Læknablaðið - 01.02.1970, Síða 66
32
LÆKNABLAÐIÐ
og 5 línuritum eru sundurliðuð ýmis einkenni efniviðar, svo sem tíðni
sjúkdóms, tegundir, kynskipting, einkenni o. fl. atriði, þar á meðal
upplýsingar um félagslegar hliðar sjúkdómsins. Sérstakur kafli fjallar
um batavonir og meðferð í ýmsum tegundum og stigum veikinnar.
í 6. kafla lýsir höfundur aðferðum við gagnasöfnun. Notkun sér-
staks eyðublaðs gerir höfundi kleift að nota gatakortakerfi IBM og
tölvu við úrvinnslu.
Það er mikill fengur að þessari umfangsmiklu rannsókn á floga-
veiki hérlendis. Hún er verðmætur grundvöllur fyrir frekari athuganir
á afmarkaðri þáttum sjúkdómsins.
★
Doktorsritgerð Þorkels Jóhannessonar heitir: Morphine and Codeine.
The analgesic effect in tolerant and non-tolerant rats. Acta Pharmaco-
logica et Toxicologica. Volume 25, Supplementum 3, 1967. Bogens For-
lag, Copenhagen 1967. Handelsbogtrykkeriet, Odense.
Rit Þorkels er 83 bls. Ritgerðin er yfirlit um fjölþættar rannsóknir
höfundar á viðfangsefni því, sem titill segir til um. í upphafi eru
skráðar tíu ritgerðir eftir Þorkel og samstarfsmenn, og um hálfur tug-
ur ritgerða til viðbótar er í heildarskrá, þar sem Þorkell hefur verið
meðhöfundur og fjallað er um ákveðna þætti morfín- og codein-rann-
sókna.
Kemur fram í inngangsorðum ritsins, að morfín og skyld sambönd
eru þau lyf, sem einna mest hafa verið rannsökuð, en þó er enn þá
margt á huldu um áhrif og afdrif þessara lyfja í líkamanum.
Rit Þorkels gefur skýra og skipulega heildarmynd af framlagi hans
til grundvallarrannsókna á þessu sviði. En þar að auki er í ritinu mik-
ill fróðleikur um vinnu annarra vísindamanna í morfínlyfjafræði, bæði
þeirra, sem takast á við þessi fræði með nútímatækni, og hinna, sem
gengnir eru og leystu sumar gátur þessara efna „á horni eldhúsborðs“.