Læknablaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 42
16
LÆKNABLAÐIÐ
1. N.medianus: SE á úlnlið, EE á dig. III.
2. N.ulnaris: SE á úlnlið, EE á dig. V.
3. N.suralis: SE á kálfa, á mótum neðsta
og mið'þriðjungs lítið eitt ca 1 cm. til
hliðar við miðlínu. EE aftan við
malleolus lateralis.
Diskelektróður, ca. 9 mm. í þvermál voru
notaðar við skráningu og ennfremur sem
ertandi elektróður á N. suralis. Við ertingu
á fingrum (N.med. og N.uln.) voru notaðar
hringelektróður (katóðan yfir art. inter-
phalangea proximalis, anóðan utan um
phalanx distalis). Leiðslutími var mældur
frá byrjun „stimulusartefakts" að byrjun
neikvæðs fráviks frá grunnlínu. „Leiðslu-
hraði“ í skyntaug var reiknaður þannig,
að leiðslutími (msek) var deilt í fjarlægð-
ina (mm) milli distal skráningarelektróðu
og ertandi katóðu. Er þá ekki tekið tillit
til tafar þeirrar sem verður frá byrjun
rafertingar til þess er boðspenna myndast
í tauginni, þar sem skekkjan sem af þessu
hlýst er hverfandi.
ÆTTIN (Mynd 1)
Io Ekki skoðaður. Alveg heilbrigður skv.
upplýsingum eiginkonu og bai-na.
I3 Alltaf verið heilsugóð. Ekkert athugavert
á meðgöngutíma. Saga bendir á vægt „carpal
tunnel syndrome". Neurol. skoðun eðlileg.
Psykiskt ekkert sérstakt athugavert.
IIi-IIji Ekki skoðuð. Heilbrigð skv. upplýs-
ingum hálfsystur.
II i 33 ára karlmaður. 1 bernsku algerlega
ónæmur fyrir sársauka. Fékk þá margvíslega
áverka og brunasár. Liðir hafa aflagazt mjög
og gerð hefur verið arthrodesis á h. hné. Tenn-
ur skemmdust mikið og fljótt, hafði þó aldrei
tannpínu.
Skoðun: Byrjandi skalli. Hár arcus pedis
bilat. Víða ör eftir bruna og áverka. H.hné
staurliður. V. olnbogi og báðir öklar aflagaðir.
Anosmia. Snertiskyn eðlil. Greinir mun á sljóu
og hvössu og mun betur proximalt á útilimum,
andliti og bol, heldur cn distalt á útlimum.
Titringsskyn og stöðuskyn eðli’. Psykiskt ekk-
ert sérstakt athugavert.
II5 31 árs karlmr.ður, frískur að sögn. Ekki
skoðaður.
II(i 29 ára karlmaður. Hefur áður verið
mjög þungur, um 113 kg., en tekizt að létta
sig og er nú um 80 kg. Annars heilsugóður.
Sársaukaskyn hefur alltaf verið eðlil.
Skoðun: Hár arcus pedis bilat. Byrjandi
skalli. Annars ekkert sérstakt athugavert.
Neurol. eðlil. Psykiskt ekkert sérstakt athuga-
vert.
II7 26 ára karlmaður. Kveðst ekki vita
hvað sársauki er. Fengið marga áverka og
brunasár sem barn. Tennur skemmdust fljótt
(allar dregnar er hann var 17 ára), aldrei haft
tannpínu. Gerir greinarmun á hita og kulda
og segist fá verk eða óþægindi í bakið þegar
00 Unaffected. Examined by the authors
Affected. Examined by the authors
t
Mynd 1.
Dead