Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Síða 18

Fréttatíminn - 23.09.2011, Síða 18
Þ að leynir sér ekki að leikararnir tveir ná vel saman og þau fara ekki leynt með að þau hafa gaman af því að vinna saman. „Já. Mér þykir rosalega vænt um þetta krútt,“ segir Ingvar. „Og mér líka. Um þig,“ segir Ágústa Eva. „Við lékum saman í Mýrinni og nú Borgríki og lendum væntanlega aftur saman í Grafarþögn fljótlega og síðan geta náttúrlega fleiri myndir bæst við,“ segir Ingvar. „Og svo var ég að eignast litla frænda hans,“ bætir Ágústa Eva við um leið og hún lítur til Ingvars og hlær, en kærasti hennar og barns- faðir, Jón Viðar Arnþórsson, er systursonur Ingvars. Jón Viðar er lögreglumaður og formaður Mjöln- is og sérþekking hans á báðum sviðum nýttist vel við gerð Borg- ríkis. „Hann lærði þetta allt þegar ég var að passa hann þegar hann var lítill,“ segir Ingvar hlæjandi um þær blönduðu bardagalistir sem Mjölnismenn sérhæfa sig í. Þrír turnar í borgríkinu Í Borgríki takast á „þrír turnar“, eins og Ágústa Eva orðar það. Það eru þá Ingvar og hans glæpalið, lög- reglan þar sem Ágústa Eva og Sig- urður Sigurjónsson eru í forgrunni og svo þriðji hópurinn sem er skip- aður glæpamönnum frá útlöndum. „Þetta eru þrjár einingar sem heyja stríð sín á milli. Bæði beint og óbeint,“ segir Ágústa Eva. Ágústa Eva: „Persónan mín heitir Andrea ... bara Gylfadóttir.“ Ingvar: „Kemur í ljós hvers dóttir hún er.“ Ágústa Eva: „Er það?“ Ingvar: „Nei, það kemur ekki í ljós.“ Ingvar: „Ég heiti svo Gunnar Gunnarsson og er með heildsölu- fyrirtækið GG Import-Export. Hann er glæpaforingi þarna þótt hann sé bara heiðvirður bissniss- maður í Reykjavík á yfirborðinu. En hann stjórnar einhverju svakalegu neðanjarðar-batteríi.“ Þegar Ingvar er spurður hvort hann hafi horft til einhverra fyrir- mynda við persónusköpun Gunn- ars hlær hann. „Á ég að vera að Æfa bæði hjá Mjölni og takast á í Borgríki Ágústa Eva Erlendsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson leika saman í spennumyndinni Borgríki sem Ólafur Jó- hannesson leikstýrir. Þar leikur Ágústa lögreglukonu en Ingvar glæpaforingja. Leiðir þeirra hafa áður legið saman á hvíta tjaldinu og munu gera það aftur. Þau léku feðginin Erlend og Evu Lind í Mýrinni og byrja væntanlega á fram- haldsmyndinni Grafarþögn í byrjun næsta árs. Þórarinn Þórarinsson fékk innsýn í nálgun þeirra á íslenska undir- heima í Borgríki þegar hann króaði þau af í Útvarpshúsinu. Ingvar eyðir þar drjúgum tíma í upptökum fyrir Útvarpsleik- húsið þar sem hann leikur sjálfan Egil Skallagrímsson. Framhald á næstu opnu Það er svo mikið púður í þessari mynd. Þetta er svo kröftugt efni sem við erum með og þetta er svo mikið alvöru og mikill frumkraftur í þessu. Leiðir Ingvars og Ágústu Evu liggja aftur saman í glæpa- mynd í Borgríki en þau hafa áður leikið feðgin í Mýrinni. Ljósmynd/Hari 18 viðtal Helgin 23.-25. september 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.