Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1970, Side 66

Læknablaðið - 01.02.1970, Side 66
32 LÆKNABLAÐIÐ og 5 línuritum eru sundurliðuð ýmis einkenni efniviðar, svo sem tíðni sjúkdóms, tegundir, kynskipting, einkenni o. fl. atriði, þar á meðal upplýsingar um félagslegar hliðar sjúkdómsins. Sérstakur kafli fjallar um batavonir og meðferð í ýmsum tegundum og stigum veikinnar. í 6. kafla lýsir höfundur aðferðum við gagnasöfnun. Notkun sér- staks eyðublaðs gerir höfundi kleift að nota gatakortakerfi IBM og tölvu við úrvinnslu. Það er mikill fengur að þessari umfangsmiklu rannsókn á floga- veiki hérlendis. Hún er verðmætur grundvöllur fyrir frekari athuganir á afmarkaðri þáttum sjúkdómsins. ★ Doktorsritgerð Þorkels Jóhannessonar heitir: Morphine and Codeine. The analgesic effect in tolerant and non-tolerant rats. Acta Pharmaco- logica et Toxicologica. Volume 25, Supplementum 3, 1967. Bogens For- lag, Copenhagen 1967. Handelsbogtrykkeriet, Odense. Rit Þorkels er 83 bls. Ritgerðin er yfirlit um fjölþættar rannsóknir höfundar á viðfangsefni því, sem titill segir til um. í upphafi eru skráðar tíu ritgerðir eftir Þorkel og samstarfsmenn, og um hálfur tug- ur ritgerða til viðbótar er í heildarskrá, þar sem Þorkell hefur verið meðhöfundur og fjallað er um ákveðna þætti morfín- og codein-rann- sókna. Kemur fram í inngangsorðum ritsins, að morfín og skyld sambönd eru þau lyf, sem einna mest hafa verið rannsökuð, en þó er enn þá margt á huldu um áhrif og afdrif þessara lyfja í líkamanum. Rit Þorkels gefur skýra og skipulega heildarmynd af framlagi hans til grundvallarrannsókna á þessu sviði. En þar að auki er í ritinu mik- ill fróðleikur um vinnu annarra vísindamanna í morfínlyfjafræði, bæði þeirra, sem takast á við þessi fræði með nútímatækni, og hinna, sem gengnir eru og leystu sumar gátur þessara efna „á horni eldhúsborðs“.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.