Fréttatíminn - 23.09.2011, Page 26
Nú situr Heinz
Á TOPPNUM
Kristinn Steindórsson og Kjartan Henry
Finnbogason eru tveir af öflugustu fram-
herjum Pepsi-deildarinnar. Þeir eru báðir
með lausan samning í haust.
Á hverju einasta hausti fer hring-
ekja af stað – kennd við knatt-
spyrnumenn. Eftir að tímabili lýkur
horfa félög til þess að styrkja leik-
mannahópa sína og leikmenn líta í
kringum sig eftir betra liði og jafnvel
meiri peningum. Óhætt er að segja
að það sé feitan gölt að flá á leik-
mannamarkaðnum þetta haustið því
fjölmargir toppleikmenn eru með
lausa samninga.
Feitustu bitarnir
Nokkrir af bestri leikmönnum deild-
arinnar eru með lausa samninga í
haust. Þar ber helst að nefna Kristin
Steindórsson, framherja Breiða-
bliks, KR-ingana Baldur Sigurðsson
og Kjartan Henry Finnbogason og
Stjörnumanninn Daníel Laxdal. Vit-
að er að lið á borð við FH, Breiðablik
og KR hafa mikinn áhuga á Daníel,
sem hefur átt frábært tímabil, en
eftir því sem næst verður komist
mun hann verða áfram í Stjörnunni
ef hann kemst ekki út. Það sama
gildir um Baldur og Kjartan Henry.
Þeir stefna út en verða í KR ef það
gengur ekki. Öllu meiri vafi leikur á
framtíð Kristins Steindórssonar hjá
Breiðabliki. Hann er yngri en Daní-
el, Baldur og Kjartan Henry og því
á enn við um hann ákvæðið um 330
þúsund evra, rúmlega fimmtíu millj-
óna, uppeldisbætur. Erfitt verður því
fyrir hann að komast út vegna verð-
miðans en eftir því sem Fréttatím-
inn kemst næst er alls óvíst að hann
spili með Breiðabliki á næsta tíma-
bili ef hann verður á Íslandi. Aðrir
flottir leikmenn með
lausan samning eru
til að mynda Björn
Daníel Sverrisson
hjá FH og fram-
herjinn Albert
Ingason hjá
Fylki en allt
bendir til þess að þeir verði báðir
áfram hjá sínum liðum.
Áhugaverðir leikmenn
FH-ingarnir Atli Guðnason, Ólafur
Páll Snorrason, Pétur Viðarsson og
Viktor Örn Guðmundsson eru allir
með lausa samninga. Allt bendir til
þess að Atli, Pétur og Viktor Örn
verði áfram hjá FH en öllu óljós-
ara er með Ólaf Pál sem gæti
jafnvel flutt til útlanda. Miðju-
maðurinn öflugi, Halldór
Hermann Jónsson hjá Fram,
er með lausan samning en
Toppleikmenn með lausa samninga
Nú þegar líður að lokum Íslandsmótsins í knattspyrnu fer í
hönd sá tími ársins þegar leikmenn hugsa sér til hreyfings.
Fréttatíminn kannaði hvaða leikmenn í Pepsi-deildinni eru með
lausa samninga nú eftir tímabil.
26 fótbolti Helgin 23.-25. september 2011