Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 79

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ 35 að sér að sjá um útgáfuna f.h. L.í. með aðstoð sérstaks aðstoðarmanns, sem þó hefði ekki ennþá verið ráðinn. Hann skýrði einnig frá viðræðum, sem átt hafa sér stað við forstjóra ísafoldar- prentsmiðju varðandi útgáfuna, og heppilegast væri talið að fela ísafold að gefa ritið út á eigin kostnað gegn því, að Læknafélag íslands fengi á- kveðna prósentu fyrir útgáfuréttinn. Ganga þyrfti þó vel frá samningum, þannig að Læknafélag íslands myndi ekki skaðast. Rætt var nokkuð um breytta tilhögun á bókinni, frá því sem var í fyrri útgáfu. 5. Nokkuð var rætt um væntanlegan aðal- fund L.Í., sem ráðgert er að haldinn verði hinn 23. og 24. júní n.k. á Akur- eyri. Magnús Lyngdal skýrði frá því, að gamli menntaskólinn yrði fenginn til fundarhalda og fulltrúar myndu fá inni á Edduhóteli í heimavistinni. Ákveðið var, að miðað yrði við það, að fundur yrði strax að morgni föstud. 23. júní og þyrftu fulltrúar að vera komnir til Akureyrar kvöldið áður eða snemma um morgun. Rætt var um að halda aðra formannaráðstefnu í marz eða apr- íl n.k. til þess að undirbúa málin frekar fyrir aðalfundinn. Nauðsynlegt væri, að tíminn þar til þá yrði notaður til þess að ræða málin í svæðafélögunum. Skýrt var frá því, að Nordisk Federa- ticn for Undervisning myndi halda fund á Akureyri í vikunni á eftir aðalfundi L.Í., og myndi læknum bjóðast tæki- færi til að sækja fyrirlestra, sem haldn- ir yiðu á þeirri ráðstefnu. Einnig stæði til, að ritstjórn Nordisk Medicin héldi ritstjórafund á sama tíma á Akureyri og þyrfti að útvega þeim fundaraðstöðu. 6. Þá var rætt nokkuð um útgáfu Lækna- blaðsins. í ljós kom, að útgáfan hefur gengið vel á þessu ári og í framtíðinni ættu félagsstjórnirnar að geta notað blaðið meira en áður til upplýsinga til félagsmanna um starfsemi félaganna. 7. Rætt var um frumvarp til laga um breyt- ingu á læknalögum, sem nú liggur fyrir Alþingi. Skýrt var frá því, að gerðar yrðu ráðstafanir til að frumvarpið bær- ist stjórn L.í. til umsagnar. Rætt var um, að tillaga L.í. yrði, að frum- varpið yrði fellt, enda eðlilegra að setja sérstök lög og reglugerð um starfsemi kiropraktora, svipað því sem er um aðra paramedicinska starfsmenn. Ef Ai- þingi héldi hins vegar fast við að sam- þykkja frumvarpið, væri nauðsynlegt að fá því framgengt, að skilyrði fyrir veitingu takmarkaðs lækningaleyfis yrði háð samþykki læknadeildar Há- skóla íslands. í því sambandi var rætt um nauðsyn endurskoðunar á ákvæðinu í lögum um endurveitingu lækningaleyfis eða veit- ingu lækningaleyfis, er vafi léki á um hæfni umsækjanda. Eðlilegt væri, að í slíkum tilvikum væri lækningaleyfi veitt með skilyrðum um tiltekinn tíma til reynslu, en síðar yrði tekin afstaða til veitingar ótakmarkaðs lækningaleyf- is í hverju tilfelli. í þessu sambandi var ennfremur rætt um breytingu þá, sem gerð var á læknalögum 1973, þar sem kveðið er ónákvæmar á en var í lögum frá 1969, um skilyrði fyrir því að mæla megi með veitingu lækningaleyfis Samþykkt var að leita eftir álitsgerð- um læknasamtakanna á hinum Norður- löndunum um starfsemi kiropraktora í viðkomandi löndum. Þegar hér var komið sögu, var liðið fast að hádegi, og var því gert fundarhlé, og menn snæddu hádegisverð í boði Lækna- félags íslands. 8. Að loknu matarhléi mætti á fund- inn Snorri P. Snorrason f.h. endur- skoðunarnefndar vegna Codex Ethicus og laga L.í. Lagði hann fram upp- kast að breyttum Codex Ethicus. Skýrði hann frá því, að nefndin hefði aflað upplýsinga erlendis frá um Codex á hinum Norðurlöndunum og í Banda- ríkjunum. Hliðsjón hefði verið höfð af þessum ritum við endurskoðun á Codex Ethicus fyrir L.í. Ákveðið hefði verið að hafa ýmis ákvæði fyllri og færa ým- islegt til samræmis við það, sem væri í Codex Norðmanna og Dana, sem hafa nýlega verið endurskoðaðir. í uppkast- inu að nýjum Codex væru öll ákvæði, sem væru í núgildandi Codex og til við-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.