jazzhátíð tekur enga ábyrgð á því
hvort slíka tónlist sé að finna á há-
tíðinni. Er þetta nokkuð skrítnara en
stjörnugjöf?
Stórt LIKE á það.
Jazzhátíð Reykjavíkur
Danilo Perez Píanóleikari
D
anilo Perez fæddist
í Panama 1965 og
hóf tónlistarnám
þriggja ára. Tíu ára
var hann kominn í
klassískt píanónám í konservatorí-
inu í Panama. Hann náði sér líka
í gráðu í rafeindavirkjun áður en
hann hélt til Bandaríkjanna og hóf
nám við Berklee College of Music
um miðjan níunda áratuginn þar
sem hann lagði stund á tónsmíðar
auk þess að leika með hljóm-
sveitum Terence Blanchard, Jon
Hendricks og Paquito D’Rivera
þangað til 1989, þegar hann gekk
til liðs við hina rómuðu jazzsveit
sem Dizzy Gillespie hélt úti undir
merkjum Sameinuðu þjóðanna.
Með þeirri sveit lék Danilo í fjögur
ár.
Fyrsta sólóplata hans leit
dagsins ljós 1992 (Danilo Perez)
og í kjölfarið kom The Journey,
báðar gefnar út hjá RCA/Novus.
Hann tók höndum saman við hinn
rómaða upptökustjóra Tommy
LiPuma og gerði Paramonk 1996,
plötu sem New York Times kallaði
„Meistarverk í stílfléttum jazzins“.
Þá komu þrjár plötur sem allar
voru tilnefndar til Grammy-verð-
launa: „Central Avenue“(1998),
„Motherland“ (2000) og „Till
Then“ (2003). Píanistinn snjalli
hefur líka gefið út tónleikaplötu
með tríói sínu (Live at the Jazz
Showcase 2005) og stórsveitar-
plötu (Panama Suite 2006). Og
plöturnar halda áfram að koma
(Across the Crystal See -2008-
með Claus Ogermann og Provi-
dencia sem kom út í ágúst 2010).
Ekki má heldur gleyma því
að Danilo Perez hefur verið
píanisti Wayne Shorter í rúm
tíu ár og hljóðritað með honum
tónleikaplötuna Footprints 2001
og Grammy verðlaunaplöturnar
Alegria (2003) og Beyond the
Sound Barrier (2005). Hann lék
einmitt með Shorter á tónleikum
Listahátíðar í Háskólabíói 2008 og
vakti mikla athygli fyrir frammi-
stöðu sína þar.
Nú um stundir er Danilo Perez
listrænn stjórnandi Jazzhátíðar-
innar í Panama, en hann stofnaði
hátíðina 2003. Hann veitir líka
forstöðu Stofnun Danilo Perez,
sem hann setti á fót 2005 til þess
að veita brautargengi listum og
menningu Panamabúa. Hann er
líka sendiherra fyrir Unicef, List-
rænn stjórnandi Mellon Jazz Up
Close, verkefnis Kimmel-stofnun-
arinnar í Fíladelfíu, og kennir auk
þess við New England Conserva-
tory og Berklee College of Music,
en báðir skólarnir eru í Boston þar
sem Danilo býr.
Sendiráð Bandaríkjanna á
Íslandi veitti styrk til Jazzhá-
tíðar Reykjavíkur að verðmæti
2.605.500 kr. vegna þátttöku þessa
frábæra panamska-bandaríska
tónlistamanns sem mun koma
fram í Hörpu 27. ágúst næstkom-
andi. Sendiherra Bandaríkjanna,
Luis Arreaga, sem hefur áður
verið í samstarfi við Perez, sagðist
hlakka til að færa einstakan hljóm
tónlistarmannsins til Íslands.
„Danilo er stórkostlegur tónlistar-
maður og persóna sem sannarlega
sýnir að tónlist er hið alþjóðlega
tungumál sem sameinar okkur
öll,” sagði Luis. „Ég lofa að allir
sem koma á tónleikana hans munu
vilja heyra meira frá Danilo.“
Tríó hans með bassaleikaranum
Ben Street og trommaranum
Adam Cruz hefur starfað lengi og
ferðast um allan heim.
Jazzpáfi
Panama
Danilo Perez lék kornungur með stórsveit Dizzy Gillespie og er
píanóleikari Wayne Shorter. Hann stofnaði Jazzhátíð Panama
fyrir átta árum og mætir með tríó sitt á hátíðina í Reykjavík.
20. ágúst - 3. septemberwww.reykjavikjazz.is
www.noatun.is
Verslanir Nóatúns eru
opnar allan sólarhringinn
Nýttu þér nóttina í
Nóatúni