Fréttatíminn - 12.08.2011, Blaðsíða 52
Ég lærði mikið
af þessu og er
spennt að byrja
að vinna að
næsta handriti.
É g hafði ekki endilega ætlað mér að gera svona stóra mynd. Svo
fékk ég þessa hugmynd og þá
varð þetta bara eins og barn
í maganum sem þurfti að
komast út,” segir kvikmynda-
gerðarkonan og ljósmyndar-
inn Ugla Hauksdóttir en
kvikmynd hennar, Vera,
verður frumsýnd hér á landi
á alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni RIFF sem verður haldin
í Reykjavík í lok september.
Ugla útksrifaðist nýverið úr
Cooper Union listaháskól-
anum í New York en skólinn
er talinn einn besti listahá-
skólinn í Bandaríkjanum. “Ég
var á sjónlistabraut í fjögurra
ára námi og útskrifaðist með
B.A. gráðu í vor,” segir Ugla
sem var einungis átján ára
þegar hún hélt út í námið.
„Ég hafði búið með mömmu
minni út í New York í tvö ár
á meðan ég var í gagnfræði-
skóla og ákvað að sækja um
nám í Cooper Union en bjóst
alls ekki við að komast inn,“
en einungis 65 nemendur af
3-4000 umsækjendum komast
inn í skólann á ári hverju og
hljóta fullan skólastyrk. Ugla,
sem hefur eytt síðustu fjórum
árunum á Manhattan í New
York hlaut kvikmyndaverð-
laun skólans fyrir útskriftar-
verkefnið sitt. „Myndin heitir
Vera og fjallar um unga konu
sem á engar minningar um
móður sína. Vera reynir að
skapa samhengi í lífi sínu
með örvæntingafullri leit að
móðurímyndinni og opnast
þá áhorfendum innsýn inn í
leyndardóma mannshugans,“
segir Ugla sem skaut kvik-
myndina á Íslandi og notaði
íslenska leikara meðal annars
þau Helgu Jónsdóttur og
píanóleikarann Jónas Ingi-
mundarson afa sinn. Móðir
Uglu, Pálína Jónsdóttir, fer
einnig með hlutverk í mynd-
inni. “Mamma er leikkona
og pabbi er sálgreinir. Ég hef
hins vegar bæði áhuga á kvik-
myndagerð og sálgreiningu
og fékk þau því til liðs við
mig til að búa til eins konar
psychodrama. Handritið
skifaði ég þó ein.” Ugla vonast
til að sýna myndina á Íslandi
sem allra fyrst en stefnir
síðan á að senda myndina á
hátíðir víða um heim. “Það
var mikil lífsreynsla að gera
þessa fyrstu mynd, ég lærði
mikið af þessu og er spennt
að byrja að vinna að næsta
handriti.”
kvikmyndir íslenskur verðlaunahafi
Hlaut kvik-
myndaverð-
laun skólans
Ugla Hauksdóttir útskrifaðist nýverið með BA-gráðu
frá Cooper Union, einum virtasta listaháskóla í Banda-
ríkjunum. Hún hlaut kvikmyndaverðlaun skólans fyrir
stuttmynd sína, Veru, og stefnir á áframhaldandi störf
í kvikmyndagerð.
Ugla Hauksdóttir
stefnir á að frum-
sýna bíómynd sína,
Vera, á Íslandi í
haust.
Við höfðum
kynnst Íslandi
vel og fannst
landið heppi-
legt fyrir okkur.
Þ etta er algerlega á viðskiptalegum forsend-um,“ segir Andrey þegar hann er spurður hvernig á því standi að Rússi búsettur í
Reykjavík hafi ákveðið að opna sushi-stað. „Við
erum ekkert að hengja okkur í þjóðerni hérna,“
segir Andrey glaðlega. „Japönsk eldamennska er
mjög vinsæl hérna, og þá sérstaklega sushi, þannig
að ég sá tækifæri í þessu. Ég átti sparifé sem ég
setti í þetta verkefni sem ég tel að feli í sér mikla
möguleika.“
Andrey kom fyrst til Íslands 1993 og var þá í við-
skiptaerindum. „Ég kom hingað oft eftir það og
árið 1998 flutti ég til Íslands með alla fjölskylduna.
Börnin voru þrjú á þessum tíma og öll lítil og við
vildum ekki ala þau upp í borg eins og Moskvu.
Við höfðum kynnst Íslandi vel og fannst landið
heppilegt fyrir okkur og ákváðum að hér skyldum
við búa,“ segir Andrey og bætir því við að enn
sem komið er sé hann sá eini úr fjölskyldunni sem
vinni á staðnum. „Þetta er því ekki hreinræktað
fjölskyldufyrirtæki þannig lagað en fjölskyldan
stendur þétt að baki mér í þessu.“
Eftir að Andrey fluttist til Íslands vann hann í tíu
ár hjá Norvik Group við þróun á timburframleiðslu
í Rússlandi. Árið 2008 skráði hann sig í MBA-nám
við Háskólann í Reykjavík. Hann lauk náminu í
fyrravor og fór þá að undirbúa veitingareksturinn.
Og þegar betur er að gáð er fiskmeti að hætti Jap-
ana ef til vill ekki jafn fjarlægt Andrey og í fyrstu
mætti ætla. „Ég höndlaði með sjávarfang í Moskvu
í um það bil fimm ár þannig að ég er vel að mér í
öllu sem viðkemur fiski. Ég legg mikið upp úr því
að nota aðeins úrvals hráefni þar sem ég vil að við-
skiptavinir mínir séu ánægðir. Ég hef líka mikinn
áhuga á vöruþróun og markaðsmálum þannig að
andrey rudkov Flutti með Fjölskylduna til Íslands
Rússi reiðir fram
sushi í Glæsibæ
Andrey unir sér vel á Íslandi og
vill hvergi annars staðar vera.
Andrey Rudkov flutti með fjölskyldu sína
til Íslands fyrir rúmum áratug eftir að hafa
kynnst landi og þjóð á ferðum sínum hingað.
Eftir að hafa unnið við timburframleiðslu í
tíu ár skellti hann sér í MBA-nám og rekur nú
japanska veitingastaðinn Tokyo í Glæsibæ.
eldhúsið sjálft er mjög stór hluti af
þessu öllu saman.“
Þar fyrir utan er Andrey for-
fallinn fluguveiðimaður og kann
hvergi betur við sig en úti í ís-
lenskum ám og vötnum. „Ég hef
rennt fyrir lax og silung úti um allt
og stundaði veiðar af miklu kappi
áður en ég opnaði veitingastaðinn
en hef eiginlega ekki komist neitt
í veiði eftir það,“ segir Andrey sem
unir sér vel á Íslandi og vill hvergi
annars staðar vera. toti@frettatiminn.is
Glaumbar
opnar á ný
Hinn gamalkunni sportbar Glaumbar
opnar á ný á laugardaginn. Barinn átti
sitt blómaskeið fyrir röskum áratug
eða svo og nú ætlar sá margreyndi
barþjónn Davíð Kristinsson að reka
barinn í anda þess tíma og hefja hann
til vegs og virðingar á ný.
„Takmarkið er að vera með góðan
íþróttabar og byggja á gömlum grunni
þótt við ætlum okkur ekkert að hverfa
aftur til fortíðar þótt Corona-kvöldin
verði á sínum stað,“ segir Davíð.
„Við ætlum að hækka aðeins stand-
ardinn í þessu þannig að þetta verður
ekki bara bolti og bjór. Við bjóðum upp
á spurningakeppnir og atriði í hálfleik
þannig að fólk er bara mætt á völlinn
þegar það kemur hingað. Næturpartíin
okkar eiga svo að jafnast á við bestu
heimapartí.“
Þeir sem muna eftir Glaumbar
munu kannast við sig á staðnum þótt
ýmsar breytingar hafi verið gerðar.
„Allt hefur verið betrumbætt en barinn
er á sínum stað enda tekur þú ekkert
barinn af Glaumbar. Hann er hjarta
staðarins.“
Lj
ós
m
yn
d/
Te
it
ur
Er alltaf það
sama í matinn?
100 uppskrift ir að hollum
og einföldum heimilisréttum
LOKSINS
FÁANLEG
AFTUR!
Getur þú
verið
heimilisvinur
Dieter?
www.soleyogfelagar.is
48 dægurmál Helgin 12.-14. ágúst 2011