Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 22

Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 22
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nú er hægt að fá fetaost sem kubb í saltvatni. Gott er að nota ostinn í salöt, samlokur, grænmetisrétti og á pítsuna. Ljúengar uppskriftir með fetaosti er að nna á www.gottimatinn.is NÝJUNG FETAKU BBUR 2X100 Þ að er í það minnsta óhætt að segja að í dagskránni leynist eitthvað við allra hæfi,“ segir Hrönn Mar- inósdóttir, stjórnandi RIFF sem er nú haldin í áttunda sinn. „Fólk er líka farið að þekkja flokkana okkar ágætlega og ég held að það sé nú bara lúxusvandamál hjá fólki að velja það sem því líst best á,“ segir Hrönn um úrvalið á hátíðinni sem er slíkt að þeir allra hörðustu kom- ast vart yfir að sjá allt sem freistar. Vitranir heitir einn flokkurinn á RIFF og þar tefla nýir leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd. Í flokknum eru tólf myndir úr ýmsum áttum en þær keppa um Gyllta lundann, aðalverðlaun RIFF. „Lundinn hefur farið víða og Gior- gio Gosetti, nýr dagskrárstjóri, velur allar myndirnar í þennan keppnisflokk. Hann er gömul Lovísa Óladóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, og Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF. Bíó Paradís verður heimili hátíðarinnar og þar verða flestar spurt og svarað- sýningar hátíðarinnar auk auk ýmissa annarra viðburða. Lúxusvandi að þurfa að velja Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík (RIFF) hófst í gær, fimmtudag. Hátíðinni lýkur sunnudaginn 2. október og þessar tæpu tvær vikur er boðið upp á aragrúa kvikmynda af öllum stærðum og gerðum þannig að úrvalið er líklegt til að æra jafnvel yfir- vegaðasta kvikmyndaáhugafólk. Bíó Paradís við Hverfisgötu verður höfuðvígi hátíðarinnar en sýningar verða einnig í Háskólabíói, Iðnó og Norræna húsinu. Hátíðin er löngu búin að vekja á sér athygli út fyrir landsteinana og von er á um 500 manns hvaðanæva úr heiminum til þess ýmist að taka þátt eða fylgjast með. Eldfjall/Volcano Þessi mynd Rúnars Rúnarssonar hefur verið að gera það gott á hátíðum úti í heimi en verður nú loks sýnd á Íslandi. Þegar Hannes kemst á eftirlaun sýnir sig hvernig samskiptin á milli hans og fjölskyldunnar hafa hrörnað. Börnin vilja ekkert af honum vita og hafa aðeins samband við hann í gegnum móður sína. Þegar eiginkona hans veikist alvarlega áttar Hannes sig á því að hann verður að gera breytingar á lífi sínu. Faust Aleksandr Sokurov Faust Sokurovs er ekki aðlögun á harm- leik Goethes í hefðbundnum skilningi, heldur túlkun á því sem má lesa milli línanna. Hvers konar heimur skapar risavaxnar hugmyndir? Hvernig er hann á litinn, hvernig lyktar hann? Þetta er fjórða myndin í seríu Sokurovs um vald- spillingu. Hlaut Gullljónið í Feneyjum. Grænn sjóræningi: Saga Pauls Watson/ Eco Pirate: The Story of Paul Watson Paul Watson var á sínum tíma óvinur Íslands númer eitt eftir að hvalbát- unum var sökkt í Reykjavíkurhöfn. Hann hefur verið á siglingu um heims- höfin í meira en 40 ár í þeim tilgangi að bjarga hvölum. Líf og sannfæring þessa alræmda aðgerðasinna, sem þekkir vel til hafsvæðisins í kringum Ís- land, er aðaluppistaðan í frásögn Trish Dolmans um upphaf umhverfishreyf- inga nútímans. Saga Thors/Thor’s Saga Ulla Boje Rasmussen Dramatísk saga Thorsaranna. Thor Jensen var danskur munaðarleysingi sem kom hingað til lands 14 ára að aldri, en varð brátt einn efnaðasti maðurinn á Íslandi. Björgólfur Thor Björgólfsson er langafabarn Thors og lék lykilhlutverk í uppgangi og hruni íslenska efnahagskerfisins. Red State Kevin Smith Þrír unglingsstrákar svara auglýsingu frá eldri konu í leit að drengjum sem eru til í að stunda með henni hópkynlíf. Kynórar piltanna verða þó fljótlega að martröð þegar í ljós kemur að um er að ræða brellu sem íhaldssamur bókstafs- trúarsöfnuður stendur fyrir. kempa í þessum bransa og annál- aður fyrir smekkvísi þannig að það verður gaman að sjá hvernig val hans leggst í íslenska áhorfendur,“ segir Hrönn. Í flokknum Kastljósið er boðið upp á myndir eftir kunna leikstjóra og myndir sem hafa sópað að sér verðlaunum á viðurkenndum al- þjóðlegum hátíðum undanfarið. Flokkinn Fyrir opnu hafi fylla myndir sem notið hafa sérstakrar athygli á erlendum hátíðum og ganga má að því sem gefnu að þar megi finna verk margra færustu og virtustu kvikmyndagerðarmanna heims hverju sinni. Venju sam- kvæmt er síðan sérstakur flokkur helgaður heimildarmyndum og í flokknum Nýr heimur er myndum sem fjalla um umhverfismál á einn eða annan hátt gefinn gaumur. Flokkurinn Betri heimur beinir sjónum að mannréttindamálum og myndum sem taka á þeim. Þá er sérstakur flokkur fyrir tónlistar- myndir, upprennandi meistara, barna- og unglingamyndir og ýmislegt fleira auk þess sem ís- lenskar kvikmyndir eru í brenni- depli í sérflokki. Meðal þess sem verður í boði í flokki barnamynda þetta árið er hin sígilda japanska teiknimynd Tonari no Totoro, eða Nágranni minn Totoro, eftir Hayao Miya- zaki. Í myndinni komast tvær systur að því að í skóginum í nágrenni við nýja heimilið þeirra búa ýmsar kynjaverur, þar á meðal Totoro, sem þær lenda í ævintýr- um með. Norska myndin Keepern til Liverpool, Markmaðurinn hjá Liverpool, er sýnd í sama flokki en þar segir frá hinum 12 ára gamla Jo sem forðast hugsanlegar kær- ustur, mæður og þjálfara á meðan hann leitar að sjaldgæfri fótbolta- mynd sem hann vonar að leysi öll hans vandamál. „Við erum svo með fullt af nýjum myndum sem eru á hátíðarrúnti og koma hingað beint frá til dæmis kvikmyndahátíðunum í Toronto og Feneyjum. Fókusinn á hátíðinni er dálítið á Rúmeníu og við sýnum áhugaverðar myndir þaðan. Flokk- ur miðnæturmyndanna hefur verið einn sá vinsælasti hjá okkur og þar verða nokkrar spennandi myndir.“ Aðalmarkmið miðnæturdag- skrárinnar er að gera tilraun til að varpa ljósi á dekkri hliðar kvik- myndaheimsins með því að sýna ýmislegt skrýtið og skuggalegt; B-myndir sem bragð er að og kvik- myndir sem hafa á einn eða annan hátt orðið að költfyrirbæri. Red State eftir Kevin Smith (Clerks, Mallrats, Dogma, Jay and Silent Bob Strike Back) er í þessum hópi og 30. september mun Smith ræða myndina við áhorfendur í gegnum gervihnött á sérstakri sýningu í Háskólabíói. „Honum þótti það nú ekkert vandamál,“ segir Hrönn aðspurð hvort erfitt hefði verið að fá Smith til að ávarpa salinn í Reykjavík. Auk fjölda kvikmyndasýninga er margt annað í gangi á RIFF og boðið upp á ýmsa sérviðburði eins og til dæmis Sundbíóið, sem er orðið ómissandi þáttur í hugum margra, en að þessu sinni verður boðið upp á The NeverEnding Story í Laugardalslauginni. Þá má ekki gleyma heimabíóinu þar sem Hrafn Gunnlaugsson, Ásgeir Kolbeins og systkinin Úlfhildur og Hugleikur Dagsbörn bjóða gestum heim að sjá uppáhaldsmyndirnar þeirra. Eru þá enn ótalin málþing, kvikmyndasmiðja og tónleikar í tengslum við RIFF. Einnig er rétt að geta þess að RIFF og Bíó Para- dís munu í sameiningu bjóða at- vinnulausum frítt á allar sýningar hátíðarinnar sem hefjast kl. 14. Dagskrá RIFF og allar frekari upplýsingar má finna á vefnum www.riff.is Við erum svo með fullt af nýjum myndum sem eru á hátíðarrúnti og koma hingað beint frá til dæmis kvikmyndahá- tíðunum í Toronto og Feneyjum. 22 bíó Helgin 23.-25. september 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.