Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.09.2011, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 23.09.2011, Blaðsíða 58
Helgin 23.-25. september 201154 tíska Verðlagningin mikla Það er mér minnisstætt þegar ég keypti mér rándýra skó í fyrsta skipti. Það var vetur- inn 2008. Okkur vinkonurnar hafði dreymt um þessa skó alveg síðan þeir komu fyrst í verslanir en verðið hélt okkur frá. Það var svo löngu seinna sem við ákváðum allar að kaupa sitt parið hver. Þeir kostuðu tólf þúsund krónur. Við vinkonurnar fórum að rifja þetta upp um daginn þegar ein hafði mætt í splunkunýjum skóm sem kostuðu rétt rúmlega þrettán þúsund kall. „Vá, það er ekki mikið fyrir skó,“ sögðum við hinar og dáðumst að þessum kaupum sem vinkona okkar hafði gert. Þar byrjaði umræðan um verðmuninn á milli ára. Það greip athygli mína þegar ein af vinkonum mínum sagðist vera hætt að styrkja verslanir hérlendis. Hún kaupir allt sitt dót af sömu heildverslunum erlendis og búðir hérna heima versla við. Draumaskóna fær hún á helmingsafslætti eða meira. Við eigum auð- vitað að nýta okkur betur þessa tækni; sitja heima fyrir framan tölvuna og kaupa sömu vörur og við gerum á Laugaveginum. Og fá góðan afslátt í þokkabót. tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar 5 dagar dress Elskar stórar og hangandi flíkur Föstudagur: Skór: Topman Buxur: Tiger of Sweeden Skyrta: H&M Slaufa: Kormákur og Skjöldur Jakki: Filippa K Helgi Ómarsson er tuttugu ára ljósmyndari sem hefur áhuga á öllu sem tengist listum. Hann hefur gaman af fimleikum og líkar vel að eiga stundir með góðu fólki. „Ég myndi segja að stíllinn minn væri mjög frjálslegur. Ég elska sérstaklega stórar og hangandi flíkur sem fara manni vel. Ég geng aðeins í því sem mér finnst flott og kaupi það sem ég veit að ég á eftir að nota. Ég kaupi fötin mín helst í Topman, Weekday, Urban Outfitters, Bruuns Bazaar, Mads Nørgaard, Cheap Monday og á alveg ótrúlega sterkt samband við verslunina All Saints. Ég elska þá búð og mun alltaf gera. Svo er hönnuðurinn Cedric Jacquemyn í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég gerði verkefni fyrir hann í byrjun árs og gjörsamlega kolféll fyrir hönnuninni hans.“ Nýr bíll frá Gucci Ítalska tískuhúsið Gucci hefur unnið að nýrri bílategund í samstarfi við Fiat síðustu mánuði og var bíllinn frumsýndur á tískuvikunni í New York á dögunum. Hann er lítill og nettur, hannaður fyrir stelpur, og er seldur í tveimur litum; hvítum og svörtum. Topp- lúga er á bílnum, skreytt grænni og rauðri rönd, og segir aðalhönnuðurinn, Frida Giannini, þetta eiga að vera aðaleinkenni bílsins. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gucci hannar bíl fyrir Fiat og þessi fyrirtæki vinna vel saman. Fyrri bílar hafa selst upp á skömmum tíma og búist er við að nýjasta hönnunin verði þar engin undantekning. Richie með áhrifamestu línuna Accessories Council-verðlaunahátíðin hefur verið haldin árlega síðustu sextán ár og þar eru veitt verðlaun fyrir hönnun fylgihluta. Fyrir- komulag hátíðarinnar er öðruvísi en á öðrum verðlaunahátíðum og hafa verðlaunahafar þegar verið tilkynntir þótt hátíðin verði ekki haldin fyrr en í nóvember. Það sem vakti mesta athygli var að raunveru- leikastjarnan og tískufrum- kvöðullinn Nicole Richie hlýtur verðlaunin Áhrifamesta fylgi- hlutalínan og er þetta í fyrsta skipti sem Hollywood-stjarna vinnur til verðlauna á hátíðinni. Best klædda teiknimynda- persóna heims Ný kvikmynd með Prúðuleikurunum er væntanleg seinna í haust og er mikill spenningur fyrir henni víða um heim. Margir þekktir ein- staklingar hafa komið að gerð myndarinnar og þar á meðal kunnir hönnuðir sem hanna klæðnað á fígúrurnar. Fröken Svínka, ein af aðalpersónum myndarinnar, verður ein best klædda teiknimynda- persóna heims því hún mun klæðast fatnaði frá Zac Posen og skóm frá hinum færa Christian Louboutin. Mánudagur: Skór: Topman Buxur og Belti: Topman Bolur: Suit Peysa: All Saints Jakki: All Saints Þriðjudagur Skór: Converse Buxur: Urban Bolur: H&M Peysa: H&M Jakki: Andersen & Lauth Húfa: H&M Trefill: Urban OUtfitters Full búð af nýjum vörum Bæjarlind 4, 201 Kópavogur l Sími: 544-2222 l www.feminin.is l feminin@feminin.is Við erum á facebook Miðvikudagur: Skór: H&M Buxur: Weekday Peysa: Prjónuð af Eygló Eyjólfs Fimmtudagur: Skór: Converse Buxur: Mundi Skyrta: All Saints Bolur: Forever21 Úlpa Zo On
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.