Læknablaðið - 01.08.1968, Blaðsíða 42
170
LÆKNABL AÐIÐ
syndromið, Turner-syndrom eða XO-syndromið14 og litninga-
þrennd (trisomy) XXX-syndrominu var einnig lýst aí' Jacobs og
samstarfsmönnum hennar.15 A næsta ári bættust svo við litninga-
þrenndar-syndromin tvö, 17—18 10 og litningaþrennd 13.17
Nokkrar fleiri meðfæddar sjúkdómsmyndir hafa bætzt í hóp-
inn síðan.
Philadelpbia krómósóm eða Pb.iladelpbia litningurinn er af
nokkuð öðrum toga spunninn að því leyti til, að bér er ekki um
meðfætt afbrigði að ræða; þetta er litningabreyting, sem finnst
í krónískri myeloid leucemiu. Sýnt var fram á þetta árið 1960.18
Að lokum mætti geta um annað áunnið ástand, sem veldur litn-
ingaafbrigðum, en það eru litningabreytingar, sem lýst befur ver-
ið eftir geislun.19
1 grein í Læknanemanum20 gerir Ólafur Jensson grein fyrir
erfðafræði manna á ítarlegri hátt en bér hefur verið gert, og hann
og félagar hans liafa einnig fyrstir manna lýst litningagalla í
íslendingi í grein i Læknablaðinu.21
Erfðafræðinefnd Háskólans* taldi það vera í sínum verka-
hring að stuðla að því, að unnt yrði að framkvæma litningarann-
sóknir hérlendis. Var því ráðizt í að stofna rannsóknastofu í
þessu skyni í samvinnu við Rannsóknastofu Háskólans í meina-
fræði.
Dr. J. Edwards frá háskólanum í Birmingham var ráðunautur
nefndarinnar í þessu máli. Hann sá um tæknilega sérþjálfun
starfsmanns rannsóknastofunnar (H.H.), sem fór á vegum nefnd-
arinnar og stundaði nám og starfaði að litningarannsóknum í há-
skólanum í Birmingham fyrri helming árs 1967.
Rannsóknastofunni var fenginn staður í kjallara Blóðbanka-
byggingarinnar og tæki útveguð, svo að starfsemi gat hafizt í
októbermánuði 1967.
Rannsóknastofan
Eins og að ofan getur, er rannsóknastofan til húsa í kjallara
Blóðbankabyggingarinnar. Hún hefur þar umráð yfir tveim litl-
um herbergjum. Annað er notað til ræktunar, en hitt til ljós-
myndunar og smásjárskoðunar.
Aðferðir rannsóknastofunnar eru hinar sömu og almennt er
* í Erfðafræðinefnd Háskólans eiga sæti: Magnús Magnússon, Ólaf-
ur Bjarnason, Sturla Friðriksson og Tómas Helgason, tilnefndir af há-
skólaráði; Sigurður Sigurðsson landlæknir og Áki Pétursson, deildar-
stjóri í Hagstofu íslands.