Fréttatíminn - 23.09.2011, Síða 12
Við mönnum
alltaf einn
viðbragðsbíl
að lágmarki á
höfuðborgar-
svæðinu með
vopnuðum sér-
sveitarmönn-
um; alla daga
ársins, allan
sólarhringinn.
S
érsveit lögreglunnar sinnti
63 verkefnum á síðasta ári,
vopnuð hlöðnum skamm-
byssum og jafnvel hríð-
skotabyssum. Fjörutíu og
einn karlmaður er í sérsveitinni. Þeir
gangast undir fjölbreyttar og erfiðar
æfingar og eru ekki fullþjálfaðir fyrr
en að þremur til fjórum árum liðnum.
Þeir fá þó vopnin fyrr í hendur, fara
alltaf með skammbyssuna í vopnuð
útköll og bæta hríðskotabyssunni við
í þeim stærri. „Það koma einfaldlega
upp tilfelli þar sem lögreglan þarf að
vera vopnuð í öryggisskyni,“ segir
Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn
öryggisdeildar ríkislögreglustjóra.
Hann veitir okkur innsýn í vopnabúr
sérsveitarinnar og störf hennar.
Með vinsælustu
vopnin
Byssurnar
sem sér-
sveitar-
menn-
irnir nota
helst eru
tvenns
konar. Skammbyssan Glock 17 er
hálfsjálfvirk og gríðarlega vinsæl í
Bandaríkjunum, með 65% markaðs-
hlutdeild. Fyrstu eintökin voru smíð-
uð í Austurríki 1982 og síðan hafa
ríflega 2,5 milljónir verið framleiddar.
Finnska og sænska lögreglan, vopnuð
sveit þeirrar norsku og hluti þeirrar
dönsku nota allar slíka byssu. Hríð-
skotabyssan er af gerðinni Heckler
& Koch MP5, langvopn með sömu
kúlugerð og skammbyssan. Hún er
upprunnin í Þýskalandi og er um
þessar mundir í mestum vinsældum
hjá hersveitum, leyniþjónustum og
sérsveitum í heiminum.
Í frjálsa alfræðinetritinu Wikipedia
má sjá upptalningu skotvopna sem
sérsveitin notar að auki; Heckler &
Koch G36 riffill, Steyr SSG 69 riffill,
Blaser R93-7.62×51 NATO riffill og
Mossberg 500 haglabyssa. Spurður
um þetta gefur Jón þau svör að upp-
talningin sé „í sjálfu sér ágæt“.
Aldrei hleypt af
Jón Bjartmarz segir að þrátt fyrir
að sérsveitin, oft kölluð Víkinga-
sveitin, hafi verið vopnuð frá árinu
1982 hafi sérsveitarmenn aldrei
skotið úr byssu í útköllum.
„Við erum stolt-
ir af því að
okkur hefur
tekist að
leysa málin án þess að hleypa af, en
þó hefur oft ýmislegt gengið á. Já, það
hefur verið skotið á okkur.“ Hann er
tregur að nefna dæmi, en nefnir þó
að skotið hafi verið á lögreglumenn
í Daníelsslippnum þegar þeir rann-
sökuðu þar andlát - hugsanlegt morð
- tveggja manna árið 1985. „Það eru
engin nýleg dæmi en við höfum verið
að taka menn með vopn í gegnum
árin,“ segir hann. „Svona sérsveit
er þjálfuð til að beita sem minnstu
valdi.“
Við hvert vopnað útkall eru sér-
sveitarmennirnir að minnsta kosti
tveir, en í þeim stærstu öll sveit-
in. „Það ræðst af verkefnunum,“
segir Jón og bætir við að öll sveitin
sé vopnuð þegar hún sjái um öryggis-
gæslu fyrirmenna.
En sérsveitin
er ávallt við-
búin. „Við
mönnum
alltaf einn
viðbragðs-
bíl að lág-
marki á
höfuð-
borgar-
svæðinu
með vopnuðum sérsveitarmönnum;
alla daga ársins, allan sólarhringinn.“
Hvert skot yrði skoðað
Spurður hvaða ferli færi í gang, kæmi
til skotbardaga, svarar Jón: „Það er
alveg ljóst að slík valdbeiting yrði
rannsökuð. Það yrði þá væntanlega
á forræði ríkissaksóknara að stýra
þeirri rannsókn. Það færi fram lög-
reglurannsókn.“ Hann segir einnig að
boðið yrði upp á sálfræðiaðstoð fyrir
þá sérsveitarmenn sem lentu í slíku.
Gegn ribböldum og til varnar
ráðamönnum
Þrátt fyrir að sérsveitin hafi borið
vopn í 63 verkefnum féllu aðeins sex
þeirra að handtöku og gæslu sér-
staklega hættulegra einstaklinga, sé
rýnt í ársskýrsluna. Hins vegar lágu
vopnin í slíðrum sérsveitarmanna
í 57 skipti af þessum 63 þegar þeir
gættu öryggis erlendra fyrirmenna
og æðstu stjórnenda ríkisins. Meðal
þeirra voru einkaheimsóknir Noregs-
og Svíakonungs og Belgíudrottning-
ar. Einnig heimsóknir hershöfðingja
flughers Bandaríkjanna og ráðherra
sjóhersins, samkvæmt ársskýrslu
ríkislögreglustjóra.
Engin sérsveitarkona
Þessi öflugu skotvopn fara ekki
í hendur hverra sem það kjósa
innan lögreglunnar. Mikil þjálf-
un liggur að baki. Fyrst ljúka
menn námi úr Lögreglu-
skólanum og sækja svo
nýliðanámskeið fyrir
sérsveitina þar sem
grimmt er síað úr.
Til að mynda má
sjá í ársskýrslu
ríkislögreglu-
stjóra að 23
sóttu nýlið-
anámskeið
fyrir sérsveit-
ina árið 2000
en einungis
sex stóðust
Með Glock 17 og
MP5 byssur í slíðrumSérsveitarmenn eru bæði vopn-
aðir skamm-
byssum og hríð-
skotabyssum
í stærstu
útköllunum.
Báðar gerðirnar
eru mjög
vinsælar og
sambærilegar
þeim sem herir,
leyniþjónustur
og vopnuð
lögregla
vestrænna ríkja
nota. Vopnaðir
sérsveitarmenn
eru á vakt allan
sólarhringinn
en aldrei hefur
verið hleypt af í
útköllum.
Framhald á næstu opnu
12 fréttaskýring Helgin 23.-25. september 2011