Læknablaðið - 01.02.1978, Page 69
LÆKNABLAÐIÐ
29
urinn kostar 1182 kr. (heildsöluverð 30/4
1977). Nauðsynlegt er að þessi bólusetn-
ing verði almenn. Þátttaka í mislingabólu-
setningu verður ekki góð nema verulegur
fjárstuðningur komi frá opinberum aðil-
um.
Árið 1966 samþykkti Bandaríkjastjórn
ríflegar niðurgreiðslur á bóluefni gegn
mislingum með þeim afleiðingum að al-
mennt voru börn bólusett. Fjöldi mislinga-
tilfella fækkaði úr rúmlega 200.000 árið
1965 í um 20.000 árið 1968. Hér er átt við
tilfelli skráð við veirurannsóknarstofnun-
ina í Atlanta i U.S.A. Er fjárstuðningi var
hætt að mestu árið 1969, fjölgaði tilfellum
í 80.000 á árinu 1971. Síðan var fé veitt til
þessarar starfsemi og þá fækkaði tilfellum
brátt í 40.000/árlega.
Rauðir hundar
Verðandi mæður er sýkjast á fyrstu 3
mánuðum meðgöngutímans eru í mikilli
hættu að ala vansköpuð börn (congenital
rubella). Þessi börn hafa cft skerta sjón
og heyrn, hjartagalla, miðtauga- og heila-
skemmdir. Nckkuð lengi hefur verið heim-
ild í lögum um fóstureyðingu í þessu til-
felli. Fóstureyðing er alltaf hættuspil en
verra er að milli 20—30% kvenna er sýkj-
ast fá ekki einkenni (útbrot) og er því
ekki unnt að koma við fóstureyðingu. í
næstsíðasta faraldri er gekk yfir ísland
1964 fæddust rúmlega 30 börn með Con-
genital rubella. Minni faraldrar gengu
1972—74. Þá munu að minnsta kosti 6—8
börn hafa fæðst með Ccngenital rubella.
Kcstir bólusetningar gegn
rauðum hundum:
1) Líklegt er að bólusetning geti komið
í veg fyrir Congenital rubella og forðar
því frá vanskapnaði og óhamingju.
2) Hafa ber í huga hinn mikla kostnað
er þjóðfélagið þarf að standa skil á vegna
sjúkrahúsvistunar, trygginga, uppeldis og
kennslu barna er fæðast með Congenital
rubella.
Landlæknir gaf út erindisbréf til héraðs-
lækna árið 1975 um að 12—13 ára stúlku-
börn og mótefnalausum konum er hafa ný-
lega fætt börn skyldi gefinn kostur á bólu-
setningu gegn rauðum hundum.
Á sl. ári stóð prófessor Margrét Guðna-
dóttir fyrir því ásamt borgarlækni að öll-
um 12—13 ára stúlkubörnum í Reykjavík
og nágrenni og á Akureyri, er ekki höfðu
mótefni gegn rauðum hundum, var gefinn
kostur á bólusetningu. Þessum aðgerðum
verður fram haldið. í Reykjavík er mót-
efnalausum konum, sem nýlega hafa fætt
gefinn kostur á bólusetningu á fæðingar-
deildum. í öðrum héruðum hefur þátttaka
í bólusetningum orðið mun minni, en or-
sakir eru m.a. þær að bóluefnið kostar
milli 700—800 kr. (1977). Unnið er að
því að hið opinbera og sveitarfélög greiði
kcstnað við bólusetningar og má þá reikna
með þvi að þátttaka verði meiri.
Á árinu 1976 voru um 4000 börn bólu-
sett hér v. heilabólgufarald,urs (Meningiti?
A). Mun það vera í fyrsta sinn sem það
bóluefni er gefið hér á landi. Erfitt er að
dæma um árangur, en samfara bólusetn-
ingu hurfu Meningitis A tilfelli en B stofn
kom í þess stað. Að vísu hafði orðið vart
B stofns áður en bólusetning hófst.
Á vegum Landlækna Norðurlanda hefur
á sl. 2 árum verið haldnar 4 ráðstefnur um
farsóttir og ónæmisaðgerðir. Á þessum
fundum hafa framangreindar ónæmisað-
gerðir verið ræddar ásamt bólusetningum
gegn hettusótt, kynsjúkdómum, tann-
skemmdum o.fl. Þessir fundir verða haldn-
ir reglubundið.
Greinin barst ritstjórn 10. desember 1977.