Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 81

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 81
LÆKNABLAÐIÐ 37 Le'Lðbeiningar fyrir greinahöfunda EFNI Efni, sem óskað er birtingar á, skal sent í tvíriti til ritstjórnar Læknablaðsins, Domus Medica, Reykjavík. Skulu því fylgja upplýsingar um vinnu- stað og heimilisfang höfundar (höfunda). Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræðinnar, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum eða um er að ræða saman- tekt á reynslu annarra, bæði yfirlits- og fræðslugreinar. Blaðið birtir efni er varðar málefni L.Í., svæða- og sérfélaga og um hvert það efni annað, sem tengt er hagsmuna- og áhuga- málum lækna. Þá eru og birtar stuttar athugasemdir og lesendabréf. GREINAR Greinar skulu settar upp á skýran og ljósan hátt. Greinartitill skal vera stuttur, en skýr, og lýsa viðfangefni greinarinnar. Stundum er betra að hafa undirtitil. Inniheldur aðal- titill þá eitt eða fleiri lykilorð sem nauð- synleg eru til réttrar færslu greinarinnar í spjaldskrá. Undir titil greinarinnar setur höfundur nafn sitt og ef til vill nafn stofn- unar þeirrar, þar sem að greininni hefur verið unnið. EFNISÁGRIP í upphafi greinar skal í örstuttu máli segja frá efni hennar og þar sem það á við, hvert sé tilefni hennar og/eða tilgangur með birtingu hennar. Greinar skulu vera á góðri íslenzku og skal íslenzka öll erlend orð og heiti, verði því við komið. Sé þörf á skulu erlend orð sett i sviga aftan við þau íslenzku. Séu ekki til íslenzk heiti eða hugtök yfir það, sem um er rætt skulu erlend orð sett innan gæsalappa. HANDRIT Handrit skulu vélrituð skýrt og greini- lega öðru megin á pappírsarkir i stærðinni A4 (210 mm á breidd og 296 mm á hæð) og skal vera minnst 20 mm jaðar á alla vegu. Línubil skal vera tvöfalt. Ekki er leyfilegt að vélrita á jaðrana. Blaðsíður handrits skulu tölusettar í röð í efra horni hægra megin. Slík töluröð er áframhaldandi á efniságripi og heimildum. Áður en handrit er sent ritstjórn skal það vandlega yfir- farið. Minniháttar leiðréttingar má vélrita inn á milli lína. Sé hins vegar um meiri- háttar leiðréttingar að ræða, skal vélrita þann hluta að nýju. Frágangur handrits skal vera þannig, að hægt væri að senda það til setningar í prentsmiðju, ef um þrykkingu efnis verður að ræða. Ef hins vegar á að „offset“-prenta eða „offset“- fjölrita, skal frágangur handrits vera þann- ig, að hægt sé að gera myndamót eða stensla beint eftir handritinu og það á að geta þolað nauðsynlega smækkun. Skal þá 'haft samband við ritstjórn, hver skuli vera lögun og stærð þess flatar, er letur á að vera innan. TÖFLUR Töflur spara oft langt mál og skal ekki að nauðsynjalausu endurtaka í texta þær upplýsingar, sem í töflum standa, Töflur skulu hafðar eins einfaldar og skýrar og unnt er. Töflur á að vera hægt að skilja óháð teksta í aðalmáli. Á þeim skal vera númer, t.d. Tafla I, eða Table I, þegar ástæða er til að hafa texta töflunnar á ensku. Á þeim skal vera titill eða yfirskrift. Þar skal í örstuttu máli gera grein fyrir efni töflunnar, hvers konar upp- lýsingum hefir verið safnað, hvar, hvenær o.s.frv. Titill er ritaður með HÁSTÖFUM (blokkstöfum). Hægt er að setja fram frekari upplýsingar í undirtitli, til þess að titill verði ekki of langur. Undirtitill er ritaður með lágstöfum. í textadálki lengst til vinstri og í haus skal texti vera eins stuttorður og kostur er. Töflum skal skipt niður í reiti, með lárétt- um og lóðréttum línum, þegar þörf er.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.