Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 23.09.2011, Blaðsíða 14
Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Tækifærisdagar í verslun okkar. Splunkuný gerð af Siemens þvottavél á flottu Tækifærisverði. Tekur mest 7 kg, 1400 sn./mín. 15 mínútna hraðkerfi. WM 14Q360SN Tækifæri Tækifærisverð: 129.900 kr. stgr. (Fullt verð: 164.900 kr.) Ariel þvottaefni og Lenor mýkingarefni fylgja með öllum Siemens þvottavélum. 24. júlí 2009 Sérsveitin kölluð út vegna gruns um að maður hafi skotið af byssu vestur á Barðaströnd. Eftir að lögregla hafði ítrekað reynt að hringja í manninn – sem hún vissi að átti fjölda skotvopna og var ölvaður – kallaði hún út sérsveitina. Í dómi yfir manninum má sjá að um klukkan 02.48 eftir miðnætti lenti þyrla á flugvellinum við Hrísnes á Barðaströnd með sérsveitarmennina innanborðs. Þeir komu að bænum skömmu síðar og handtóku manninn. Ekki kemur fram í dómnum hve margir sérsveitarmenn fóru með þyrlunni eða hvernig þeir voru vopnaðir, en í ljós kom að maðurinn hafði ekki hleypt af skotum heldur brotið allt og bramlað innandyra með járnkarli. Fimm óhlaðnar byssur fundust þó í fórum hans, flestar í bílnum hans og skothylkin með: Hammerli-skammbyssa, Harrington-haglabyssa, Sako-riffill, Mossberg-haglabyssa og Varmint- riffill. Maðurinn fékk skilorðsbundinn dóm. 28. febrúar 2007 Sérsveitin gerir húsleit hjá manni um sex leytið að morgni vegna ítrekaðra hótana í garð fyrrum sambýliskonu sinnar. Við leitina fundust tveir rifflar í fataskáp í hjónaherbergi, annar af gerðinni Mossberg 1187 og hinn BRNO. Maðurinn vísaði einnig á Norconia-riffil í skotti bifreiðar sem stóð í bílskúrnum. Þar fundust einnig 27 cm langur hljóð- deyfir, án merkingar og leyfa, sem hægt var að skrúfa framan á riffilinn og 50 skot. Vinur mannsins kvaðst fyrir dómi hafa séð til sérsveitarmanna skríðandi í skurðum og vegköntum áður en hann var handtekinn. 23. júlí 2007 Þrír ungir menn handteknir af tveimur vopnuðum sér- sveitarmönnum seint um kvöld, þar sem þeir óku um Kópavog. Einn þeirra var grunaður um að hafa tvisvar hleypt af byssu í húsi í Kópavogi. Sérsveitarmennirnir mættu bifreiðinni, óku á eftir henni og gáfu stöðvunar- merki. Af upptökum úr Eyewitness-búnaði lögreglu- bifreiðarinnar sést hvar annar sérsveitar- maðurinn heldur skammbyssu í axlarhæð og beinir henni að fremri hluta bifreiðarinnar. Bílstjórinn kemur út úr bifreiðinni, er gert að leggjast í götuna og hann handjárnaður. Hinn sérsveitar- maðurinn sést á myndbandsupptökunni fara að hægri hlið bifreiðarinnar og hefur þá tekið skammbyssu sína úr slíðri og sést halda henni niður með hægri mjöðm. Hann opnar farþegahurð að aftan, hleypir einum ungu mannanna út og lætur hann leggjast á jörðina, án þess að beina skammbyssunni að honum, og um mínútu seinna lætur hann byssuna aftur í slíðrið. Svo sést sérsveitarmaður fara fram fyrir bifreiðina með skammbyssuna í axlarhæð og sá í farþegasætinu stígur út. Ungu mennirnir sóttu ís- lenska ríkið til saka og fengu tvö hundruð þúsund krónur hver og gjafsókn vegna óþarflega hörkulegrar handtöku. Heimildir: Héraðsdómar prófið. Jón segir að engri konu hafi hingað til tekist að komast í sérsveit lögreglunnar. „Það hafa nokkrar reynt, ekki þó margar.“ Eftir að nýliðanámskeiðinu lýkur tekur við árs undirbúningur og þjálfun fyrir sérsveitina. „Æfing- arnar reyna mjög á sálrænan styrk og gefur góða mynd af því hvernig þeir starfa undir álagi og í hópi,“ segir Jón aðspurður hvort sérstak- lega sé rýnt í andlegt ástand mann- anna. Toppforms er krafist. „Það er því mjög misjafnt hvað menn endast lengi í sveitinni, hvort það eru tvö ár eða tuttugu. Það er ekki hægt að sjá það fyrirfram. En upp- fylli menn ekki kröfurnar lengur, eins og varðandi líkamsþrek og annað slíkt, þá hætta þeir af sjálfs- dáðum - já, eða taka sig á.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is 80 70 60 50 40 30 20 10 0 2000** 2001** 2002* 2003 20004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 *Óljóst en 32 öryggisverkefni nefnd **Nefnt þar sem útbúnaður sérsveitarinnar kom að góðum notum. He im ild : Á rs sk ýr sl ur R ík is lö gr eg lu st jó ra Fjöldi vopnaðara verkefna sérsveitarinnar Glock 17 er byssan sem sér- sveitin ber alltaf á sér í vopnuðum útköllum. Þýska hríð- skotabyss- an sem sérsveitin notar. Hér með hljóð- deyfi. 11 17 32 52 38 36 42 53 48 68 63 14 fréttaskýring Helgin 23.-25. september 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.