Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Page 34

Fréttatíminn - 23.09.2011, Page 34
Aðeins 4,4 lítrar á hundraðið ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 0 -2 3 4 2 Kia cee’d LX beinskiptur, 1.6 dísil 115 hö. 35.490 kr. Afborgun aðeins á mánuði* 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook * Afborgun á mánuði miðast við 30% útborgun eða uppítökubíl og verðtryggt lán í íslenskum krónum til 84 mánaða, árleg hlutfallstala kostnaðar 10,1%. Miðað við bíl sem kostar 3.090.000 kr. Aukabúnaður á mynd eru álfelgur. Kia cee´d kostar frá 2.890.000 kr. www.kia.is – og sjö ára ábyrgð! Maður frá vörslusviptingarfyrir- tæki kemur heim til þín til að taka bílinn þinn. Hvernig bregstu við? „Smári myndi kalla: „Fríða!“ mjög hátt,“ segir Jóhann. „Hún er sem sagt konan hans. Hann hefur enga stjórn á heimilinu né neinu öðru sem hann gerir. Ég sjálfur myndi örugglega kalla: „Guðrún!“ á konuna mína,“ segir Jóhann um sjálfan sig og aulann Smára sem hann leikur í Alvöru mönnum. „Í fyrsta lagi myndi ég aldrei nokkurn tíma lenda í þessu vegna þess að ég er með eindæm- um skynsam- ur maður,“ segir Jóhann- e s H a u k- ur, „en ég hugsa að ég myndi bara taka þessu með stóískri ró og settla málið eftir viðeigandi leiðum. Hákon myndi sennilega pakka manninum saman og segja honum að hypja sig í burtu. Og hann væri alveg líklegur til að lenda í vörslu- sviptingu.“ Heldur syrtir í álinn hjá Smára í næstu þraut en þar stoðar lítt að kalla eiginkonuna til, auk þess sem aðstæðurnar eiga hvorki við persónuna né leikarann: Þú ferð á blint stefnumót og Ásdís Rán mætir. Hver verða viðbrögð þín? „Ég að fara á blint stefnumót? Það hefði verið eitthvað skrautlegt sko,“ segir Jóhann. „Ég myndi bara vera voða kurteis, held ég, og klára þetta stefnumót; sama hver kæmi. Hún er náttúrlega ofsalega huggu- leg og allt það en ég held hún sé ekki alveg beint mín týpa. Ég hefði farið í svolitla rannsóknarvinnu þarna af því að maður þekkir kar- akterinn, en þekkir maður eitthvað manneskjuna sjálfa? Þannig að það væri gaman að sjá hverju maður gæti bryddað upp á í samtölum og svona. Það væri svolítið skemmti- legt að sjá hvaða kona er á bak við þennan risastóra persónu- leika sem Ásdís Rán er. Smári myndi hins vegar örugglega pissa aðeins á sig. Pínulítið. Ég held að hann myndi hvorki leggja í að ræða við svona glæsilega konu né svona stóran karakter. Hann myndi örugglega afsaka sig sem fyrst og reyna að stinga af – en borga þó reikninginn.“ Jóhannes Hauk- ur og Hákon eru hins vegar ekki í mikl- um vand- ræðum þarna. „Ég myndi fyrst spyrja hana hvort hann Garðar væri örugglega ekki lengur í spilinu. Ganga frá öllum lausum endum og svo myndi ég bara kynnast henni því ég held hún sé mjög áhugaverð manneskja. Og ég myndi alveg vilja fylgja því eftir, eins og maður segir. Hákon myndi líka gera þetta nema honum væri slétt sama um það hvort Garðar væri inni í mynd- inni eða ekki.“ Jóhann og Jóhannes hafa báðir skemmt sér konunglega við æf- ingar á Alvöru mönnum og Jóhann telur víst að góð stemning í hópi fjórmenning- anna skili sér út í sal. Hvorugur fer heldur leynt með aðdáun sína á aldurs- for- setan- um, Agli Ólafssyni, sem stígur nú á leiksvið eftir langt hlé. „Þetta er bara alger snilld. Það hefur náttúrlega verið nuddað sam- an egóum eins og gerist á æfingar- tímabilum. Menn aðeins að stíga á tær og þá er talað svolítið upp- hátt og svona,“ segir Jóhann sem er ekki aðeins upptekinn við að vera auli á sviði Austurbæjar þessa dagana. Spurningaþátturinn hans, Ha?, hefur göngu sína á ný á Skjá einum í kvöld, föstudagskvöld. „Við náðum þó alveg rosalega vel saman og ég held að það sé ástæðan fyr- ir því að sýningin fær svona góð- ar viðtökur. Og talandi um stóra persónuleika þá er magnað að fá Egil Ólafsson inn í þennan hóp. Ég hef dýrkað hann frá því ég var smá pjakkur og svo er maður allt í einu að vinna með átrúnaðargoðinu sínu. Hann er einn af fáum sem ég hef unnið með og hef virkilega dáð. Hann er bara yndislegur í alla staði og small alveg inn í hópinn.“ Jóhannes er ekki síður ánægður með leikfélaga sína. „Þetta er búið að vera merkilega ljúft og áreynslu- laust. Þessir strákar eru allir mjög gefandi listamenn. Eða ... þetta eru nú karlar og ég er yngstur í hópn- um og hef alveg fengið að heyra það. En það eru forréttindi að fá að starfa með þeim og goð- sögninni Agli Ólafssyni. Það er voðalega gaman að hafa kynnst honum og hans persónulegu hlið.“ toti@frettatiminn.is  Alvöru menn HittA Ásdísi rÁn Annar pissar á sig en hinn gerir sig breiðan Gamanleikurinn Alvöru menn var frumsýndur í Austurbæ um síðustu helgi. Þar leika Egill Ólafsson, Kjartan Guðjónsson, Jóhann G. Jóhannsson og Jóhannes Haukur Jóhannesson fjóra ólíka karlmenn sem þurfa að kljást hver við annan og sjálfa sig um leið. Fréttatíminn fékk Jóhann, sem leikur aulann Smára, og Jóhannes Hauk, sem leikur töffarann Hákon, til að takast á við ímyndaðar aðstæður og segja frá því hvernig persónur þeirra annars vegar og síðan þeir sjálfir hins vegar myndu leysa úr málunum. 34 leikhús Helgin 23.-25. september 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.