Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 50
ur setti þær. Í góðum og sendnum jarðvegi fjölga þær
sér og breiðast út. Þá má skipta þeim og setja niður á
nýjum stöðum. Kíkið á hvað er til í garðplöntustöðv-
unum og pælið í tegundunum.
Nýlega hef ég verið að fikta við að setja niður lyng-
rósir á haustin. Ég sá í vor að þeim hefur reitt vel af
þrátt fyrir kuldann og þurrkinn í vor. Ég hafði reyndar
ekki góða reynslu af lyngrósum fyrr á árum. Þær
vildu þorna upp og visna. Eftir að trén í landinu kom-
ust yfir 10 m. hæð og skjól ríkir á öllum áttum hefur
aðstaðan gjörbreyst. Það er líka eins og rakastigið
verði jafnara í kringum aspirnar, runnana og lauftrén
sem nú mynda skjólveggina. Við skógarstígana þar
sem sólin nær að skína nokkra tíma á dag bresta lyng-
rósirnar í blóma um leið og hlýnar í lofti. Skjólið er
lykilatriði og næðingur má ekki gjósa upp undir þær!
Sígræn blöðin þorna fljótt upp. Jarðvegurinn verður
líka að vera rakur og sæmilega frjór. Vel fer á að
planta vorprúðum skógarsnotrum í kringum þær en
hnýði þeirra eru einmitt til sölu nú. Lengi héldu menn
að jarðvegur hér á landi hentaði ekki lyngrósum.
Hann væri yfirleitt ekki nægilega súr því erlendis er
gengið út frá því að pH-stig yrði að vera um 5,5 sem er
mun lægra en hér gerist. Það reynist ekki rétt, a.m.k
ekki þar sem nægilegt er af gosefnum í jarðveginum
og járn aðgengilegt. Grein um þetta eftir Ólaf S. Njáls-
son í Nátthaga birtist í Garðyrkjuritinu 2010 og skýrir
þetta vel. Reynsla mín staðfestir þetta fyrir þau yrki
sem ég hef nú prófað. Líklega eru nú til lyngrósir í all-
mörgum garðplöntustöðvum og tilvalið að prófa þær
Á göngu um skógin í vor hitti ég fyrir amerísku
skógarþristina sem ég setti niður fyrir nokkrum
árum. Það er annars vegar sá stóri hvíti sem ber
nafnið skógarþristur, Trillium grandiflora, sem þekur
laufskógana í norðurríkjum Bandaríkja og Kanada á
vorin og hins vegar sá dularfulli og dimmpurpura-
rauði Trillium erectum sem indíánar Norður-Amer-
íku höfðu dálæti á til lækninga og er gjarnan köll-
uð squaw-root eða ,,konurót“ á þar í landi. Ég veit
ekki um íslenskt nafn á henni en purpuraþristur
væri lýsandi og grasafræðilega í lagi er mér sagt af
fróðum. Báðar tegundirnar eru að búa um sig hjá
mér í skógarjarðveginum sem er að myndast en þær
þurfa fremur næringarríkan jarðveg og hæfilega
rakan til að þrífast vel, sérstaklega sá síðarnefndi. Sá
dumbrauði er í dimmasta hluta skógarreitsins. Þar
er rakinn og frjósemin er meiri. Pagóðuliljurnar eða
garðskógarliljurnar, Erythronium ´Pagoda ,́ eru ekki
síður fallegar og þrífast afar vel hér á landi og fjölga
sér hratt og örugglega í sæmilegum jarðvegi. Þær eru
til sölu nú og skila sér strax á næsta sumri og æ síðan.
Kíkið á þetta á næstu dögum.
46 garðar unnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands Helgin 23.-25. september 2011
Nýttu haustið
til að fegra garðinn
Vörur okkar eru sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður.
Fáðu tilboð og gerðu verðsamanburð!
b
m
va
ll
a
.is
Nú er tíminn til að undirbúa garðinn fyrir næsta sumar.
Við bjóðum úrval af hellum og hleðslusteinum fyrir
garðinn eða innkeyrsluna og ýmiskonar garðeiningar
eins og bekki, blómaker, brýr, sorptunnuskýli og fleira.
Skoðaðu bmvalla.is eða komdu í heimsókn til okkar og
fáðu hugmyndir að lausnum og útfærslum. Við bjóðum
fría ráðgjöf landslagsarkitekts.
Sími: 412 5050
Fax: 412 5001
sala@bmvalla.is
BM Vallá ehf.
Bíldshöfða 7
110 Reykjavík
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
12
5
52
Júlíus 864-3313
Kjartan 864-3312
akraborg@simnet.is
Nú er rétti tíminn til að panta
borun fyrir veturinn.
Við erum staðsettir á Akranesi
en vinnum um allt land.
Við borum
eftir heitu og
köldu vatni
Sumarhúsaeigendur
og landeigendur
L íklega er engin fjárfesting í garð-plöntum betri en kaup á haust-laukum. Ávöxtunin felst í gleðinni
að sjá litfagrar plöntur snemma á vorin
áður en annar gróður tekur við sér. Þar
er úr mörgu að velja sem gleður augað.
Vetrargosar gægjast upp úr snjónum
á útmánuðum, krókusar og dvergír-
isar og ýmsar smáliljur, snæstjörnur
og stjörnuliljur fylgja í kjölfarið í apríl
og fyrri hluta maí. Síðar í maí koma há-
tíðarliljurnar - páskaliljur, pálmasunnu-
liljur og hvítasunnuliljur og standa oft
lengi fram eftir júní. Smáu febrúarlilj-
urnar sem seldar eru í blómstrandi til
borðskreytinga snemma á vorin eru
líka þakklátar fyrir að komast í jörð
strax eftir blómgunina. Engin ástæða til
að henda þeim þegar þær fölna á borð-
stofuborðinu. Þær koma þá aftur upp að
vori hvort sem er í steinhæðinni í garð-
inum eða úti í skógi í sumarlandinu.
Úrvalið af haustlaukum er gífurlegt.
Þetta kemur allt upp ár eftir ár og veitir
ómælda gleði þegar maður hittir þær
fyrir og var búinn að gleyma hvar mað-
Trillium erectum - konurót frá indíánum Ameríku.
Haustlaukar Litfagrar pLöntur auka gLeði vorsins
Lyngrósir og laukar í skóginum
... sá dularfulli og
dimmpurpurarauði
Trillium erectum
sem indíánar Norð-
ur-Ameríku höfðu
dálæti á til lækninga
og er gjarnan kölluð
squaw-root eða
,,konurót“ á þar í
landi.
Þakklátar og árvissar páskaliljur.
Vilhjálmur lúðvíksson