Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 77

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 77
LÆKNABLAÐIÐ 33 próf og létu fremur illa af, þótti erfitt, sér- staklega kaflarnir úr grunngreinum, svo sem lífefnafræði, enda langt um liðið síð- an þeir stunduðu nám í þeim greinum. Fregnir hafa nú borizt um frammistöðu þessara lækna og ber að fagna því, að þeir stóðust allir prófið. Eftir að ljóst varð á sl. vetri, hversu al- varlegar afleiðingar áðurgreind lagabreyt- ing gæti haft í för með sér, ræddu stjórnir L.Í., L.R. og F.U.L. saman og ákváðu að stjórn L.í. skyldi snúa sér til ameríska læknafélagsins og kynna því málavöxtu og leita eftir aðstoð. Jafnframt var ákveðið að óska eftir því við heilbrigðismálaráðu- neytið að íslenzk stjórnvöld leituðu form- lega eftir bví við bandarísk stjórnvöld að gefin verði undanþága frá takmörkun dval- arleyfis og einnig bent á kostnað og fyrir- höfn við próftökuna. Jafnframt hefur stjórn L.í. farið þess á leit við þá íslenzka lækna, sem menntun hafa hlotið í Bandaríkjunum, að þeir kynni sérstöðu okkar fyrir fyrrverandi kennur- um og samstarfsmönnum, sérstaklega þeim, sem einhverjum ábyrgðarstöðum gegna. Ekki þykir ástæða til að rekja hér efni þessara bréfaskrifta, en í rökstuðningi okkar var lögð áherzla á það atriði, að möguleikar til fullnægjandi framhaldsnáms innanlands væru hér takmarkaðri en ann- arsstaðar, að íslenzkum læknum hefði gengið vel í bandarísku sérnámi og flestir snúið aftur og vegnað vel. Þá var bent á, að jafnvægi það, sem ríkt hefði milli ame- rískrar og sænskrar sérmenntunar myndi raskast. í svari Ameríska læknafélagsins kom fram skilningur þeirra á göllum laganna og á sérstöðu okkar í þessum efnum. Bentu þeir á möguleika íslenzkra stjórnvalda til að leita eftir undanþágu frá lögunum, og sendu afrit af bréfi okkar og röksemdar- færslu ásamt svarbréfi sínu til viðkomandi ráðuneytis. Svar bandaríska utanríkisráðuneytisins við málaleitan sendiráðs íslands í Washing- ton var á þá leið, að eftir núgildandi lögum væri ekki möguleiki á því að veita undan- þágu hvað snertir lengd dvalartíma. Hins vegar hefðu komið berlega í ljós ágallar á lögunum, sem gerðu það að verkum, að ráðuneytið hefði óskað eftir breytingu, sem m.a. fæli í sér, að mögulegt yrði að taka óskir íslenzkra stjórnvalda til greina. Var það m.a. tekið fram að röksemdafærsla íslendinga væri vel fallin til að sýna fram á þörf lagabreytingar. Hvað snertir V.Q.E. prófið er unnið að því að athuga, hvort mögulegt verði að þreyta prófið hér á landi. Augljóst er að persónuleg bréf íslenzkra lækna hafa heldur ekki verið þýðingarlaus. en ekki rúm hér til að rekja nánar. Geta má þó sérstaklega áhuga og hollráða frá Valdimar Björnssyni, fyrrverandi ráðherra í Minnesota, sem er mörgum íslenzkum læknum að góðu kunnur. Eins og málin standa í dag, virðist nokkur von um að úr rætist á næsta ári hvað snertir lengd dvalarleyfis. Ekkert hefur komið fram, sem bendir til þess að íslenzkir læknar geti sloppið undan V.Q.E., og enn óvíst, hvort hægt verður að taka það hér á landi. Strax og frekari vitneskja fæst um þessi atriði verður frá því skýrt. Rétt er að benda á, að ef læknir fer til Bandaríkjanna á innflytjendavegabréfi er hann ekki bundinn af hinu tímabundna dvalarleyfi. Þessi möguleiki er því fyrir hendi, en eftir upplýsingum sendiráðs Bandaríkjanna hér í Reykjavík tekur af- greiðsla þessara vegabréfa langan tíma (6-8 mán.), þar sem læknar hafa ekki lengur þann forgang, er þeir áður höfðu hvað snertir slíka vegabréfsáritun.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.