Fréttatíminn - 23.09.2011, Qupperneq 72
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Hrósið …
... fær Rúnar Rúnarsson kvikmyndaleikstjóri.
Ákveðið var í vikunni að mynd hans Eldfjall
yrði framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna
þetta árið. Myndin hefur ekki verið formlega
frumsýnd hér á landi en hefur gert mikla lukku
á kvikmyndahátíðum víða um heim.
Ham loks á toppinn
Ham tókst það sem engum hefur
tekist undanfarnar vikur – að
velta Helga Björns og Reiðmönn-
um vindanna úr toppsæti Tónlist-
ans, lista Félags hljómplötufram-
leiðenda, yfir mest seldu diska
vikunnar. Diskur Ham, Svik,
harmur, dauði, er í efsta sætinu
aðra vikuna í röð. Í öðru sæti eru
Helgi Björns og félagar með Ég
vil fara upp í sveit og Jón Jóns-
son er í þriðja sæti. Athyglisvert
verður að fylgjast með fyrstu
plötu Of Monsters and Men, My
Head is an Animal, sem kom út
í síðustu viku og fór beint í sjö-
unda sæti. Of Monsters and Men
hafa átt vinsælasta lag Íslands
undanfarnar vikur en lagið Little
Talks hefur setið á toppi Laga-
listans síðustu fimm vikur. -óhþ
GAMMA styrkir
Sinfó til 2014
Sinfóníuhljómsveit Íslands skrif-
aði nýverið undir samning við
verðbréfafyrirtækið GAMMA sem
verður einn af aðalstyrktaraðil-
um Sinfóníunnar til ársins 2014.
„Það er okkur hjá GAMMA
sérstakt ánægjuefni að styðja
við starfsemi Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands næstu þrjú árin.
Metnaður og hæfileikar hljóm-
sveitarinnar eru eitthvað sem Ís-
lendingar allir geta verið stoltir
af og við hjá GAMMA erum
sérlega ánægðir með að fá að
tengjast,“ segir Gísli Hauksson,
framkvæmdastjóri GAMMA.
„Áhugi Íslendinga á tónlist er
mikill og Sinfóníuhljómsveit
Íslands gegnir lykilhlutverki í
að mæta þeim vaxandi áhuga.
Stuðningur GAMMA við Sin-
fóníuhljómsveitina er mikilvæg-
ur og eflir frekari uppbyggingu
á starfi okkar,“ segir Sigurður
Nordal, framkvæmdastjóri Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands.
Jón Atli vann
Gaddakylfuna
Rithöfundurinn og leikskáldið
Jón Atli
Jónasson
bar sigur
úr býtum
í keppn-
inni um
Gaddakylf-
una 2011,
glæpasag-
nasmá-
sögu-
keppni
DV og
Hins íslenska glæpafélags, fyrir
söguna Í kjallaranum. Tveir höf-
undar, Valur Grettisson með
söguna Hinum megin við götuna,
og Þorsteinn Gunnlaugsson með
Margt er líkt með hjónum, hlutu
önnur verðlaun og Haukur Már
Haraldsson fékk þriðju verðlaun
fyrir söguna Háflæði. Verðlauna-
sögurnar fjórar og fjórar aðrar
verða birtar í helgarblaði DV sem
kemur út í dag, föstudag. -óhþ
www.penninn.is | sími 540 2050 | pontun@penninn.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
8
2
6
1
Hafðu samband við Fyrirtækjasvið Pennans í síma 540 2050 eða fyrirspurn@penninn.is.
Vertu jafnframt velkomin/n í verslanir okkar í Hallarmúla 2-4, Reykjavík eða Hafnarstræti 91-93,
Akureyri. Söluráðgjafar Pennans eru fyrirtækjum innanhandar með faglega ráðgjöf og
persónulega þjónustu.
ALLT SEM KLÆÐIR
SKRIFSTOFUNA VEL
Penninn býður gríðarlega mikið úrval af stórum og smáum gæðavörum fyrir skrifstofuna. Jafnframt
veitum við frábæra þjónustu og ráðgjöf varðandi rekstrarvörur, húsgögn og skipulag skrifstofunnar!
Nýttu þér þægindin og pantaðu allt fyrir skrifstofuna á einum stað.