Fréttatíminn - 23.09.2011, Page 21
Ingvar undir. „Ég veit ekki hvað
það er en það er eins og myndavélin
elski á honum andlitið og það er eins
og hann þurfi ekkert að hafa fyrir
þessu.“
„Siggi Sigurjóns er líka frábær
og hann er að sýna á sér einhverja
alveg nýja hlið,“ segir Ágústa Eva.
„Já. Siggi sýnir þarna á sér enn eina
nýja og alveg ferska hlið,“ bætir
Ingvar við. „Mjög ferska og ... hann
er þarna ekki Siggi eins og maður
þekkir hann.“
„Maður þorir ekki að segja of
mikið,“ segir Ingvar. „Maður vill
halda þessu svolítið leyndu en hann
leikur þarna yfirmann í lögreglunni
sem er á gráu svæði. Það eru tals-
verð samskipti milli undirheimanna
og lögreglunnar. Þau eru alla vega
meiri en maður gerði ráð fyrir.“
Glæpaforingi og framleiðandi
Ingvar er ekki aðeins í burðarhlut-
verki í Borgríki því hann er einnig
framleiðandi. „Þetta er kannski ekki
alveg í fyrsta skipti sem ég tek þátt í
framleiðslu bíómyndar. Við í Vestur-
porti sem gerðum Börn og Foreldra
með Ragnari Bragasyni skrifuðum
þær og framleiddum saman. Ég
hafði unnið með Ólafi áður í tveimur
verkefnum og mér fannst það svo
skemmtilegt. Það er eitthvað svo
yndislega líflegt og sjálfsprottið við
aðferðir hans. Ég velti því fyrir mér
hvort ég gæti gert eitthvert gagn
sem framleiðandi og bauð Óla það.
Og hann tók því fegins hendi.“
Ingvar segist ekki hafa verið af-
skiptasamur framleiðandi á töku-
stöðum en hafi gefið öðrum þáttum
meiri gaum. „Nei, nei. Ég var ekkert
að skipta mér af. Ég kom aðallega
að því til dæmis að redda erlendum
leikurum; tæla þá hingað og safna
peningum til að borga þeim. Og svo
var ýmislegt annað sem ég gat haft
skoðun á.“
Ágústa Eva og Ingvar eru
hjartanlega sammála um hæfileika
og mannkosti Ólafs leikstjóra og
kunna því vel að vinna með honum.
„Honum liggur á og hann er afkasta-
mikill en það sem er svo frábært við
hann er að hann verður bara betri og
betri,“ segir Ingvar. „Það líður öllum
rosalega vel ... “ segir Ágústa Eva.
„Það er ofsalega gaman í vinnunni
með honum,“ bætir Ingvar við. „Og
ég held að fólk sem hefur fylgst með
honum sé sammála um að hann sé á
uppleið.“
Egill Skallagrímsson
og kornabarn
Ingvar er á kafi í vinnu þessi dægrin
og kemur víða við. „Vinnudagurinn
er mjög langur hjá mér þessa dag-
ana. Ég er mikið hérna í Útvarpinu
að leika í Egils sögu. Ég leik Egil
þannig að ég er í nánast hverri ein-
ustu senu. Síðan er ég að lesa allar
glæpasögur Arnaldar Indriðasonar
inn á hljóðbækur og svo æfum við
Listaverkið á kvöldin.“
Ingvar lék í Listaverkinu við
miklar vinsældir fyrir fjórtán árum
ásamt Baltasar Kormáki og Hilmi
Snæ. „Við höfum alltaf verið að tala
um það inn á milli að taka verkið
upp aftur vegna þess að við fengum
krítík frá sumum um að við værum
alveg í yngri kantinum fyrir hlut-
verkin. Nú er í það minnsta ekki
hægt að gagnrýna okkur fyrir það.“
Ágústa Eva er á mun rólegri
siglingu en Ingvar enda rétt tveir
mánuðir síðan hún eignaðist sitt
fyrsta barn. „Ég er nú bara aðallega
í fæðingarorlofi og reyni að vera sem
mest með litla stráknum mínum á
meðan tækifæri gefst. Ég skýst samt
aðeins í að lesa inn á teiknimyndir.“
Og þar með skilur leiðir. Ingvar
fer aftur í útvarpsstúdíóið til fundar
við kempuna Egil Skallagrímsson en
Ágústa Eva heim til frumburðarins.
Borgríki verður frumsýnd 14.
október.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Myndatexti
Ólafur Jó-
hannesson
hefur dælt út
kvikmyndum,
bæði heim-
ildarmyndum
og leiknum, á
undanförnum
árum en samt
fer hann sér
að engu óðs-
lega og vandar
vel til verka.
Ljósmynd/Hari.
Flýtir sér hægt en er alltaf að
Ólafur Jóhannesson, leikstjóri Borgríkis, hefur
verið með afkastameiri kvikmyndagerðarmönnum
á Íslandi á síðustu árum. Hann vakti fyrst athygli
með heimildarmyndum og reið á vaðið með Blind-
skeri: Sögu Bubba Morthens 2004. Ári síðar kom
svo heimildarmyndin Africa United sem fjallaði um
fótboltalið í þriðju deild sem einungis var skipað
útlendingum. Heimildarmyndin Act Normal er um
fyrsta búddamunkinn á Íslandi og ákvörðun hans
um að kasta kuflinum og ganga í hjónaband eftir
áralangt hreinlífi.
Árið 2008 kynnti Ólafur tælenska stelpustrákinn
Raquelu til sögunnar í The Amazing Truth About
Queen Raquela. Þar lagði hann upp með að gera
heimildarmynd en myndin breyttist í leikna mynd í
heimildarmyndastíl.
Þetta sama ár sendi Ólafur frá sér Stóra planið
með Eggerti Þorleifssyni og Pétri Jóhanni í aðalhlut-
verkum, dyggilega studdum af Ingvari E. Sigurðar-
syni og fleira góðu fólki. Myndin er glæpamynd i
léttum dúr og Ingvar leikur þar glæpaforingja eins og
í Borgríki. Þar eru krimmarnir hins vegar engir aular
heldur grjóthörð illmenni.
Borgríki er önnur bíómyndin sem Ólafur sýnir í
kvikmyndahúsum á þessu ári en í vor frumsýndi hann
Kurteist fólk, innansveitarkróniku, með Eggerti Þor-
leifssyni, Stefáni Karli, Hilmi Snæ, Ragnhildi Steinunni
og Halldóru Geirharðsdóttur í burðarhlutverkum.
Þrátt fyrir öra tíðni frumsýninga tekur Ólafur sér
góðan tíma í hverja mynd og flýtir sér hvergi. Kurteist
fólk var þannig um tvö ár í framleiðslu og um eitt og
hálft ár er liðið frá því að tökur á Borgríki hófust.
viðtal 21 Helgin 23.-25. september 2011