Fréttatíminn - 23.09.2011, Síða 8
Það er allt í lagi. Pappelina vill láta ganga yfir
sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti.
Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er
á gólfinu. Tilvalinn félagi í forstofuna eða eldhúsið.
Svo vill hún líka fara í þvottavél.
Plastmotturnar frá Pappelinu hafa farið sigurför
um heiminn og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi.
Kíktu á úrvalið í verslun Kokku eða á kokka.is.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Á skítugum
skónum?
Auglýsinga-
markaðurinn að
braggast
Velta auglýsingastofa hefur
verið að aukast það sem af
er ári, samkvæmt tölum frá
Hagstofu Íslands sem vefur
Viðskiptablaðsins vitnar til.
Á tímabilinu janúar til apríl á
þessu ári var velta hjá aug-
lýsingastofum nær 17% meiri
en árið áður. Ársreikningar
helstu auglýsingastofanna fyrir
síðasta ár sýna að auglýsinga-
markaðurinn hefur komið vel til
baka og var hagnaður af rekstri
þeirra stærstu á síðasta ári.
Þegar skoðaðir eru ársreikn-
ingar stærstu stofanna kemur
í ljós að flestum tókst að sigla í
gegnum samdrátt síðustu ára á
auglýsingamarkaði réttu megin
við núllið, að því er fram kemur
á vef VB. Auglýsingastofan
ENNEMM hagnaðist um 14
milljónir króna á árinu 2010
samanborið við tæpar tvær
milljónir árið 2009. Fíton
hagnaðist um 13,3 milljónir
króna í fyrra. Hvíta húsið skilaði
tæplega 10 milljónum króna
í hagnað 2010 samanborið
við 20 milljóna króna tap árið
2009. Tölur liggja ekki fyrir hjá
Íslensku auglýsingastofunni en
hagnaður hennar árið 2009
nam 31 milljón króna. - jh
Elliðaárdalurinn. Íbúafundur hverfisráða Árbæjar og Breiðholts leggst gegn hugmyndum sem fram hafa komið í vinnu við
aðalskipulag Reykjavíkur um að þétta byggð í dalnum á þremur stöðum. Ljósmynd/Hari
RAX hlaut fjölmiðlaverðlaun
umhverfisráðuneytisins
Ragnar Axelsson, RAX, ljós-
myndari Morgunblaðsins,
hlaut á föstudaginn, á Degi
íslenskrar náttúru, fjölmiðla-
verðlaun umhverfisráðuneyt-
isins. Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra afhenti
Ragnari verðlaunin en í rök-
stuðningi dómnefndar segir
m.a. að hann hafi sérstaklega
beint sjónum að samspili
manns og náttúru á langri
starfsævi. Ljósmyndarinn hafi bent á að náttúran sé viðkvæm
en jafnframt voldug. Mikilvægt sé fyrir manninn að stíga
varlega til jarðar með auðmýkt, ábyrgð og virðingu. - jh
Lj
ós
m
yn
d/
U
m
hv
er
fi
sr
áð
un
ey
ti
ð
Skipulag Drög lögð að Stofnun hollvinaSamtaka
Íbúafundur leggst gegn
hugmyndum um þéttingu
byggðar í Elliðaárdal
Formönnum hverfisráða Árbæjar og Breiðholts kynntar aðalskipulagshugmyndir um þéttingu
byggðar á þremur stöðum í dalnum. Þetta hljómar mjög illa, segir Þorleifur Gunnlaugsson,
varaborgarfulltrúi og formaður hverfisráðs Árbæjar.
m enn voru mjög ákveðnir í því á þessum fundi að vilja ekki meira inn í dalinn,“ segir Þor-
leifur Gunnlaugsson, formaður hverfis-
ráðs Árbæjar og varaborgarfulltrúi VG,
en hverfisráð Árbæjar og Breiðholts
boðuðu til fundar á dögunum um Elliða-
árdalinn. „Ég greindi frá því á fundinum
að uppi væru hugmyndir um að setja
aukna byggð á þrjá staði í Elliðaárdaln-
um í þeirri aðalskipulagsvinnu sem nú
er í gangi í borginni,“ segir Þorleifur.
Hann segir að á vinnufundi sem
hverfisráðin tvö héldu fyrir íbúafundinn
með ýmsum sviðum borgarinnar, þar á
meðal skipulagsráði, hafi komið fram
hugmyndir um að þétta byggð í Elliða-
árdalnum. Um sé að ræða svæði fyrir
neðan Ártúnsholt, undir Stekkjarbakka
og gömlu námurnar.
„Þetta hljómar mjög illa,“ segir
Þorleifur. „Þessi fundur var með það að
markmiði að skapa endanlega sátt um
ytri mörk Elliðaárdalsins, að hann haldi
sér eins og hann er. Þess vegna mætti
eitthvað fara burt úr dalnum, t.d. gamla
Toppstöðin.“
Þorleifur tók það fram að ekki hefði
verið ákveðið að þétta byggð þarna
en tillögur hefðu komið fram um slíkt
í þeirri endurskoðun á aðalskipulagi
Reykjavíkur sem nú stendur yfir. „Við
sáum að þarna voru þrjú nokkuð stór
svæði merkt með bláu. Þetta er því
komið á hugmyndastig. Íbúarnir eru að
taka þetta upp tímanlega til að koma í
veg fyrir þetta strax.“
Þorleifur segir að ákveðinn hluti
Elliða árdals sé skilgreindur sem útivist-
arsvæði en annar sem jaðarsvæði. Hann
segir að allt svæðið þurfi að fegra og til
umræðu sé að byggingar sem þjóni daln-
um bætist við, klósett og þess háttar.
Andi íbúafundarins hafi hins vegar verið
sá að ekki komi nein íbúðabyggð til við-
bótar í dalinn. Þar hafi verið ákveðið að
stofna hollvinasamtök Elliðaárdals.
„Þessi dalur er alveg einstakur. Það er
ekki bara gróðurfarið heldur árnar með
þetta mikla lífríki. Þá er mikil jarðsaga í
dalnum og mikið af sögulegum minjum,
sérstaklega neðst í honum, m.a. rúna-
steinn. Svo er þarna ein stærsta hest-
húsabyggð í heimi í borg, auk veiði-
mennskunnar og fleira,“ segir Þorleifur.
Hann segir vilja fyrir því meðal íbú-
anna að tengja Árbæjarsafn, sem er í
dalnum, meira við hann, en aðkoma að
því er annars staðar. „Menn vilja að Ár-
bæjarsafn verði hluti af Elliðaárdalnum.
Ein hugmyndin sem fram kom var að
leggja járnbrautarteina og láta eimreið-
ina í Árbæjarsafninu ganga í dalinn.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Þessi dalur
er alveg
einstakur.
Þorleifur Gunnlaugsson.
8 fréttir Helgin 23.-25. september 2011