Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 23.09.2011, Blaðsíða 28
Þ eir sem fylgjast reglulega með þessum pistlum – og væntanlega leggja orðrétt á minnið og lesa upphátt fyrir blindar ömmur sínar – vita að ég fór til tannlækn- is í Malí á dögunum. Það fyrsta sem hann sagði, þegar hann leit upp í kjaftinn á mér, var: „Hefur þú nokkuð verið að borða, ehm, fiskbein?“ Tannlæknirinn minn á Selfossi gerir þetta líka; spyr mig svara á meðan munnurinn er augljósa upptekinn við annað. „Hvað er að frétta af mömmu þinni? Þú ert alltaf í námi, ha? Hvað segirðu, geturðu ekki talað með fimm metra munnvatnsryksugu undir tungunni? Jú, sjáðu, mig langaði alltaf að verða rakari ...“ Ég svaraði með kokhljóðum sem áttu nokkurn veginn að þýða: „Ég borða fiskbein í öll mál! Hrísgrjónasalarnir sjóða allt í einum potti þannig að matnum fylgja bein, sama hvort maður pantar fisk eða ekki.“ Sem víkur talinu að efni þessa pistils: Matseld Afríkumanna. Minn eini líkamlegi undirbúningur fyrir hálfs árs hjólreiðaferð var að bæta á mig nokkrum aukakílóum. Á tveimur mánuðum varð sú vinna að engu. Síðan þá hef ég þurft að hafa mig allan við til að verða ekki að engu. Hjólið sex tíma á dag, borðið einungis hrísgrjón, brauð, hnetur og ávexti með reglulegri matareitrun og þið þekkið þetta líkamsástand. Í heimshluta þar sem flestir þekkja skort, borðar fólk til að lifa af. Fyrir matseljur á götum úti skiptir mestu að bjóða upp á mikið fyrir lítið; skál af hrísgrjónum með hnetu- sósu (uppáhaldið mitt) kostar fjörutíu krónur. Réttir samanstanda af fáum, innlendum hrá- efnum. Einfalt en einhæft mataræði. Þegar ég þarf að byrja daginn á neskaffi og hrísgrjónum með fisksoði sakna ég Eþíópíu. Landið sem flestir tengja við hungursneyð stendur, ótrúlegt en satt, fremst Afríkuríkja í matargerð! Hvarvetna á Vesturlöndum má finna eþíópíska veitingastaði, nú nýjast á Flúðum í Hrunamannahreppi, þótt réttir séu framreiddir öðruvísi – söluvænlegri – en í upprunalandinu. Í fyrra fór ég á einn við Washington-torg á Manhattan, stuttu eftir að hafa dvalið tvo mánuði í Eþíópíu. Kærastan hafði aldrei smakkað eþíóp- ískan mat og það verður að viðurkennast að ég var spenntur að fá loksins tækifæri til að sýna mig fyrir henni sem hinn veraldarvani, heimsborgaralegi kærasti. „Eþíópískur matur er betri en arabískur, án þess að skáka indverskum,“ get ég ímyndað mér að ég hafi sagt spekingslega. „En taktu með nesti ef þú þarft að skreppa til Súdans eða Sómalíu.“ Á veitingastaðnum var okkur vísað til borðs og afhentur matseðill sem ég skilaði jafnskjótt og ég fékk hann í hendur. „Við ætlum að fá Beijenette, takk!“ Beijenette er vinsælasti rétturinn í Eþíópíu, borinn fram á bakka með injera-brauði og mörgum litlum grænmetisréttum. Þjónninn – eþíópískur að uppruna en að öðru leyti Bandaríkjamaður – leit á mig spyrj- andi. Ég endurtók nafnið (sem hafði tekið mánuð að læra utanbókar) og tók meira að segja upp þann órökrétta sið að hækka róm- inn þegar orð stranda á tungumálaörðugleik- um; „bæjónetté, beijónéjétte, barabapabbi!!!“ Á meðan þessar talæfingar fóru fram kall- aði þjónninn eftir aðstoð. Kollegi hans vissi heldur ekki hvern fjandann ég væri að fara og saman horfðu þeir á mig ráðvilltir. Kærast- an stakk upp á að ég pantaði bara eitthvað annað, helst eitthvað sem væri til. „Ekki til að tala um – þessi réttur er til!“ „Bíddu,“ sagði þjónninn loksins, hvarf inn í eldhús og kom aftur að vörmu spori. „Herra, þú meinar þetta,“ sagði hann stoltur og beindi vísifingrinum efst á matseðilinn. „Vegetable Combo Mix.“ Akkúrat. Einn Vegetable Combo Mix, takk. Bókaskápurinn í bakpokanum Sagt er að koma nýlenduþjóðanna til Afríku sé næstversti atburður í sögu álfunnar. Sá versti: Brottför þeirra. Nýlenduherrarnir dvöldu nógu lengi til að brjóta niður það afr- íska samfélag sem fyrir var en fóru án þess að finna nýtt kerfi. Martin Meredith rekur sögu Afríku frá sjálfstæði til nútíma í The State of Africa með slíkum hætti að bókin er skyldulesning fyrir þá sem vilja skilja pólitík álfunnar. Þegar fimmtíu nýmynduð ríki, með 2.000 ólík tungumál, enga vestræna lýðræðishefð og stundum of fáa háskólamenn til að fylla heila ríkisstjórn, fá skyndilegt sjálfstæði getur ýmislegt gerst, líkt og Richard Dow- dean blaðamaður hefur upplifað á löngum ferli sínum. Í bókinni Africa: Altered states, ordinary miracles rekur hann stórviðburði, samfélagsgerð og framtíðarhorfur álfunnar með persónulegum og lifandi hætti. Áhugaverður er kafli Dowdeans um inn- reið Kínverja, nýju nýlenduherranna eins og The Economist hefur kallað síaukna ásókn þeirra í hráefni og olíu. Um þessar mundir stuðla viðskiptin að undraverðum hagvexti víða sunnan Sahara. Vegna þess að Kínverjar eiga sér litla sögu í álfunni eru Afríkumenn jafnan jákvæðari í garð þeirra en gömlu nýlenduþjóðanna. Skilaboðin til Vesturlanda eru: Við dílum við Kína núna en haldið endi- lega áfram þróunaraðstoð ... Þróunaraðstoð sem hefur reynst álfunni bjarnargreiði, segir Dambisa Moyo, höf- undur Dead Aid, þar sem stungið er upp á að Vesturlönd „hringi í Afríkuríki, eitt af öðru, og tilkynni að þróunaraðstoð verði hætt innan fimm ára.“ Vesturlönd ættu í staðinn að aflétta tollum og Afríkuríki að opna markaði og fjármagna ríkisútgjöld með skuldabréfum. Stutt bók, ögrandi og auðlæsileg en líður fyrir dogmatíska markaðstrú höfundar og einfaldaðan málflutning. William Easterly er á sama meiði í bókinni The White Man´s Burden þar sem hann færir snilldarleg rök fyrir breyttri nálgun í þróun- araðstoð. Með því að fókusera um of á Stór Plön og patentaðferðir, sem falla vel í kramið hjá kjósendum og styrktaraðilum, hafa Vesturlönd brugðist fátækum og aðstoðin oft snúist upp í andhverfu sína. Höfundur tætir í sig bók Jefferys Sacks, The End of Poverty, og tekst með hnyttni og góðum dæmum að gera hagfræðirit að skemmtilesningu. Önnur lipurlega skrifuð og upplýsandi bók um Afríku er The Shackled Continent eftir Robert Guest, fyrrum ritstjóra Afríkumála hjá The Economist. Guest leitast við að svara spurningunni „hvers vegna er Afríka svona fátæk?“ með mörgum sértækum dæmum sem á endanum gefa góða heildarmynd. Þegar kemur að skáldsögum er Kongó vinsælt sögusvið. Land á stærð við Vestur- Evrópu með efnahag á stærð við Jamaíku er í hugum fólks svartasta Afríka, sveipað hálf- gerðri dulúð. Ímyndin lifir með skáldsögunni Innstu myrkur eftir Joseph Conrad sem endar á orðunum „The Horror! The Horror!“ og gerð var fleyg af Marlon Brando í kvikmynd- inni Apocalypse Now sem byggist á bókinni þótt sögusviði sé breytt. Annað stórvirki er The Poisonwood Bible eftir Barböru Kingsolver, skáldsaga um kristniboða í frumskógum Kongós. Höfundur skapar gríðarlega sterkar kvenpersónur og lýsingar á lifnaðarháttum ríma vel við það sem ég hef upplifað á sambærilegum hitabelt- isstöðum. Svo má ekki gleyma öllum blaðamönn- unum sem hafa ferðast gegnum Kongó. Henry Morton Stanley ruddi veginn, fyrstur til að fylgja Kongó-ánni endilangri. Fyrir nokkrum árum fetaði Tim Butcher, einnig á vegum Daily Telegraph, í spor Stanleys og ritaði eina vinsælustu afrísku ferðasöguna, Blood River. Að ógleymdum Tinna í Kongó, sem mér hefur reyndar alltaf fundist frekar slappur blaðamaður. Á ferðalögum sínum virðist hann aldrei skrifa neitt niður og í öllum 24 bókunum kemur einungis tvisvar fyrir að Tinni fái birta eftir sig frétt. Annars er gaman að segja frá því að ég las Tinna í Kongó í franska menningarsetrinu hér í Burkina Faso, á sama tíma og pólitískt rétt- hugsandi bóksölum á Vesturlöndum þykir bókina ósæmandi. Egill Bjarnason, ljósmyndari, landkönn- uður og bóksalasonur frá Selfossi, heldur hér áfram að segja lesendum Fréttatímans frá ævintýrum sínum í Afríku en þar hefur hann verið á ferð fyrir eigin vélarafli undan- farna mánuði. Þegar hér er komið sögu eru kílómetr- arnir á hjólinu að nálgast sex þúsund. Bókaskápurinn í bakpokanum Freetown Íbúðahverfi og knattspyrnuvöllur í höfuðborg Sierra Leone. Slappað af með Mandela. Sjálfsævisaga Nelsons Mandela, A long walk to freedom, á sér enga hliðstæðu. 28 reisubókarbrot Helgin 23.-25. september 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.