Fréttatíminn - 23.09.2011, Blaðsíða 10
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
v
Ath. lAgersAlAn er í kAuptúni (gegnt ikeA, við hliðinA á verslunum tekk-compAny og hAbitAt)
Opið virka daga 13–18, laugardaga kl.10–17 og sunnudaga kl. 13–17 Sími 564 4400
lAger
tekk-compAny
sAlA 50
80
% Afsláttur
til
6 kerti
í pk.
357 kr.
kertAluktir
frá
550 kr.
snAgAhillA
7.560 kr.
6 glös í pk.
1.770 kr.
70%
60%
60% 60%
70%
gjAfAbox
1.960 kr.
4 stk.
sAmAn
F
A
B
R
I
K
A
N
Hálfkaraðar byggingar kláraðar
8,1%
hækkun byggingar
kostnaðar síðustu
12 mánuði
Skv. vísitölu
byggingarkostnaðar
Hagstofa Íslands
íbúðalánasjóði veitt
heimild til að bjóða
óverðtryggð lán
íbúðalánasjóður hefur fengið heimild
til að veita óverðtryggð lán samkvæmt
breytingu á lögum um húsnæðis
mál sem alþingi hefur samþykkt en
frumvarpið
var lagt fram
á alþingi
í október
í fyrra.
íbúðalána
sjóði er falið
að útfæra
hvernig haga
skuli fjár
mögnun og
útgáfu óverð
tryggðra
skuldabréfa
flokka og er sú vinna hafin hjá sjóðn
um, að því er fram kemur í tilkynningu
velferðarráðuneytisins. samkvæmt
lögunum getur Íbúðalánasjóður gefið
út óverðtryggða skuldabréfaflokka og
þar með veitt óverðtryggð lán. miðað
er við að vextir óverðtryggðra lána
geti verið breytilegir. jh
Verkefnastjóri við losun
gjaldeyrishafta
Þorgeir Eyjólfsson hefur verið ráðinn tíma
bundið sem verkefnastjóri í seðlabanka ís
lands við losun gjaldeyrishafta. hann mun
hafa umsjón með framkvæmd áætlunar
um losun haftanna í samstarfi við tiltekin
svið og starfsmenn seðlabankans, að því
er fram kemur í tilkynningu bankans. Þor
geir gegndi m.a. starfi forstjóra Lífeyris
sjóðs verslunarmanna frá 1984 til 2009 og
var framkvæmdastjóri eignastýringar mP
banka frá október 2009 til maí 2011. jh
Forseti íslands sótti
Clintonþingið
Ólafur ragnar grímsson, forseti íslands,
tók á þriðjudag og miðvikudag þátt í
Clintonþinginu í new york, Clinton global
initiative, en bill Clinton, fyrrum forseti
bandaríkjanna, bauð honum að sækja
þingið, að því er fram kemur á heimasíðu
forsetaembættisins. á miðvikudaginn hóf
Ólafur ragnar umræður í málstofu Clinton
þingsins um hvernig skipulag borga getur
byggst á hreinni orku, umhverfisvænni
umferð og sjálfbærum lífsháttum, m.a. í
ljósi þeirra umbreytinga sem orðið hafa á
íslandi á síðastliðnum áratugum. jh
Fjárfesting í íbúðarhúsnæði, þ.e. fjármagn sem varið er í
byggingu íbúðarhúsnæðis, hefur verið að aukast á þessu
ári eftir samdrátt sem staðið hefur frá upphafi árs 2008.
Var fjárfestingin á föstu verðlagi á öðrum ársfjórðungi
13% meiri en á sama tímabili í fyrra. aðallega er verið að
ljúka byggingu hálfkaraðra húsa. aukning mælist í fjár
festingum í íbúðarhúsnæði þrátt fyrir að byggingarkostn
aður vaxi hratt. hefur hann hækkað um 8,1% á síðustu
tólf mánuðum samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar
sem hagstofan birti. aukna fjárfestingu í íbúðarhús
næði má, að mati greiningar íslandsbanka, helst rekja til
þess að kaupmáttur launa er að aukast, fjöldi starfandi
vaxandi, vaxtastigið lágt og húsnæðisverð að hækka. Þá
hefur verið létt skuldabyrði af fjölmörgum heimilum. Þrátt
fyrir að fjárfestingar í íbúðarhúsnæði fari nú vaxandi eru
þær enn litlar í sögulegu samhengi. jh
Ostagerð NýjuNg á ÍslaNdi Og þótt vÍðar væri leitað
Fersku íslensku grænmeti blandað í ostinn
„Okkur finnst skemmtilegt að koma
með ost sem er hvorki blandaður
þurrkuðu grænmeti né krydddufti.
Að blanda í ostinn fersku grænmeti
gefur honum ferskleika enda eru
mikil bragðgæði í þessum osti,“ segir
Þórarinn Þórhallsson, mjólkurfræð-
ingur og ostagerðarmaður.
Hann hefur verið ötull við að kynna
Íslendingum nýjungar í ostagerð, m.a
mozarella-ostinn, eftir að hann kom
heim frá námi í Danmörku. Fyrir nær
tuttugu árum stofnaði hann Ostahús-
ið í Hafnarfirði með konu sinni, Maríu
Ólafsdóttur.
Undanfarna mánuði hefur Þórarinn
unnið að nýjungum í ostagerðinni,
smurostum með fersku íslensku
grænmeti. Tvær tegundir eru komnar
á markað, með papriku og sveppum.
Hlutfall grænmetis í ostinum er um
20% en engum öðrum bragðefnum er
bætt í hann.
„Ég þori ekki að fullyrða að þetta
sé nýjung á alþjóðamælikvarða en ég
þekki a.m.k. ekki til þess að það sé
verið að gera þetta í Norður-Evrópu,“
segir Þórarinn. Hann segir græn-
metið hitað til gerilsneyðingar áður
en því er blandað saman við ostinn
þannig að geymsluþol hans sé svipað
og annarra smurosta.
Þórarinn segir hina nýju ostagerð
afrakstur þess að Ostahúsið sam-
einaðist dótturfélagi Sölufélags garð-
yrkjumanna fyrir rúmum fimm árum,
þ.e. að grænmetisvinnsla og ostagerð
voru komin hlið við hlið. Hann segir
að ekki hafi verið hægt að láta sig
dreyma um það í upphafi að þetta
gengi upp með þessum hætti en nú sé
varan komin á markað og hafi fengið
afar góðar viðtökur. Hugsanlegt sé
því að fleiri grænmetistegundir bætist
við í þessari nýstárlegu ostagerð. Þórarinn Þórhallsson ostagerðarmaður. Ljósmynd/Hari
Frá slysstað í Langadal í desember í fyrra. Einn lést. Ljósmynd/RNU
umferðarslys
Bremsulaus tengivagn
varð að drápstæki
Ökumaður með litla reynslu og bremsulausan vagn í eftirdragi þarf að horfast í augu við að
ferðin olli dauða annars manns. Rannsóknarnefnd umferðarslysa gagnrýnir eftirlit yfirvalda með
stórum ökutækjum.
t engivagn vörubifreiðar rakst á flutningabíl sem kom úr gagn-stæðri átt í Langadal í Austur-
Húnavatnssýslu í desember í fyrra með
þeim afleiðingum að ökumaður flutninga-
bílsins lést. Tengivagninn var í óforsvar-
anlegu ástandi, beisli bogið og hann nær
bremsulaus. Farmurinn var steinrör og
reynslulítill ökumaður vörubifreiðarinnar
hafði ekki flutt slíkan farm áður þótt hann
hefði til þess leyfi. Þetta er niðurstaða
rannsóknarnefndar umferðarslysa og er
birt í nýrri ársskýrslu hennar. Steinrörin
köstuðust af vagninum, lentu á húsi flutn-
ingabílsins og bönuðu bílstjóranum.
Ágúst Mogensen, forstöðumaður
rannsóknarnefndarinnar, segir að þegar
orsakagreiningin og tillögur í öryggisátt
séu skoðaðar sjáist að margir þættir spili
saman, ekki aðeins ástand tengivagnsins
heldur einnig breiddin á veginum. „Þarna
mættust stór og breið ökutæki á tiltölulega
mjóum vegi.“
Rannsóknarnefndin gagnrýnir lögreglu
og eftirlitsmenn Vegagerðarinnar og segir
að eftirliti þeirra með stórum ökutækjum
sé ábótavant. Einnig segir Ágúst að farm-
flytjendur þurfi að skoða betur hvort verk-
efnin hverju sinni krefjist þess að farið
sé með ökumanni í fyrstu ferð með nýjan
farm þótt hann hafi til þess réttindi.
Rannsókn málsins er nýlega lokið hjá
sýslumanninum á Akureyri og verið er að
taka saman gögnin. þau verða svo send
ríkissaksóknara.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
bílbelti hefðu
líklega bjargað
18 ára stúlkum
af þeim níu sem létust
í umferðinni í fyrra
benda líkur til að tvær
18 ára stúlkur, sem
létust í slysi á hring
braut við mánatorg í
reykjanesbæ hefðu
lifað af, hefðu þær
notað bílbelti. Þrjár
stúlkur voru farþegar í
nissan terranojeppa og
köstuðust þær allar út
úr honum. tvær þeirra
létust og sú þriðja
slasaðist alvarlega.
„Við sjáum í því slysi
að ökumaður var í
bílbelti og bifreiðin var
ekki það illa farin að
við teljum líkindi til að
þær hefðu hugsanlega
lifað slysið af hefðu
þær notað bílbelti,“
segir ágúst mogensen,
forstöðumaður rann
sóknarnefndar um
ferðarslysa.
Ökumaður var
ölvaður. hjólbarðar og
hemlar bifreiðarinnar
voru í ófullkomnu
ástandi.
10 fréttir helgin 23.25. september 2011